blaðið - 09.08.2005, Qupperneq 28
28 IGOLF
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 blaðið
Sveiflan œfð á ódýran máta
- Básar henta öllum
Golfkúla er ekki
bara golfkúla
Að mörgu þarf að hyggja þeg-
ar golf er annars vegar enda
sport sem krefst bæði vand-
virkni og er tímafrekt. Ekki dugar
að henda sér beint í djúpu laugina
heldur skal skoða hvert smáatriði
eins og til dæmis kúlurnar. Golf-
kúla er ekki bara golfkúla eins og
Sveinn Snorri Sverrisson hjá golf-
versluninni Nevada Bob útskýrir nú
fyrir lesendum.
„Tæknileg þróun í golfi hefur ver-
ið mikil síðustu ár. Hún hefur verið
hvað mest á golfkúlum og liggur
aukin högglengd kylfinga í dag í
betri kúlum. Fyrir nokkrum árum
voru tveggja laga kúlur allsráðandi á
markaðinum en nú í dag eru þriggja
laga kúlur ráðandi og einnig eru
komnar á markað fjögurra laga kúl-
ur. Þriggja laga kúlunni mælum við
með fyrir þá sem eru lengra komnir.
Þá ertu kominn með kjarna sem er
orkumeiri, millilag í kúlunni sem
gefur meiri mýkt en ysta lagið er
mishart. Þriggja laga kúlurnar gefa
yfirleitt meiri spuna og henta því
frekar lágforgjafarmönnum.
Mýkra ytra lag gefur af sér meiri
spuna á boltanum. Þegar horft er á
bolta lenda og spinna upp á sig þá
eru mestar líkur á að ytra lagið sé
mjúkt. Línurnar, eða raufarnar á
kylfuhausnum, rífa í ysta lagið og
valda spuna. Þær sem eru harðar að
utan gefa minni spuna. Þess vegna
er frekar mælt með þeim fyrir byrj-
endur af því að þegar byrjandi slær
á hann til að slá með meiri hliðar-
spuna og þá ýkja mjúku kúlurnar
þennan spuna og fara þá meira til
hægri eða vinstri en þessar hörðu
myndu gera.
Það sem hafa ber í huga er að kúl-
urnar eru líka misharðar. Ysta lagið
er mishart og kúlan sjálf er mishörð
eftir tegundum. Fyrir þá sem eru
með hægari sveiflu eins og eldri
kylfingar, börn og konur er mælt
með kúlum sem hafa pressu sem
er 8o. Það þýðir í raun hraðann 8o
mílur á sekúndu. Svo eru til 90 og
100 pressu kúlur. Þeir sem eru með
hraða sveiflu eru með 100 pressu
bolta. Atvinnumenn og lengra
komnir sem eru með hraða sveiflu
nota þannig kúlur.
Það er því að mörgu að huga þegar
kylfingurinn velur sér kúlur. Flestir
framleiðendur bjóða upp á mismun-
andi kúlur til þess að kylfingar geti
fundið sér kúlur við sitt hæfi.“ ■
Við Vesturlandsveg blasir nú við
glæsilegt golfæfingasvæði sem er op-
ið öllum. Hægt er að leigja sér golf-
kúlur og æfa sveifluna án þess að
hafa áhyggjur af því að kúlan lendi
á óheppilegum stað.
Æfingasvæði sem slíkt á sér marg-
ar fyrirmyndir erlendis en svæðið
við Vesturlandsveg er enginn eftir-
bátur hvað aðstöðu varðar.
„Svæðið opnaði í fyrra og það hef-
ur verið mjög góð aðsókn”, segir
Hanna Lilja Sigurðardóttir, sumar-
starfsmaður Bása, eins og svæðið er
jafnan kallað.
Allt árið um kring er hægt að fara
og slá bolta án þess að hafa áhyggjur
af köldum veðrum. „Á veturna eru
básarnir hitaðir upp þannig að eng-
um þarf að verða kalt”, segir Hanna.
Ekki er dýrt sport að skreppa eins
og eina kvöldstund í Bása og kýla
nokkra bolta.
„Hægt er að velja um að taka 20,
50, eða 100 bolta. 20 boltar kosta 250
krónur, 50 kosta 400 krónur og 100
boltar kosta 780 krónur. Hægt er að
koma með sína eigin kylfu eða fá
lánaða hjá okkur endurgjaldslaust",
segir Hanna.
Hún segir alla sækja svæðið, hvort
sem um ræðir byrjendur eða lengra
komna og allir skemmti sér jafn vel,
hvernig sem höggið heppnast.
