blaðið - 09.08.2005, Side 30
30 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 blaöi6
Heimirfráíviku
Heimir
Guðjónsson,
fyrirliði FH,
verður frá í
viku til ío daga
vegna meiðsla
sem hann varð
fyrir í leiknum á
móti KR í fyrradag. Þetta er
haft eftir Ólafi Jóhannessyni
þjálfara FH á netsíðunni fót-
bolti.net. Heimir meiddist eftir
tæklingu í leiknum og var hon-
um skipt út fyrir Baldur Bett.
Sá fyrrnefndi missir væntan-
lega af leik FH og Grindvíkinga
á miðvikudaginn og ekki er vist
hvort hann verði orðinn leik-
fær fyrir leikinn á móti Þrótti
eftir viku. Óvíst var í gær með
meiðsl danska miðjumanns-
ins Dennis Siim hjá FH en í
gærkvöld stóð til að láta hann
reyna að fara á æfingu liðsins.
Kleberson
Brasilíski knattspyrnumað-
urinn Kleberson hefur verið
seldur frá Manchester United
til Besiktas í Tyrklandi fyrir
2,5 milljónir punda. Kleberson,
sem er landsliðsmaður, var
keyptur til United fyrir 6,5
milljónir punda frá Adetico Par-
anaense fyrir tveimur árum en
reyndist síðan dýrkeypt fjárfest-
ing fyrir Alex Ferguson. Hann
fann sig aldrei á Old Trafford
og vermdi oftast bekkinn þessi
tvö ár. Honum var hins vegar
tekið sem konungi við komuna
til Istanbul á sunnudagskvöld
og héldu stuðningsmenn
Besiktas á honum á háhesti í
gegnum flugstöðina. Sjálfur
hafði hann áður staðist læknis-
skoðun hjá tyrkneska liðinu.
Danska liðið OB
skoðar Guðmund
Þjálfarar danska liðsins OB f
Óðinsvéum munu fylgjast með
Guðmundi Steinarssyni, leik-
manni Keflavíkur, í leik gegn
Mainz i Evrópukeppni félags-
liða á fimmtudag. Hann stað-
festir þetta í viðtali við fótbolti.
net. Sjálfur hefur hann æft með
danska liðinu í síðustu viku og
virðast Danirnir hafa
mikinn áhuga á að
fá hann f sínar rað-
ir. Það kemur ekki
á óvart enda ^
hefur Guð- JáP®
mundur
staðið sig
afar vel f
framlínu
Keflavík-
ur í sumar
og skorað
fimm mörk
í 13 leikjum.
Hann hefur
áður leikið
í Danmörku,
þá með
Brönshoj í fyrstu
deildinni. Þaðan
fór hann til Fram
og síðan aftur
til Brönshoj. Það
yrði mikill missir
fyrir Keflvíkinga
fari hann til Danmerkur
að nýju enda frábær knatt-
spyrnumaður þar á ferð.
F'ótbo/t/
Mourinho hóqvær
Jose Mourinho þjálfari Chelsea
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri
Chelsea, segir að liðið muni ekki
vinna öll mót sem það tekur þátt í
á komandi keppnistímabili. Tímabil-
ið byrjar reyndar vel hjá Mourinho,
því lið hans vann sannfærandi sigur
á Arsenal í leik um Samfélagsskjöld-
inn á sunnudag og það þrátt fyrir að
milljarðaleikmenn eins og Hernan
Crespo og Shaun Wright-Phillips
þyrftu að verma bekkinn. Chelsea
varð enskur meistari og vann bikar-
keppnina á síðasta ári, en Mourinho
segir af hógværð að það sé útilokað
að bæta meistaradeildinni við. „Þú
getur einfaldlega aldrei unnið allt
sem er f boði“, segir stjóri Chelsea.
„Þú hlýtur að tapa leikjum og þar
með missa af titlum. Þannig er nú-
tíma knattspyrna.“
Leikurinn gegn Arsenal var mik-
ill persónulegur sigur fyrir framherj-
ann Didier Drogba sem'er frá Ffla-
beinsströndinni. Hann skoraði 16
mörk í 41 leik á síðasta keppnistíma-
bli sem þykir ekki mikið hjá liði eins
og Chelsea. Mourinho segir að þetta
sé aðeins byrjunin - það sé eðlilegt
að annað keppnistímabil leikmanns
hjá nýju liði sé betra en það fyrsta.
„Hann er farinn að venjast leikstíl
liðsins og samherjanna og í þetta
sinn getur hann byrjað tímabilið
í góðu formi, ólíkt því sem gerðist
í fyrra þegar meiðsli voru að hrjá
hann frá miðju móti.“ Mourinho
segir að enska deildin sé galopin og
það eina sem komist að hjá sér núna
sé leikurinn á sunnudag. „Það eina
sem ég hugsa um í dag er leikurinn
á móti Wigan á sunnudag.” ■
Raddiffe spáð sigri
Hlaupadrottningin Paula Radcliffe
tekur þátt í sínu fjórða maraþoni
á einu ári á sunnudag en þá verður
hún með á heimsmeistaramótinu
í frjálsum íþróttum í Helsinki. Al-
mennt er talið að Radcliffe sigri í
hlaupinu. Margir eru þó þeirrar
skoðunar að hún hafi gert mikil
mistök með því að taka þátt í 10.000
metra hlaupi á laugardag þar sem
hún endaði f níunda sæti auk þess
sem hún hefur tekið þátt í maraþon-
hlaupi í New York og London að und-
anförnu. Þetta hefur verið gagnrýnt
i ljósi þess að flestir bestu langhlaup-
arar heims taka aðeins þátt í einu
eða tveimur maraþonhlaupum á ári
til að yfirkeyra sig ekki. Radcliffe er
þó hvergi bangin og segir að ekki sé
hægt að telja með ólympíuleikana í
Aþenu þar sem hún hætti keppni eft-
ir um það bil 30 kílómetra. „Ég tel
það ekki með þar sem ég lauk ekki
einu sinni keppni“, segir hún ákveð-
in og er fullviss um sigur um helgina.
