blaðið - 09.08.2005, Side 34
34 I KVIKMYNDIR
4
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 blaðið
bara lúxus
GEGGJAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS £eG0 f$/ VINSÆUVSTA MYNDIN Á ÍSLANDI í DAG!
Sýnd i Regnbognnutn kL 5:30, 8 og 10J0
SýiidU. 4 isk
Sý«dU. 140,5.50 og 3 i (nmdd
MSwidkl. 5.30,8 og 10.30 t,U6|SHM.lSJt,4
Sýnd kl. 4 og 61 þrividd
Syixi kl. 31.
SýndU 5.30 u. 11
Sýnd kl. 6, > oj 10
400 kr. í bíó! Glidir ó allw sýningw merktor með rooðu
www.laugarasbio.is
L t
Sýmikl. 10.40 U16 “J
iTrt
fil LUu v ú n
JP jH A l itT-i
Sýwlld. t iill ilrl
Styttist i Sonic Youth
Fáir miðar eftir
Nú styttist óðum í tónleika stórsveit-
arinnar Sonic Youth hér á landi því
eftir einungis viku fara fram fyrri
tónleikar sveitarinnar á skemmti-
staðnum Nasa. Koma Sonic Youth til
Islands er sannkallaður stórviðburð-
ur enda hefur sveitin verið ein áhrifa-
mesta rokksveit samtímans í þau 20
ár sem hún hefur verið starfandi.
Hún hefur haft áhrif á fjölmarga frá-
bæra tónlistarmenn í gegnum tíðina
og gefíð út fjölda meistarastykkja
eins og plöturnar Bad Moon Ris-
ing (1985), Evol (1986), Sister (1987),
Daydream Nation (1988), Goo (1990),
Dirty (1992), Washing Machine
(1995). A Thousand Leaves (1998) og
Sonic Nurse sem kom út árið 2004
og fékk vægast sagt frábærar viðtök-
ur. Hljómsveitin þykir með þéttari
tónleikasveitum og er lítill ldúbbur
eins og Nasa sjaldgæfur munaður
fyrir aðdáendur Sonic Youth. Upp-
hitunarsveitir á þessum tónleikum
eru Brúðarbandið sem spilar 16. ág-
úst en Curver þann 17. ágúst.
örfáir miðar eru eftir á fyrri tón-
leikana en nær helmingur á þá síð-
ari. Miðasala fer fram í verslunum
12 Tóna og á midi.is. ■
Bjallan lifnar
við á ný
Gamanmyndin Herbie Fully Loaded
í leikstjórn Angelu Robinson verður
frumsýnd á morgun í Sambíóunum
og Háskólabíói. Það eru tæp 40 ár síð-
an fyrsta myndin um bjölluna, The
Love Bug, var frumsýnd en síðan þá
hefur hún birst í mörgum myndum
og sjónvarpsseríum og nú er enn og
aftur búið að dusta rykið af þessum
furðulega bíl. Eins og flestir vita
er Herbie enginn venjulegur Volks-
wagen bíll heldur bjalla með eigin
hugsun sem getur keyrt sjálf og gert
alls kyns brellur. Unglingsstjarnan
Lindsay Lohan fer með aðalhlut-
verkið í myndinni og leikur hina
nýútskrifuðu Maggie Peyton sem
fær bílinn i gjöf frá föður sínum.
Hún fær að taka í stýrið í hinum
æsispennandi Nascar kappakstri
en Herbie er þó ekkert á því að leyfa
Maggie að ráða og þegar bjallan sjálf
tekur við stjórninni lendir Maggie í
ýmsum óvæntum atburðum. Leik-
konan unga, sem hefur komið fram
í fjölmörgum myndum, auglýsing-
um og sjónvarpsseríum sló rækilega
í gegn í kvikmyndinni, Mean Girls
sem sýnd var í fyrra. Aðrir leikarar
í Herbie Fully Loaded eru Matt Dill-
on, Dale Earnhardt Jr., Lauryn Garr-
ett og Michael Keaton. ■
Trommari Kiss
í Kaplakrika
Eric Singer, sem er best þekktur
sem trommari rokksveitarinnar
Kiss, mun leika með Alice Cooper
á tónleikunum í Kaplakrika næst-
komandi laugardag. Eric, sem gekk
til liðs við Kiss árið 1991, spilar reglu-
lega með Cooper á tónleikum en
hann hefur auk þess túrað með Gary
Moore, Black Sabbath, Badlands og
fleiri. Það verður því sannkölluð
tónlistarveisla fyrir rokkaðdáendur
í Kaplakrika en íslensku hljómsveit-
irnar Dimma, Dr. Spock, Sign og
Brain Police sjá um upphitunina. ■
4