blaðið - 06.09.2005, Page 22
30 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Sundmaður í tveggja ára bann
Ólögleg lyf fundust í þvagi
Ari Gunnarsson, sundmaður úr Ár-
manni, hefur verið úrskurðaður í
tveggja ára æfinga- og keppnisbann
eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Próf-
ið var tekið eftir Bikarkeppni Sund-
sambands Islands sem haldið var 3.
júlí síðastliðinn. Á mótinu hlaut Ari,
sem er fæddur 1983, tvenn gullverð-
laun og ein silfurverðlaun. Bannið
hefur þegar tekið gildi og hefur
Sundsamband fslands, Sundráð
Reykjavíkur og Sunddeild Ármanns
sent frá sér yfirlýsingu vegna máls-
ins þar sem harmað er mjög að ís-
lenskur sundmaður skuli hafa verið
staðinn að notkun ólöglegra efna.
Sterar og efedrín
I dómi íþrótta- og ólympíusam-
bands íslands kemur fram að þegar
sýnataka fór fram viðurkenndi Ári
að hann hafi neitt efna á bannlista.
Um var að ræða örvandi efnið Ripp-
ed Fuel sem inniheldur efedrín en
auk þess sagðist hann hafa neytt
vefaukandi steranna testosteróns og
þess sem líklegt er talið að sé Deca-
Durabolin sem inniheldur vefauk-
andi sterann nandrolone. Niðurstöð-
ur rannsókna á sýninu sýndu fram
á þessi efni og auk þess reyndist hlut-
fall testosteróns á móti hormóninu
LH vera 26,6. Sé þetta hlutfall hærra
en fjórir telst vera ástæða til þess að
athuga mál viðkomandi nánar til að
ganga úr skugga um hvort svo hátt
hlutfall stafi af misnotkun testoster-
ons, sjúklegu ástandi eða líffræðileg-
um sérkennum íþróttamannsins.
Einnig kemur fram að þar sem Ari
óskaði ekki eftir því að greining færi
fram á aukasýni, skilaði ekki grein-
argerð vegna málsins og mætti ekki
á þingfestingu málsins er gert ráð
fyrir því að hann hafi ekkert við mál-
ið að athuga og viðurkenni þannig í
raun brot sitt.
Fyrsti íslenski sundmaðurinn
í áðurnefndri tilkynningu segir að
fram að þessu hafi enginn íslenskur
sundmaður fallið á lyfjaprófi enda
hafi í mörg ár verið rekinn mjög
mikill áróður um heilbrigt líferni
sundfólks, þjálfara og annarra sem
tengjast sundíþróttinni. „Um leið
og við í íslensku sundhreyfingunni
hörmum þessa niðurstöðu, strengj-
um við þess heit að auka enn á
fræðslu um heilbrigða íþróttaiðkun
fyrir sundfólk í öllum aldursflokk-
um, gerum auknar kröfur um heil-
brigt líferni keppnisfólks í sundi og
krefjumst þess að þjálfarar og aðrir
aðstandendur sundfélaga og -deilda
séu góð fyrirmynd í heilbrigðum lífs-
háttum."
Hjólreiðar
ísland bar sigurorð af
Færeyjum í landskeppni
Schumacher
óskarAlonso
tilhamingju
Michael Schumacher segir að
það þurfi ekki miklar spágáfur
til þess að gera sér grein fyrir
því að Fernando Alonso hefur
sigrað Formúlu 1 keppni sum-
arsins. Hann segir að verulega
margt þurfi að fara forgörðum
hjá Álonso til þess að nokkur
möguleiki sé fyrir aðra öku-
menn að ná honum. Það gangi
hins vegar ekki nógu vel hjá sér
og því sé málið útrætt af hans
hálfu.
Alonso er þó hógvær og segir
keppnina ekki vera búna fyrr
en stigin eru komin í hús. Nái
hann að klára keppnina í efsta
sæti verður hann yngsti sigur-
vegari formúlunnar frá upp-
hafi.
