blaðið - 09.08.2005, Síða 38
38 I FÓLK
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 blaðið
SMÁboraarinn
AFTURHALDSKREDDA!
Smáborgarinn fagnaði ógur-
lega þegar fæðingarorlofi feðra
var komið á. Loksins mátti segja
að forneskjulegur hugsanaháttur
fortíðar væri að kasta hamnum
og hin unga, fagra framtíð rétt að
stíga sín fyrstu skref. í ljósi þess
að hinni sjálfsögðu réttarbót var
komið á af miðaldra karlmönn-
um, mönnum komnum af hinu
léttasta, mönnum sem ekki voru
líklegir til að geta fleiri börn, þótti
smáborgaranum það staðfesting á
hröðu undanhaldi forneskjunnar.
Það hvarflaði ekki að Smáborg-
aranum að forneskjan ætti sér
traustari stoðir í landsbyggðinni.
AuðvitaðvarþaðkjánalegtenSmá-
borgarinn taldi að ríkisstjórnin
væri samsuða stjórnmálamanna
víðs vegar að af landinu og því
góður þverskurður af lífsafstöðu
þjóðarinnar. En nei. Það var mis-
skilningur. 1 höfuðvígi Norðlend-
inga eru ekki allir sammála um
fæðingarorlofslögin. Það er ekki
að norðanmenn telji að karlmenn
skyldu undanþegnir fæðingaror-
lofi. Nei. Bara stjórnendur fyrir-
tækja.
Smáborgarinn hefur hingað til
verið mikill neytandi KEA skyrs-
ins. Það kom þó svolítið bakslag
í skyrneyslu heimilisins þegar
ungar stúlkur voru fengnar til að
auglýsa KEA-skyrið með ósmekk-
legum hætti. Nú tók þó steininn
úr og hefur KEA skyrát á heimili
Smáborgarans verið aflagt með
öllu. Og ekki bara skyr. Allur
varningur merktur þessu, annars
ágæta fyrirtæki, kemur ekki inn
fyrir dyr. Það eru börn á heimili
Smáborgarans og að þeim snýr að-
för KEA.
Smáborgaranum þykir það með
ólíkindum að stjórnendur fyrir-
tækis sem á að heita umsvifamik-
ið á markaði, skuli ekki bera gæfa
til að skilja inntak og eðli fæð-
ingarorlofslaganna. KEA menn
virðast álíta sem svo að þau séu
einhverskonar sporsla til handa
verkamönnum landsins og þeim
sem gegna stöðum óbreyttra. Að
minnsta kosti ekki hærri stöðum
en millistjórnenda. KEA menn ná
þessu ekki.
Fæðingarorlofslögin tryggja
réttindi barna. BARNA. Aðför
KEA stjórnarinnar er að rétti
ófæddra barna framkvæmdastjór-
ans. Reyndar er Smáborgarinn á
því að með þessari aðgerð sé KEA
stjórnin að lýsa frati á æsku lands-
ins. Það er réttur barna að njóta
aðgengis og umönnunar foreldra
sinna. Það er réttur sem skilar
okkur öllum betra samfélagi.
KEA-menn virðast vera svona
business karlar sem skilja ekkert
nema magnið í pyngjunni. Smá-
borgarinn ætlar ekki að leggja til
hennar framar. KEA - nei takk.
SU DOKU
talnaþraut
Eddie Murphy
að skilja
Grínistinn og leikarinn Eddie Murp-
hy er að skilja við konu sína, Nicole,
sem hann hefur verið giftur í 12 ár.
Það var Nicole sem bað um skilnað-
inn og mun hún sækja um sameigin-
legt forræði yfir börnum þeirra sem
eru fimm talsins.
„Velferð barna okkar varðar okkur
mest“, sagði Eddie í yfirlýsingu sem
hann gaf út á föstudag. Eddie var
stjarnan í bandaríska þættinum Sat-
urday Night Live áður en hann fór
út í kvikmyndirnar en hann hefur
meðal annars leikið í Dr Dolittle og
Daddy Day Care, auk þess sem hann
kemur fram í Shrek 3.
Ljósmyndari skotinn
- aí öryagisvörðum
Brítney?
