blaðið - 06.09.2005, Side 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 blaðiö
Skattamálum
kippt í liðinn
Einn virtasti skattalögfræðingur
landsins, Ásmundur G. Vilhjámsson,
telur að fjárhæðin, sem safnað hefur
verið handa Birni Hafsteinssyni
strætóbílstjóra, sé ekki tekjuskatts-
skyld á grundvelli undanþáguákvæð-
is í reglugerð frá 1963 um tekjuskatt
og eignarskatt. Þar kemur fram að
styrldr og samskotafé teljist ekki til
tekna. Forsiðufrétt Blaðsins í gær
hefur vakið mikla athygli en þar er
ijallað um þann möguleika að ríkið
hirði tekjuskatt af slíkum söfnunum.
Það skal þó tekið fram að lög gilda
um opinberar fjársafnanir og þarf
að fara eftir þeim þegar skotið er
saman í sjóð. Að því þarf að huga
áður en farið er í slíkar fjársafnanir.
Þegar Blaðið leitaði eftir einhverjum
sem væri í forsvari fyrir söfnunina
um helgina til að fá upplýsingar
um hana var fátt um svör. Björn
hefði því að óbreyttu þurft að
greiða umræddan skatt en því hefur
nú vonandi verið kippt í liðinn.
Lögfræðingur sem Blaðið ræddi
við vegna fréttarinnar sagði að allt
of sjaldan væri hugað að álitaefnum
sem þessu þegar ráðist er í safnanir.
Grunur um fimm
íkveikjur um helgina
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
var tvívegis kallað út aðfaranótt
mánudags og á sunnudagsmorgun
vegna eldsvoða. Eldur kom upp í
ruslageymslu við skemmtistaðinn
Pravda í Austurstræti og var maður,
grunaður um verknaðinn, handtek-
inn. Einnig kom upp eldur að nýju
í iðnaðarhúsnæði að Fiskislóð 45 á
mánudagsmorgun og leikur sterkur
grunur á að um íkveikju hafi verið
að ræða í fyrra skiptið og sennilega
einnig í það seinna.
Helgin var erilsöm fyrir slökkvi-
liðið því auk þessara bruna kviknaði
í skemmtistaðnum Sirkus á Klappar-
stfg og í kassageymslu við Melabúð-
ina í Vesturbænum. Að sögn Óskars
Sigurðssonar hjá lögreglunni er
enginn grunaður um þessa verkn-
aði utan þess sem handtekinn var
í Austurstrætinu og telur lögreglan
ólíklegt að hann hafi komið að fleiri
brunum enda var honum var sleppt
að lokinni yfirheyrslu.
Þá sást til hóps unglinga við Sirk-
us á Klapparstíg rétt áður en eldur-
inn blossaði upp en Iögreglan hefur
engar vísbendingar um hverjir það
voru. Óskar segir að lítið hafi verið
um íkveikjur i borginni síðustu mán-
uði og því sé það skrítið þegar fimm
sinnum sé kveikt í sömu helgina.
Hann kann engar sérstakar skýring-
ar á þessum faraldri sem blossaði
upp um helgina. B
Loftur Már
vill sjötta sæti
Loftur Már
Sigurðsson
sendi í
gær frá sér
yfirlýsingu
um að hann
hygðist gefa
kost á sér í sjötta sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins til
borgarstjórnarkosninga.
Loftur hefur setið f stjórn
Félags sjálfstæðismanna í Graf-
arvogi í 11 ár, þar af síðustu sjö
árin sem formaður. Hann situr
nú sem varamaður í Hverfis-
ráði Grafarvogs og ITR. Á þess-
um 11 árum hefur Loftur gegnt
fjölmörgum trúnaðarstörfum
fyrir flokkinn, til að mynda
setið í stjórn fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík og
stýrt kosningabaráttunni í Graf-
arvogi síðustu fjórar kosningar.
Loftur hefur íokið B.Sc gráðu
í vörustjórnun frá Tækniskóla
Islands og stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti.
Jóga Jóga Jóga
Al-Einingar öndun byrjar 9 sept. kl.20 ;
Raja Jóga hefst 12.sept. kl.20
Sálar Jóga hefst 13 sept. kl.20
Uppiýsingar fást hjá Karli Þorsteinssyni í síma 660-7796
og/eða sjá www.andlegiskolinn.is Andlegi Skólinn
Lífrænt ræktað
fyrsta flokks
hráefni
Fljótlegt að koma við og taka með sér rétti
Græna línan, Bæjarhrauni 4, S:565-2075
Hbelladonnaii
Hlíðarsmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • www.belladonna.is
Erum að taka
upp nýjar vörur
ZRANÞ
Junge Modr <C# surtte frauer
somm
>r fwl.irAtf"
Vertu þú sjálf
- vertu Bella donna
Opið mán-fös 11-18
laugardaga 11-15
Landsbanki íslands kaupir Kepler Equities:
Fótfestu náð á meginland-
inu til frekari útrásar
Samningum fagnað við Eiffel-turninn. Frá vinstri: Ársæll Hafsteinsson forstöðumaður
lögfræðisviðs Landsbankans, Nick Stagg forstjóri Teather & Greenwood, Halldór J. Kristjáns-
son bankastjóri,TryggviTryggvason hjá alþjóðasviði Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason
bankastjóri, Arnaud Michel framkvæmdastjóri hjá Kepler, Steinþór Baldursson hjá alþjóðasviði,
Stephane Michel framkvæmdastjóri Kepler Equities og Brynjólfur Helgason framkvæmdastjóri
alþjóðasviðs Landsbankans.
