blaðið - 06.09.2005, Síða 8

blaðið - 06.09.2005, Síða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 blaöiö Til vinnu á hestbaki Jim Jundt, í bænum Minot í Norður Dakóta, er búinn að fá sig fullsadd- ann af síhækkandi verði á eldsneyti. Dag einn fór hann snemma á fætur og reið til vinnu á baki hryssunar Patty en hann vinnur á hjólbarða- verkstæði 15 mílur (um 24 km) sunn- an bæjarins. Jundt sagði að hann og vinnufélagarnir hefðu verið að ræða hækkanir á eldsneytisverði og hann hefði í hálfkæringi sagst ætla að koma á hestbaki til vinnu ef verðið næði einhvern tíma þremur dölum á gallonið. Þegar verðið hækkaði í þrjá dali og 20 sent í síðustu viku var Jundt nóg boðið og lét verða af hótuninni. ■ Steypuklumpur fellur á kláf Níu manns fórust og að minnsta kosti fjórir slösuðust þegar steypu- klumpur féll á kláf í skíðabænum Soelden, skammt frá Innsbruck, í Austurríki í gær. Þyrla sem var að flytja klumpinn á fjallstind missti hann á kláfinn sem skall við það til jarðar. Kláfurinn var fullur af ferða- mönnum. Tólf neyðarþyrlur, með- al annars frá her og lögreglu, voru sendar á vettvang slyssins og fjöldi björgunarmanna héldu þangað fót- gangandi. Slysið þykir minna um margt á annað skíðalyftuslys þegar herþota flaug á togvír skíðalyftu í Ítalíu með þeim afleiðingum að 20 fórust. New Orleans var dauðagildra: Hörmungamar lágu i loftinu „Vegna legu sinnar niðri í eins konar gryfju að baki háum varnargörðum, verður New Orleans að sannkallaðri dauðagildru ef kröftugur fellibylur ríður yfir borgina úr skakkri átt“, stendur i greininni „New Orleans verður hin nýja Atlantis“ sem birtist í 5. tölublaði tímaritsins Lifandi vís- inda árið 2002. Þar er fjallað ítarlega um þá flóðahættu sem stafi að New Orleans og fleiri borgum heims svo sem Houston og Shjanghæ. í grein- inni er bent á að varnargarðar skýli borginni í suðri og vestri fyrir Miss- issippifljótinu og í norðri komi varn- argarðar i veg fyrir að Pontchartrain- vatn færi hana í kaf. „Stærstur hluti borgarinnar stendur nú þegar neðar sjávarmáli og borgin heldur áfram að síga vegna þess að lengi hefur of miklu grunnvatni verið dælt upp til að sjá heimilum og fyrirtækjum fyr- ir vatni. Þegar vatnið hverfur leggj- ast jarðlögin saman undan þunga borgarinnar", segir ennfremur í greininni. Myndi kosta 100.000 mannslíf Greinarhöfundur telur að dagar New Orleans hljóti nánast að verða senn á enda. „Landið undir borginni heldur enn áfram að lækka samtím- is því að óseyrar Mississippifljóts, sem veitt hafa borginni náttúrulega vernd gegn hafinu, eru nú óðum að eyðast. Þetta stafar af margvísleg- um samverkandi og óheppilegum aðstæðum og það bætir síst úr skák að hér fer yfirborð sjávar hækkandi eins og annars staðar á jörðinni.“ Greinarhöfundur bendir ennfrem- ur á að samkvæmt útreikningum Louisiana-háskóla muni það kosta að minnsta kosti 100.000 manns lífið ef fellibylur komi úr skakkri átt og skelli á borginni. „Borgin er líka þannig staðsett að eiginlega er ekki um neinar öruggar flóttaleiðir að velja.