Ljósmyndari segist hafa verið skot- hann var að reyna að ná mynd af
inn af öryggisvörðum Britney Spe- Britney þar sem hún var að fara í
samkvæmi. Ljósmyndarinn, sem
heitir Brad Diaz, var skotinn í fót-
inn með plastkúlu fyrir utan hús
í Malibu. Lögreglufulltrúi segir
ekki liggja fyrir hver hafi verið
að verki. „Það gæti hafa verið
einhver sem ók framhjá eða var
j fótgangandi, við höfum enga
hugmynd hvaðan skotið kom”,
segir lögreglufulltrúinn. Diaz
fór á spítala en læknar sögðu að
kúlan væri komin of langt inn
í líkamann til að hægt væri að
fjarlægja hana. Lögreglufull-
trúinn sagði fyrst að atvikið
hefði átt sér stað fyrir utan
heimili Britney en leiðrétti
það síðan og sagði að svo
væri ekki en að Britney
væri tíður gestur í húsinu.
Ljósmyndarinn fullyrðir að
öryggisvörður Britney Spe-
ars hafi skotið hann og ætlar
hann að fara í mál. ■
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ í dag er góður dagur til að skoða sjálfan sig.
Reyndu að vinna í feruskránni, skoðaðu atvinnu-
auglvsingar eða íhugaðu að stofna fyrirtæki, ef þú
átt efcki eitt nú þegar.
V Þú ert í stuði til að vinna. Það er líka kominn
tími á að hætta að einbeita sér að því persónulega
og einbeita sér að vinnunni.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Allar hugmvndir þínar í dag eru gulls ígildi
þannig að þu sfcalt skrifa þær niður ef þú getur
ekki framkvæmt þær samstundis.
V Hreinskilið samtal mun opna þér dyrnar að
nýjum heimi. Þú hefur þennan frábæra næfileika
til að tengjast öðrum á ajúpan hátt. Það er gáfulegt
hjá þér ao eyða tíma meo fólki sem kemur þér á
óvart.
©Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
$ Vertu nærgætin/n við náinn vinnuveitanda.
Það er spenna að myndast sem þú getur ráðið úr.
V Þú ert algjörlega óháð/ur öllum nema sjálfum
þér og það er ólíktpér. Þú ert því að nema ný lönd
enda er það eina leiðin til að hfa lífinu lifandi.
Hrútur
(21.mars-19.apríl)
$ Þú getur ekki einbeitt þér í vinnunni í dac svo
þú skalt hætta að hugsa um einkalífið og einoeita
pér að viðskiptavinum og samstarfsfélögum.
V Þú hefur verið of mikið ein/n undanfarið. Það
er alltaf hollt að líða vel í eigin félagsskap en það er
líka hollt að umgan^ast aora, sem er emmitt það
sem þú skalt gera nuna.
Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Vinnan mun virðast áhugaverðari þegar breyt-
ingar verða og þær munu hrista upp í hversdagslíf-
inu á skrifstofunni. Vertu svei^janleg/ur og breyt-
ingarnar munu hafa lítil áhrif a þig.
V Astarlífið er í blóma, en samt ekki. Ef þú velt-
ir þér alltaf upp úr því hvað aðrir eru að gera og
huesa þá geturðu aldrei orðið hamingjusöm/sam-
ur. Veltu þér frekar upp úr því hvað þú vilt og hvað
þú hugsar.
©Tvíburar
(21.maí-21. júní)
$ Þér gengur allt í haginn svo lengi sem þú ert
að nota heilaoúið. Hvort sem þú ert ao búa til nýjar
hugmyndir eða aðstoða viðslaptavini þá mun vera
gaman í vinnunni.
V Það er rómantík í loftinu og þú hefur ótal hug-
myndir um hvernig skal gera sem mest úr henni.
©Krabbi
(22. júní-22. júlO
$ Það er álag í vinnunni og það mun hafa áhrifá
vinnustaðarmóralinn. Reynau að lægja öldurnar.
V Þú ert í pirruðu skapi vegna einhvers
sem er að gerast heima við. Reyndu að
velta þér ekki of mikið upp úr því. Farðu að
heiman. Reyndu að hitta skemmtilegt fólk.