Landsbanki íslands náði á sunnu-
dagskvöld samkomulagi um kaup
á evrópska verðbréfafyrirtækinu
Kepler Equities SA, en það hefur
höfuðstöðvar í París og starfa
um 240 manns á þess vegum í sjö
löndum. Samkvæmt samningn-
um kaupir Landsbankinn þegar
í stað 81% hlutafjár fyrir um 5,8
milljarða króna, en á næstu fimm
árum mun Landsbankinn leysa
það sem eftir stendur til sín, en
sá hlutur er í eigu starfsmanna og
stjórnenda.
„Þessir samningar gengu vel fyr-
ir sig enda smellpassa fyrirtækin
saman“, sagði Sigurjón Þ. Árnason,
bankastjóri Landsbankans, í sam-
tali við Blaðið í París. „Þeir voru
eiginlega nákvæmlega það sem við
vorum að leita að, án þess að skarast
á nokkurn hátt við það sem við höf-
um verið að fást við fyrir.“ Þar er vís-
að til þess að Kepler hefur ekki haft
starfsvettvang í Lundúnum, en þar
á Landsbankinn fyrir verðbréfafyr-
irtækið Teather & Greenwood sem
keypt var fyrr á árinu. Fyrirhugað er
að Kepler og breska fyrirtækið hafi
með sér nána samvinnu þó ekki sé í
hyggju að sameina þau að sinni.
Halldór J. Kristjánsson, hinn
bankastjóri Landsbankans, tók í
sama streng. „Það sakaði ekki held-
ur að Kepler hefur vantað traustan
banka að baki sér og þegar við knúð-
um dyra sáu menn að þarna var
draumaeigandinn kominn.“
Kepler hefur starfsemi víðsvegar
um Evrópu, en það er eitt megin-
markmið Landsbankans með kaup-
unum að byggja upp starfsemi í
helstu efnahagsveldum meginlands-
ins á einu bretti. Um leið fær bank-
inn fótfestu vestanhafs, því auk
skrifstofa i Amsterdam, Frankfurt,
Madrid, Mílanó, París og ZUrich
rekur Kepler verðbréfamiðlun i New
York borg. Landsbankinn er því með
starfsstöðvar í ellefu löndum.
Styrkur í menningarmuninum
Hvorki stjórnendur Kepler né Lands-
bankans höfðu áhyggjur af menn-
ingarmun sem kynni að vera á fyr-
irtækinu. „Við komum úr sitt hvorri
áttinni þannig að það er kannski ein-
hver munur á menningunni“, segir
Stephane Michel framkvæmdastjóri
Kepler, „en það er síður en svo til
vandræða. Ég held að það styrki okk-
ur ef eitthvað er og hleypi mönnum
kapp í kinn.“ Sem fyrr segir mun
Landsbankinn kaupa upp hluti
starfsmanna og stjórnenda Kepler á
næstu fimm árum en Michel óttast
ekki að það skapi rof milli þeirra
og fyrirtækisins. „Þetta er tiltölu-
lega ungt fyrirtæki þó við byggjum
á eldri grunni frá Julius Bár og hér
ríkir mikill og góður liðsandi. Mönn-
um hér finnst þetta mjög spennandi
og ég veit ekki annað en að það ætli
allir að halda áfram.“
Kepler hefur sérhæft sig í sölu og
miðlun hlutabréfa til fagfjárfesta og
þá fyrst og fremst milli landa, en
auk þess rekur það afar öfluga grein-
ingardeild. Kepler fylgist með og
greiniryfir 430 fyrirtæki í Evrópu og
telur yfir 800 fagfjárfesta meðal við-
skiptavina sinna. Fyrirhugar Lands-
bankinn að auka við þjónustu þess
og auka þannig tekjurnar, fyrst og
fremst á sviði ráðgjafar og eignaum-
sýslu. „Kepler hefur mikla þekkingu
og umframgetu á þeim sviðum, en
hins vegar hafa engar tekjur verið
af þeim gæðum fyrirtækisins", seg-
ir Sigurjón og kveður mikil sókn-
arfæri vera á því sviði. Samkvæmt
áætlunum bankans og stjórnenda
Keplers verða tekjur fyrirtækisins á
yfirstandandi ári um 6,2 milljarðar
króna, en um 7,2 milljarðar króna á
árinu 2006. Hagnaður er áætlaður
um 615 milljónir króna. ■