„Atvinnumenn koma hingað að
æfa sig sem og byrjendur sem vilja
leika sér. Þetta er gaman fyrir alla,
líka þá sem ekki eru vanir,“ segir
Hanna og bendir á að þeir sem vilja
koma og slá bolta en kunna ekki
undirstöðuatriðin geti keypt hálf-
tíma kennslu hjá einum af þeim
fjölmörgu kennurum sem starfa í
Básum. Nauðsynlegt sé þó að panta
fyrirfram.
Alls eru 72 básar á æfingasvæð-
inu. Hanna segir mest vera að gera
á milli fjögur og fimm á daginn og
síðan eftir klukkan sjö og til lokun-
ar. Inn á milli komi þó rólegri tímar
Hanna Lilja Sigurðardóttir í léttri sveiflu
sem hún noti til að viðhalda sveifl-
unni.
„Ég æfi sjálf golf og æfi mig þegar
tími gefst til. Ég er tvöfaldur Islands-
meistari í unglingaflokki og ég er
viss um að þetta hafi hjálpað til. Ég
hef reyndar æft mig hér frá því að
opnaði í fyrra en auðvitað meira eft-
ir að ég byrjaði að vinna hérna í vor“,
segir Hanna. ■
BlaðiÖ/Gúndi
Smíðar golfkylfur eftir
kúnstarinnar reglum
„Ég lærði golfkylfusmíði í Sacra-
mento í Californiu fyrir 14 árum
og tók líka námskeið í Texas litlu
seinna. Þetta var ógleymanlegur
tími í alla staði”, segir Oskar Gísli
Óskarsson golfkylfumsiður.
Óskar segir ekki marga starfa við
þetta hér á landi en það sé þó eitt-
hvað að aukast, margir séu komnir í
viðgerðir og síðustu tvö til þrjú árin
hafi einhverjir bæst við sem smíða
kylfur.
„Ég er nú samt búinn að vera lengst
í þessu og er samt ekki nema 38 ára
gamall. Eg var ekki nema 24 ára þeg-
ar ég lærði og var með þeim allra
yngstu. Á námskeiðinu sem ég tók í
Texas var meðalaldurinn 60 ár“, seg-
ir Óskar.
Óskar rekur nú heildverslun þar
sem hann flytur inn búnað fyrir
golfvelli, alls kyns tæki og tól auk
þess sem þar er verkstæðið hans þar
sem hann smíðar og gerir við golf-
kylfur.
Golfáhuginn hefur verið
til staðar í fjölda ára.
„Þegar ég var 18 ára var faðir minn
frumkvöðull að golfklúbb Odd-
fellow í Heiðmörk. Hann kom því á
laggirnar að byggður yrði golfvöllur
og ég tók að mér ýmis atriði er snéru
að honum. Faðir minn var fyrsti for-
maður klúbbsins og ég var fyrsti eig-
inlegi vallarvörðurinn. Á þessum
tíma var auðvitað enginn golfvöll-
ur, við fengum lánaða sláttuvél ein-
hversstaðar að austan og svo fóru
hjólin að snúast. Núna er völlurinn
einn stærsti og flottasti völlurinn á
landinu", segir Óskar.
Hann segir að þetta hafi orðið til
þess að áhuginn á golfinu hafi vakn-
að fyrir alvöru og auk þess að hafa
puttana í öllu í kringum völlinn sé
hann liðtækur spilari.
„Þarna byrjaði ég að ganga um völl-
inn með hönnuðinum og mæla allt
og hæla niður auk þess sem ég var
líka að spila á fullu. Öll fjölskyldan
er í þessu sporti“, útskýrir Óskar.
En hvaða sérþarfir eru sem þarf
in og gripin og set það saman eftir
máli. Þá er líka tekinn sveifluhrað-
inn svo að ég fái réttu sköptin. Þetta
er heilmikil kúnst“, segir hann.
Óskar segir þennan bransa alltaf
vera jafn skemmtilegan þrátt fyrir
að hafa hrærst í honum í öll þessi ár.
„Það er ekkert eitt sem er skemmti-
legast, þetta er alltaf jafn gaman. Svo
er þetta flott í ellinni, ég get dundað
mér við þetta inni í bílskúr', segir
Óskar hlæjandi að lokum.
Óskar stillir tækin fyrir smíðina
að uppfylla þegar kemur að sérsmíði
golfkylfa?
„Eins og gefur að skilja er fólk mis-
mikið á hæðina og þá þarf misstór-
ar golfkylfur. Kona sem er 170 cm á
hæð kalíast standard og ætti ekki að
vera í vandræðum með að finna sett
fyrir sína hæð. Kona sem hins veg-
ar er 155 cm fær ekki kylfur í sinni
stærð en það eru ansi margar konur
í þeim hæðarflokki sem spila golf.
Þá þarf að breyta kylfunum eða sér-
smíða þær. Þá fæ ég hausana, sköft-