blaðið - 26.08.2005, Síða 26
-> .V-Ík'**.*.. v'ite?. ."‘rv/i^Ví^vV '
mM
tf&.&yLbt-xíú.-'jkz*. i»j2sr-
«ímvw'.'iT; VTTt*t»í«Jfí
FÖSTUDAQUR 26. ÁGÚST 2005 MaðÍA
Fœðing sviptir
konuna dulúð
-sumir karlmenn valda því ekki að sjá konuna sína ala barn
Risörðugleikar og of brátt sáðlát
eru viðurkennd vandamál sem
karlmenn eiga sumir hverjir við að
stríða í kynlífi sínu. Staðreynd er þó
að annað vandamál og jafnvel alvar-
legra, er til staðar. Sumir karlmenn
missa nefnilega alla löngun til lengri
eða skemmri tima til kynferðislegra
athafna með konu sinni þegar þeir
sjá hana ala barn þeirra.
Þetta vandamál er hins vegar mik-
ið feimnismál meðal karlmanna og
þess vegna eru ekki til raunhæfar
tölur yfir það hversu algengt vanda-
málið er.
Sigtryggur Jónsson sálfræðingur
segist kannast við þetta vandamál
úr sínu starfi.
20% afsláttur af öllum viðburðum
Concert efgreitt er með MasterCard
Kynnið ykkur frekari tilboð og tónleikadagskrá Concert á vef
Tilboðsidúbbs MasterCard, www.kreditkort.is/tilbodsklubbur
MIÐASALA í SKÍFUNNIBTAKOG SELF.
www.concertis í síma 511 2255
ÞAÐ ER OKKUR SONN ANÆGJA AÐ KVNNA
"...undirritaður sat lamaður af hrifningu og gæsahuð
hríslaðist um skrokkinn frá hvirfli til ilja."
Dómar Morgunblaðinu 14. júní 2003
EINSTAKUR TÓNLISTARVIÐBURÐUR MEÐ
Gospelkór Reykjavíkur og stórhljómsveit
Hljomsveitma skipa:
Johann Ásmundsson, Eyþor Gunnarsson,
Halldor G. Hauksson. Agnar Mar Magnusson,
ómar Guðjonsson, Sigurður Flosason,
Óskar Gudjonsson, Kjartan Hákonarson,
Samúel Samuelsson,. Einar S. Jónsson og
Johann Hjórleifsson
þélta ekki^ramhjá |írek
s um 1000 miðár eftir
Sérstakur gestur: Páll Rósinkranz
Stjornandi: Óskar Einarson
Hljoðmaður: Gunnar Smari Helgason
STÓRKOSTLEGIR TÓNLEIKAR Á HEIMSMÆLIKVARÐA
LAUGARDALSHOLL
3. SEPTEMBER
MIÐASALA I SKIFUNNI
BT AKUREYRI OG SELFOSSI
Einnig á www.concert.is - www.midi.is
og í síma 511 2255
„Ég get reyndar ekki sagt að ég
hafi fengið marga karlmenn til
min vegna þessa vandamáls. Ég
tel reyndar ekki ólíklegt að þegar
karlmenn leita sér aðstoðar við
kynlifsvandamáli þurfi það að vera
„viðurkennt" vandamál karlmanna,
þ.e. risvandamál eða seinkað eða of
brátt sáðlát. Mín reynsla er allavega
sú að flestir karlmenn sem leita sér
aðstoðar vegna kynlífsvanda, eiga
við þessi vandamál að stríða, þó á
því séu undantekningar. Konur leita
aðstoðar vegna miklu fjölbreyttari
vandamála í kynlífi, en algengustu
textabækur telja hefðbundin kvenna-
kynlífsvandamál," segir Sigtryggur.
Sú upplifun að vera viðstaddur
fæðingu síns eigins afkvæmis er
ólýsanleg fyrir flestum. Það er krafta-
verk að sjá höfuð barnsins birtast í
skauti kvenmannsins en það getur
líka verið áfall. Það er stórkostlegt
að sjá móður og barn tengd saman
með naflastrengnum en það getur
líka verið óhugnanlegt. Það er spenn-
andi þegar læknirinn býður föðurn-
um að klippa á naflastrenginn en
það getur líka vakið skelfingu, líka
hjá þeim mönnum sem hafa talið sig
óttalausa.
Það sem gerist þegar báðum aðil-
um finnst vera kominn tími til að
hefja kynlíf aftur eftir barnsburð
- sem er mjög misjafnt milli para
og líkamlegs ástands konunnar eft-
ir fæðinguna - er það að karlmað-
kynferðislega æsandi part af henni.
Hann á erfitt með að leggja sýnina
af barninu koma gegnum fæðing-
arveginn til hliðar. Lítur jafnvel á
konuna sem útungunarvél frekar en
kynveru.
Dulúðin og ástríðan sem hefur
tengt par órjúfanlegum böndum get-
ur horfið á einu augnabliki hjá þeim
karlmönnum sem ekki þola þetta
áreiti og þetta sjónræna kraftaverk
sem fæðingin er - sökum þess að
þeir voru ekki undirbúnir fyrir að
sjá konu sina í þessum átökum sem
fæðingin er og allt það sem henni
fylgir.
Þessi stund sem á að vera sú
stærsta í lífi hvers manns sam-
kvæmt öllum textabókum getur
snúist upp í að hafa ófyrirsjáanleg-
ar afleiðingar. Karlmenn geta leiðst
út í framhjáhald, sótt i súlustaði
og klám í auknum mæli án þess
að segja konu sinni frá því. Ekki er
þó algilt að menn leiti á önnur mið,
þeir geta orðið þunglyndir og þjáðst
af miklum kvíða. í sumum tilfellum
þegar vandamálið er viðvarandi og
engrar hjálpar er leitað getur komið
til skilnaðar.
Það má því segja að augnabliks-
sæla geti breytt góðu sambandi til
hins verra - níu mánuðum siðar. ■