Sharapova gefur
ekkikostásér
Maria Sharapova mun ekki
gefa kost á sér í landslið Rússa
sem keppir gegn Frakklandi
á næstunni. Það verður því
Anastasia Myskina sem mun
fara fyrir rússneska liðinu í
þessum úrslitaleik Fed keppn-
innar sem er mikilvægasta
liðakeppnin í kvennatennis
og er álíka og Davis-bikarinn
í karlatennis. Þetta verður í
annað skiptið í röð sem þessar
þjóðir mætast í úrslitum
keppninnar. Þjálfari rúss-
neska liðsins heldur sama
liði og sigraði lið Bandarikj-
anna 4-1 í Moskvu í júlí.
Um síðustu helgi sigraði ísland Fær-
eyjar í hjólreiðakeppni þar sem 22
tóku þátt. Keppnin fór fram hér á
landi en þetta er í fjórða skipti sem
keppni sem þessi er haldin milli
þjóðanna. Kepptar voru fjórar um-
ferðir, tvær tímaþrautir og tvær dag-
leiðir, alls um fjórir klukkutímar af
hjólreiðum. Tímar tveggja fljótustu
manna hjá hvorri þjóð voru látnir
standa í landskeppninni.
Bestu hjólreiðamenn þjóðanna
leiddu saman hjólhesta sína í keppn-
inni og var það Gunnlaugur Jónas-
son úr hjólreiðafélaginu Hjólamönn-
um sem stóð uppi sem sigurvegari
í einstaklingskeppninni, 25 sekúnd-
um á undan næsta manni.
Gífurleg spenna
Keppnin hófst á 1 km sprettkeppni
við Nauthólsvík. Hafsteinn Ægir
Geirsson kom fyrstur í mark en
fast á hæla hans kom Gunnlaugur
Jónasson. I þriðja sæti var svo Fær-
eyingurinn Gunnar Dahl Olsen.
íslendingar höfðu því að lokinni
fyrstu þraut sjö sekúndur á Færey-
inga og fékk Hafsteinn gula treyju
til þess að klæðast sem fyrsti maður
í anda Tour de France. Hann komst
Þrátt fyrir að íslenska knattspyrnu-
landsliðið eigi þó nokkuð í land með
að ná ásættanlegum árangri í undan-
þó ekki til keppni á laugardeginum
og var það því Gunnlaugur sem tók
við treyjunni. Þann daginn voru 68
km hjólaðir við Þingvelli og að þeim
loknum höfðu íslendingar þrjár sek-
úndur á þá færeysku. Forskot Gunn-
laugs var hins vegar komið niður í 13
hundruðustu úr sekúndu.
Á sunnudaginn voru tvær umferðir.
Þá fyrri, sem var 60 km í Hvalfirði,
sigraði Gunnar Dahl og fast á hæla
hans kom Eli Christianssen, landi
keppni HM reyna íslenskir dómarar
að halda fána landsins á lofti á al-
þjóðavettvangi. Islensku dómararn-
ir, Garðar Örn Hinriksson og Egill
Már Markússon, munu dæma leiki í
undankeppni Evrópumóts landsliða
karla undir 21 árs aldri á þriðjudag
og Kristinn Jakobsson dæmir svo
leik í undankeppni HM 2006 á mið-
vikudag.
Finnland, Belgía og Lettland
Kristinn verður dómari í viðureign
Finnlands og Makedóniu í undan-
keppni í Helsinki á miðvikudaginn.
Honum til halds og trausts verða
þeir Eyjólfur Ágúst Finnsson og
hans. Gunnlaugur var þá einni sek-
úndu aftar. Að loknum 129 km var
því munurinn á þremur efstu mönn-
um innan við ein sekúnda. Úrslitin
réðust svo í fjórðu og síðustu um-
ferð í tímatöku sem Hafsteinn Æg-
ir sigraði, tóíf sekúndum á undan
Gunnlaugi. Gunnlaugur vann þar
með einstaklingskeppnina og íslend-
ingar landskeppnina.