Sjálf skoðaði hún brautina í Helsinki
um helgina og virtist nokkuð ánægð
með hana. „Það er ekki mikið af stór-
um hæðum á leiðinni og þvf hentar
þetta mér ágætlega.” ■
Owen til
Newcastle?
Newcastle hefur lýst yfir áhuga
á að kaupa enska landsliðs-
manninn Michael Owen frá
Real Madrid. Hann hefur
verið orðaður við öll helstu
lið Englands að undanförnu
en ljóst er að lítið pláss er
fyrir þennan snjalla leikmann
í fremstu víglfnu Real Madrid
eftir að þeir keyptu brasilísku
landsliðsmennina Robinho og
Julio Baptista í sumar. Freddy
Shephard, stjórnarformaður
Newcastle, segir á heimasíðu
félagsins að viðræður séu
hafnar við Real Madrid en að
málið verði ekki rætt frekar að
svo stöddu. Owen sagði sjálfur
í síðustu viku að nokkrir stuttir
fundir hefðu verið haldnir með
fulltrúum enskra stórliða en að
ekkert væri fast í hendi. Sjálfur
segist hann vera ánægður hjá
Real og að hann væri í sjálfu sér
sáttur við að ljúka samningi sín-
um við liðið sem rennur ekki
út fyrr en árið 20o8.„Burtséð
frá því hvað gerist í sumar þá
hef ég mikinn áhuga á að snúa
aftur f ensku úrvalsdeildina
einn góðan veðurdag“, skrifar
hann í dálk í breska blaðinu
The Times. „Ég hef þroskast á
þeim tíma sem ég hef dvalið
erlendis og er því fullviss um
að ég sé betri leikmaður en ég
var þegar ég fór“, segir Michael
Owen. Hann segir að kaup Real
á Baptista hafi komið málum
á hreyfingu og að umboðs-
menn hans hafi þá fyrir alvöru
farið að skoða möguleika á því
að hann yrði seldur aftur til
Englands. Sjálfur skoraði hann
16 mörk á síðasta tímabili á
Spáni og segist líta til baka með
góðar minningar í farteskinu.
I & LANDSBANKADEILDIN # 1 karlar
I Félag L U J T Mörk Net Stig
1 FH 12 12 0 0 31 :5 26 36 ©
2 Valur 11 9 0 2 24:6 18 27 ©
3 (A 12 6 2 4 15:14 1 20 ©
4 Keflavík 13 5 5 3 24:27 -3 20 ©
5 Fylkir 13 5 2 6 23:22 1 17 ©
6 KR 13 4 1 8 14:21 -7 13 ©
7 Fram 12 3 2 7 11 :18 -7 11 ©
8 Þróttur R. 13 2 4 7 15:21 -6 10 ©
9 (BV 12 3 1 8 10:24 14 10 ©
10 Grindavík 11 2 3 6 11 :20 -9 9 ©
blaðið/Steinar Hugi
Staðan í Landsbankadeildinni
Urslitin ráðin
Petta árið virðast úrslitin í
Landsbankadeildinni vera
ráðin eftir tólf umferðir. FH
ingar hafa sýnt ótrúlegan styrk í
þessu móti og eftir tólf sigurleiki
í röð getur fátt stöðvað þá. Það
er helst að það taki því að fylgjast
með Valsmönnum sem hafa raunar
ekkert gefið eftir í toppbaráttunni.
Þessi lið hafa stungið önnur lið af
og virðast vera í sérflokki. Það sama
er að gerast í 1. deildinni þar sem
Breiðablik og Vikingur eru komin
langleiðina með að tryggja sér sæti
í Landsbankadeildinni á næsta ári. í
sjálfu sér er það frábært að eiga góð
knattspyrnulið og stuðningsmenn
þessara liða eru sjálfsagt kátir með
sína menn. Fyrir hinn almenna fólt-
boltaáhugamann hefði hins vegar
verið skemmtilegra að hafa spennu
í mótinu aðeins lengur. Sjá fleiri úr-
slitaleiki á lokasprettinum. Spenn-
an í dag er bundin við botnbaráttu
Landsbankadeildar karla og 1. deild-
ar. Þar berjast mörg lið fyrir áfram-
haldandi veru sinni í deildunum og
mun sú spenna eflaust endast fram í
lokaumferðirnar. Með þessu er ekki
verið að gera lítið úr afrekum topp-
liðanna - síður en svo - spennan er
einfaldlega svo stór hluti af því að
upplifa skemmtilegan knattspyrnu-
leik. Það er alla vega mín skoðun. ■