blaðið


blaðið - 06.09.2005, Qupperneq 18

blaðið - 06.09.2005, Qupperneq 18
26 I GARÐAR ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 blaöið Uppsetning á leiktœkjum Að mörgu að huga til að tryggja oiy< Leiktæki fyrir börn hafa tekið miklum breytingum á undanförn- um árum. Flestir sem komnir eru til vits og ára kannast við leiktæki á opnum svæðum og skólalóðum sem starfsmenn sveitarfélaga eða aðrir höfðu hannað og smíð- að, oft úr óhefluðum spítum, rekaviði, gömlum símastaurum, járnrörum og öðru sem fannst til verksins. Sá tími er hinsvegar liðinn og nú er miklum tíma og fjármunum varið í að tryggja að leikur barna endi ekki með ósköp- um, einfaldlega vegna þess að ekki var vandað til þegar leiktæki var hannað og byggt. Mikilvægt er að huga vel að öryggi barna áður en leiktæki eru keypt og sett upp. Litlar og ódýrar breytingar geta skipt sköpum með öryggi leiktækis. Leiktæki þurfa að hæfa aldri notenda Eitt þeirra fyrirtækja hér á landi sem sérhæfa sig í hönnun og uppsetn- ingu leiktækja heitir Barnasmiðjan. Hrafn Ingimundarson, starfsmaður þar, segir að fjölmarga hluti þurfi að hafa í huga þegar leiktæki eru hönn- uð. „Þegar leiktæki er valið þarf að hafa notandann i forgrunni og það þarf að tryggja að tækið sem keypt er hæfi aldri. Okkur sem erum full- orðin, og erum þá að kaupa tækin, hættir oft til að hugsa stærra og hærra en við þurfum að gera. Við einbýlis- og fjölbýlishús eru það oft- ast tveggja til sex ára gömul börn sem nota leiktækin og það þarf að hafa í huga. Einnig er gott að hafa í huga að því hærra sem leikurinn er færður upp, því betri fallvörn þarf að vera við tækið”, segir Hrafn Hann segir ennfremur að mikil- vægt sé að skipuleggja leiksvæði í heild sinni - ekki sé nóg að kaupa góð tæki og setja þau síðan bara ein- hvernvegin niður. Hann bendir til að mynda á að ef róla er á leiksvæði sé mikilvægt að gangvegur að öðru leiktæki sé ekki hafður of nálægt ról- unni því þar geti skapast hætta. Ann- að einfalt dæmi sem hann bendir á tengist líka rólum. Þar getur þyngd og hönnun sætis í rólu haft mikið að segja. Ef rólu er sveiflað þó enginn sitji í henni geti það skapað hættu. „Ef sæti rólunnar er til að mynda þung fjöl þá getur það valdið slysi en með því að hafa létta eða gúmmí- klædda setu er þessi hætta mun minni.“ Mikil breyting á stuttum tíma Hrafn segir að síðustu fimm árin hafi orðið mikil breyting til batnað- ar. Búið sé að taka upp evrópskar reglugerðir sem vinna þarf eftir þannig að húsfélög og sveitarfélög komist ekkert upp með að kaupa leiktæki sem uppfylla ekki öryggis- staðla. „Ef við berum okkur saman við Skandinavíu, þar sem staðan er hvað best í heiminum, þá stöndum við í dag nokkuð vel þó víða megi augljóslega bæta”, segir Hrafn. Hann bendir ennfremur á að víða sé hægt að fá ráðgjöf um uppsetningu á öruggum leiktækjum ef foreldrar vilja sjálfir smíða leiktæki. Einnig sé hægt að kaupa einstaka hluti í slíkt tæki, hluti sem búið er að smíða og hanna með öryggi í huga. Haustverkin í garðinum Stundum er betra að gera minna Grænn garður yfir sumartímann er mikið yndi én til að svo geti ver- ið þarf að hugsa um hann allt árið. Lítið þarf að hafa fyrir þessum hluta heimilisins yfir veturinn, en þó er að ýmsu að hyggja til að svo megi vera. Steinunn Reynisdóttir, garð- yrkjufræðingur hjá Garðheimum, segir að stundum sé betra að gera minna en meira. „Við höfum til að mynda ráðlagt fólki að hreinsa ekki ofan af beðum á haustin”, segir Steinunn. „Ástæð- an fyrir því er að það sem fellur til í garðinum hlífir plöntunum yfir vetr- artímann.” Hún segir að það sama gildi um grasið á flötinni. „Það borgar sig ekki að slá mikið inn í september, betra er að hafa grasflötina svolítið loðna yfir vetrartímann. Það verður til þess að minni mosi komi næsta vor”, segir Steinunn. Ekki á að klippa Fyrst farið er að tala um hvað ekki eigi að gera bendir Steinunn á Stundum er betra að gera lítið til að undir- búa garðinn fyrir veturinn. að ekki sé rétt að klippa tré og runna á haustin. Það eigi að gera eftir ára- mótin og fram á vorið. Þetta eigi sérstaklega við um reyniviðinn og gullregnið, en ástæðan fyrir þessu er að mikið sé um sveppagró um þetta leyti sem geti farið inn í opin sárin á viðnum. Verkin sem þarf að vinna Það borgar sig þó ekki að leggjast með tærnar upp í loft og gera ekki neitt. Steinunn bendir til að mynda á að gott sé að dreifa skeljakalki í lóð- ina á haustin til að koma í veg fyrir mosamyndun næsta vor. Ennfremur sé nú tíminn til að setja niður haust- laukana. Enn eitt sem huga þarf að er að binda upp plöntur sem gróður- settar hafa verið í sumar því annars sé hætta á að þær falli á hliðina og rótin þorni. Það þarf einnig að huga sérstaklega að sígrænum plöntum. „Það þarf að skýla þeim yfir vetr- artímann og það er gott að gera það núna”, segir Steinunn að lokum.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.