Ólafur Ingvar Guðfinnsson sem að-
stoðardómarar og Jóhannes Valgeirs-
son verður varadómari. Á þriðjudag
dæmir Garðar örn leik undir 21 árs
landsliða Belgíu og San Marínó í
Belgíu. Hjálparkokkar hans í leikn-
um verða þeir Pjetur Sigurðsson og
Gunnar Sverrir Gunnarsson. Vara-
dómari verður Eyjólfur Magnús
Kristinsson. Sama dag og í sömu
keppni verður Egill Már Markús-
son að störfum á leik Lettlands og
Slóvakíu. Honum til aðstoðar verða
Einar Sigurðsson og Sigurður Óli
Þórleifsson. Varadómari verður
Magnús Þórisson.
íslenskir dómarar dæma erlendis
Króataríárekstri
Ekið var á nokkra lykilmenn
í króatíska landsliðinu þegar
þeir voru á leið til Keflavíkur
frá Reykjavík. Meðal annars
var Juventus-maðurinn Robert
Kovac í bílnum. Mennirnir
voru á leið heim þar sem leik-
bönn og veikindi koma í veg
fyrir að þeir geti haldið áfram
undirbúningi fyrir HM í Þýska-
landi í þessari leikjasyrpu.
Fylkir- ValurÍ40+
Valur og Fylkir mætast í
dag í Árbænum í úrslitaleik
íslandsmótsins í knattspyrnu
skipað leikmönnum 40 ára og
eldri. Leikurinn hefst klukk-
an 18.00 á Fylkisvelli. Þetta
er í fjórða skipti sem mót er
haldið í þessum aldursflokki.
CollinatilJapan
Þeir sem stjórna knattspyrnu-
málum í Japan vonast til að fá
Pierluigi Collina til að dæma
í knattspyrnudeildinni þar.
Collina, 45 ára, lagði flautuna
nýverið á hilluna sökum reglna
um aldur dómara. Hann
hefur lengi þótt einn allra
besti dómarinn í heiminu og
segja forráðamenn í Japan að
með Collina á öðrum enda
flautunnar muni stuðnings-
menn skilja vald dómarans.
Luke Young í byrjunarliðinu
Hinn 26 ára gamli varnarmað-
ur Charlton, Luke Young, hefur
aftur verið valinn í byrjunarlið
enska landsliðsins undir stjórn
Sven Göran Eriksson. Það þótti
heldur óvænt þegar hann kom
inn í byrjunarliðið fyrir leik
Englands og Wales um helgina
eftir að Gary Neville gat ekki
spilað sökum meiðsla. Hann
hefur greinilega náð að sanna
sig fyrir sænska þjálfaranum
þar sem hann er settur á völl-
inn með hinum tíu byrjunar-
leikmönnum enska liðsins.
Skotar fá tæknivillu
UEFA hefur dæmt undir 21
árs liði Skotlands 3-0 ósigur í
leik gegn Italiu í undankeppni
Evrópukeppninnar fyrir að
hafa sett ólöglegan leikmann
í leikinn. Skotar báru fyrir sig
að um villu hjá stjórnendum
hefði verið að ræða og buðu
UEFA og ítalska knattspyrnu-
sambandinu afsökunarbeiðni.
UEFA tók málflutning
Skota ekki til greina.
Mourinho óánægður
Jose Mourinho er óánægður
með leik Chelsea það sem af
er leiktíðinni ef marka má orð
Claude Makalele. Makalele
er sjálfur sammála þessu og
varar við því að hin liðin eigi
eftir að sækja í sig veðrið á
næstunni. Þrátt fyrir yfirlýs-
ingarnar situr Chelsea i efsta
sæti ensku deildarinnar.
Allt á einum stað
fyrir bílinn þinn...
bilaattan.is
Smiðjuvegi 30
Sími 587 1400
Vwtiun
Smur»l64
Verslun • Smurstöð • Bílaverkstæði • Dekkjaverkstæði
mctm