blaðið - 09.08.2005, Síða 35
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005
KVIKMYNDIR I 35
HÁDEGISBIO
400 kr. MIÐAVERÐÁALLAR MYNDIR kl: 12 UM HELG/NA / SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
STMSTA KViKMYNDAHUS UNDSiNS • HAGATORGI • S. 530 191» • www.haskolcbio.is
EWAN McGREGOR
Magnaður framtíðartryllir þar sem
hraðinn og spennan ræður ríkjum.
Frá hinum eina sanna Michael Bay
RINGIAN £ 588 0800 AKUREYRI C A61 4666 KEFLAVÍK C «11170
Casey Affleck fer í villta vestrið
Leikarinn Casey Affleck hefur verið
að bíða eftir stóra tækifærinu í Holly-
wood í lengri tíma eftir að hafa þurft
að standa í skugganum af bróður sín-
um, Ben Affleck, í fleiri ár. Hann hef-
ur leikið minni hlutverk í stórmynd-
um á borð við Good Will Hunting,
Ocean’s Eleven og Ocean’s Twelve,
en nú gæti biðin verið á enda því Cas-
ey hefur verið ráðinn til að fara með
annað aðalhlutverkið í væntanlegri
stórmynd frá Warner Bros. Myndin,
sem gerð er eftir skáldsögu Robert
Hansen, The Assassination of Jesse
James by the Coward Robert Ford,
gerist í villta vestrinu og fjallar um
hinn alræmda útlaga Jesse Jame.
Hann var sannkallaður konungur
vestursins enda enginn sneggri með
byssuna en hann. James stjórnaði
heilu gengi með harðri hendi enda
bæði skapstór og hættulegur. Hinn
ungi Robert Ford gerist lærisveinn
hjá honum og lítur mikið upp til
hans en innst inni dreymir hann
um að taka stað hans í genginu og
enda þeir draumar með ósköpum.
Fyrirtækin Plan B í eigu Brad Pitt
og Scott Free þeirra Ridley og Tony
Scott sjá um framleiðslu myndar-
innar og sjálfur mun Pitt fara með
hlutverk Jesse James. Affleck leikur
þá hinn seinheppna Robert Ford en
Andrew Dominik (Chopper) mun
leikstýra myndinni. Tökur eiga að
hefjast í næstu viku en útgáfudagur
hefur enn ekki verið ákveðinn. ■
Pýsk skemmtun
a Broadway
Musikantenstadt Unterwegs
þann 5. september
Það verður sannkölluð alpastemmn-
ing á Broadway þann 5. september
næstkomandi en þá fer fram mikil
tónlistarskemmtum með þekktum
listamönnum frá Þýskalandi, Aust-
urríki og Sviss undir nafninu Musi-
kantenstadl Unterwegs. Skemmt-
unin er í haldin tengslum við
sjónvarpsþáttinn Musikantenstadl
sem sendur er út á ríkisstjónvarps-
stöðunum í öllum þýskumælandi
löndum Mið-Evrópu og er einn sá
vinsælasti á svæðinu. Stjórnandi
þáttarins, Karl Moik, er orðinn
goðsögn í lifanda lífi og ætlar hann
sjálfur að sækja landið heim til þess
að upplifa stemmninguna en í þátt-
unum hans hefur Island fengið gríð-
arlega landkynningu í tengslum við
islenskt tónlistarefni. Má þar nefna
að myndbönd með Inga Gunnari
Jóhannssyni og Stuðmönnum hafa
verið sýnd í þáttunum, en bæði
myndböndin voru tekin upp á ís-
landi. I tilkynningu frá aðstandend-
um skemmtunarinnar á Broadway
segir að viðburðurinn sé framhald
á mikilli kynningu Islands í hin-
um þýskumælandi heimi og verð-
ur þessi viðburður vafalaust engu
síðri landkynning. Auk Moik er
nefnilega von á miklu fjölmenni til
landsins og ungir tónlistarmenn frá
löndunum þremur munu skemmta
gestum á Brodway. Einnig verða að
minnsta kosti þrjú íslensk tónlistar-
atriði með Stuðmönnum, Islandica
og hjónunum Ástu Begga og Gísla
sem syngja tvísöng. Aðstoðarkynn-
Þýski þáttastjórnandinn Karl Moik verður
kynnir á skemmtuninni Musikantenstadt
Unterwegs á Broadway í september.
ir Karl Moik verður Ingi Gunnar Jó-
hannsson en allar kynningar verða
bæði á þýsku og íslensku. Forsala
á tónleikana fer fram í hljómplötu-
versluninni 12 tónum á Skólavörðu-
stíg 15. Verð miða er 3.000 krónur og
með þriggja rétta kvöldverði kostar
miðinn 7.500 krónur. ■
FVLCSTU WIEÐl BLfíniNU!
þú eiftir iHmm Mwn ú einu
STÍEMSTU MYNO ÚRSIHS!
FRtlMSÝNO UM LRHO RLLT
n HMannUH! .
ISLANDSBANKI
J) T0NLIST.IS blaóió
BIO.IS