25. gáta
5
6 4 9 1
7 9 4
8 6 5 4
4 7 3 8
2 1 6 7
2 4 8 7
1 9 4 3
3
Lausn á 25.
gátu verður að
finna i
blaðinu á
morgun.
Lausn á 24. gátu
lausn á 24. gátu
6 8 2 7 9 1 5 3 4
4 7 3 8 6 5 1 2 9
1 5 9 3 4 2 8 6 7
3 4 7 6 1 8 2 9 5
5 9 8 4 2 7 6 1 3
2 6 1 5 3 9 4 7 8
8 3 5 2 7 6 9 4 1
7 1 6 9 8 4 3 5 2
9 2 4 1 5 3 7 8 6
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða
tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og
í þar til gerð box sem innihalda 9
reiti. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í hverri línu og innan hvers
box. Allar gátur er hægt að ráða út
frá þeim tölum sem gefnar eru upp
í upphafi. Leitað er að talnapörum
og reynt að koma þeirri þriðju fyrir.
Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta
boxinu vinstra megin og því neðsta
líka, ætti ekki að vera erfitt að átta
sig á hvar 7 á að vera i miðju-boxinu.
Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt
að skrá þá hjá sér og halda áfram.
Katie hœttir við
Mutverk vegna
trúar Tom
Katie Holmes hefur nú hætt við að
leika í myndinni Factory Girl, eins
og ákveðið hafði verið, og ástæðan
er talin sú að unnusti hennar, Tom
Cruise, hefur látið hafa eftir sér
að hlutverkið væri neikvætt fyr-
ir ímynd hennar. Hlutverkið,
sem Katie var búin að taka að
sér, er Edie Segwick, en sú persóna
er tíður gestur á geðsjúkrahúsum og
háð geðlyfjum. Tom er ekki hrifinn
af því og vísar í trú sína en hann er
í Vísindakirkjunni svo-
nefndu. „Tom vildi ekki
að hún tæki hlutverk-
ið að sér og vildi að
hún léki bara sterka
einstaklinga”, segir
heimildarmaður.
Talsmaður Katie
sagði að hlutverk-
ið skipti hana í
raun engu máli. ■
®Ljón
(23. júlí- 22.ágúst)
$ Flestir viðskiptavinir þínir og samstarfsfólk
er vingjarnlegt og tilbúið til að hlusta á þína hlið
mála. Þú vinnur best sem hluti af heild.
V Þú veist aldrei hvernig hlutirnir æxlast. Það
sem er mikilvægast er að njóta stundarinnar. Þetta
verður góður dagur.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
$ Láttu loka kortunum þínum. Þú þarft að forð-
ast freistingar til að komast út úr þessum ógöng-
um sem þú ert í. Þolinmæði og innsæi mun koma
þér á leioarenda.
V Þú gætir skundað út og keypt eitthvað án um-
hugsunar eða þú gætir beðið eftir einhverju merki-
legu. Þetta er eittnvað sem þú þarft að læra.
©Vog
(23. september-23. október)
$ Það cr frábær daeur fyrir orkumiklar umrœð-
ur auk þess sem þú þarft að halda sambandi við
gamla viðskiptavini.
V Það munu allir vera á þinni bylgjulengd í dag
þannig að það ætti að vera lítill vandi að ná sam-
bandi við hvern þann sem þér þóknast.
©
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
$ Þú heidur að þú vitir hvað þú viljír en þangað
til að þú einbeitir þér að heilaarmyndinni mun
undirmeðvitund þin gera ákvarðanatöku erfiða.
V Það er eitthvað að gerast í huga þínum, ein-
hvcriar hræringar í gangi. Þú þarft að gera miklar
brcytingarbráðlega.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
$ Þú ert aðalmanneskjan á vinnustaðnum hvað
varðar viðskiptavini og samstarfsfélaga. Það er
eins og þú getir ekkert rangt gert þannig að þú
skalt njóta þess á meðan það endist.
V Vinur mun faðma þig svo innilega í dag að þér
hlýnar um hiartarætur. Það er frábært að vita til
þess hve yndislega vini þú átt. Ekki taka þá sem
sjálfsögðum hlut.