“ Höfundur greinarinnar segir að margoft hafi legið nærri að illa færi þegar fellibyljir hafi farið yfir svæðið, meðal annars árið 1965 þegar fellibylurinn Betsy skildi New Orleans eftir í 2,5 metra djúpu vatni. New Orleans á kafi í vatni. Hörmungarnar hefðu ekki átt að koma yfirvöldum í opna skjöldu. Árið 1992 fór fellibylurinn Andrew framhjá borginni en olli samt mikl- um skaða og litlu munaði að borgin yrði í vegi Georgs árið 1998. Verstu spár rætast Greinin er ekki síst merkileg í ljósi Eörmunga síðustu daga þar sem verstu spár hennar hafa gengið eftir. Þó að endanlegar tölur liggi ekki enn fyrir má fullvíst telja að þeir sem fórust skipti þúsundum. Þá hefur New Orleans verið að stór- um hluta undir vatni síðustu daga. í gær var lokið við að fylla upp í gat á varnargarðinum við Pontchartra in vatn og verkfræðingar reikna með að það taki allt að 80 daga að dæla vatni af götum borgar- innar. Varnargarðarnir gáfu sig í fellibylnum enda voru þeir aðeins byggðir til að þola fellibyl af þriðju gráðu en styrkleiki Katrínar var upp á fjórar gráður. Yfirvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki séð til þess að flóðvarnir borgarinn ar væru fullnægjandi í ljósi þeirrar hættu sem að henni stafaði. „Hve oft þurfum við að horfa upp á hörmungar gera viðbún- að okkar að engu áður en við viðurkennum að við séum að leika rússneska rúll- ettu með mannslíf, lífsviðurværi fólks og heilu byggðalögin", sagði David Obey þingmaður Repúblík- anaflokksins í þessu sambandi. ■ Lifandi vfsindi. f 5. tölublaði timaritsins árið 2002 erað finna áhugaverða grein um New Orleans og þá flóðahættu sem stafar að borginni. Brautarholt 22 • Sími: 551 4003 TILBOÐSDAGAR 10 - 60% afsláttur rúmfatnaður - handklæði - rúmteppi gjafavara - barnaefni 200 kr. meterinn Glæsibæ, S. 552 0978 www.damask.is Ráðist á innanríkis- ráðuneyti íraks Að minnsta kosti tveir lögreglu- menn féllu og fimm særðust í árás uppreisnarmanna á innanríkisráðu- neyti íraks í Bagdad í gærmorgun. Árásin á rammgirta bygginguna stóð aðeins í um tíu mínútur að sögn Falah al-Hamdani, lögregluforingja. Árásir uppreisnarmanna á íraskar öryggissveitir eru tíðar í landinu en sjaldgæft er að ráðist sé í dagsbirtu gegn jafn vel vörðum skotmörkum og innanríkisráðuneytinu. Um 30 uppreisnarmenn í tíu bílum stóðu að árásinni og beittu þeir sprengju- vörpum og sjálfvirkum vopnum. Þeir hörfuðu eftir stutt átök en ekki er vitað hvort mannfall hafi orðið i þeirra röðum. Eftir árásina sveimuðu að minnsta kosti fjórar Apache og Blackhawk þyrlur Bandaríkjahers yfir svæð- inu. Þeim barst fljótlega liðsauki hersveita í brynvörðum farartækj- um sem fóru um götur miðborgar Bagdad í leit að árásarmönnunum. Á undanförnum vikum hefur ítrek- að verið varað við því að uppreisn- armenn kynnu að láta til skarar skríða. Talið hefur verið að þeir hafi í hyggju að ráðast gegn mikilvægum skotmörkum í Bagdad eins og írösk- um stjórnsýslubyggingum, erlend- um sendiráðum og hótelum þar sem erlendir verktakar dvelja. Einnig féllu tveir breskir her- menn í grennd við borgina Basra í Irak í gær þegar sprengja sprakk í vegkanti. Breskar hersveitir standa vörð á staðnum þar sem sprengja í vegarkanti varð tveimur félögum þeirra að bana í gær.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.