blaðið - 06.09.2005, Qupperneq 30
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 blaöÍA
38 I FÓLK
SMÁborcrarinn
Úrvalsdeild
á Alþingi
Smáborgarinn hefur áhuga á
pólitík. Þegar hann horfir yfir
hið háa Alþingi hvarflar hins
vegar stundum að honum að
hann ætti að finna sér annað
áhugamál. Það er nefnilega
ákaflega erfitt að taka mark á
íslenskum alþingismönnum
sem minna flestir á venjulega
kontórista. Þeir sýna ekki sjálf-
stæð vinnubrögð og virðast hafa
fáar hugmyndir aðrar en þær
sem flokkurinn hefur matað þá
á. Þetta finnst Smáborgaranum
ekki gott. Honum finnst að á
Alþingi eigi að sitja vel upplýst
og gáfað fólk sem kunni að rök-
ræða og skilgreina og sé auk
þess sneisafullt af hugmyndum.
Smáborgarinn veit að hann er
að fara fram á mikið en honum
finnst það líka bara allt í lagi. Ef
reka á þjóðfélagið af skynsemi
þarf að kalla til allt besta fólkið
og besta fólkið er ekki á þingi.
Smáborgarinn vill lokka
þetta fólk á þing. Ýmsu þarf að
breyta til að slíkt takist. Eins
og til dæmis það að hækka laun
alþingismanna all verulega. Al-
þingismenn eiga að vera á rífleg-
um forstjóralaunum. Svo góðum
launum að afburðafólk hiki ekki
við að bjóða sig fram til þings.
Um leið er ráð að fækka alþing-
ismönnum um helming. Það er
alveg nóg að hafa 20-30 manns
á þingi. Þá verður Alþingi orðið
eins og úrvalsdeild. Alveg eins
og það á að vera. Smáborgarinn
sér fyrir sér eldhúsdagsumræð-
ur þar sem menn tala gullaldar
íslensku, rökræða fimlega eins
og forn-Grikkir og hafa skarp-
ar gáfur á við Goethe. Þá verður
nú aldeilis gaman að vera þegn
í þjóðfélaginu. Allir ráðamenn
þjóðarinnar gáfaðri en maður
sjálfur.
Smáborgarinn gerir ráð fyrir
að i þeirri úrvalsdeild sem Al-
þingi verður muni verða nokkr-
ir lögfróðir menn sem muni
setja réttlát lög og afnema þau
vitlausu. Svo verða þarna líka
forstjóratýpur sem bera hag
viðskiptalífsins fyrir brjósti og
einnig lýrískir menntamenn
með menningarlegan metnað
sem þeir vilja berjast fyrir á
þingi fremur en að verða há-
skólarektorar.
Framboðslistar flokkanna
munu verða afar forvitnilegir
og kunna að bera vott um gáfna-
keppni en þá mun líka koma
í ljós hvar hinar skörpu línur
greindarinnar liggja í pólitík.
Of oft hefur það gerst að þjóð-
in hefur kosið yfir sig vitlausa
stjórnmálamenn. Ef gripið verð-
ur til aðferðar Smáborgarans
verður komið í veg fyrir það.
Það verður ekki lengur vitlaust
fólk í framboði þótt það kunni
reyndar að vera í vitlausum
flokkum.
SU DOKU
talnaþraut
Lausn á 45.
gátu verður að
iinna i
blaðinu á
morgun.
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða
tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og
1 þar til gerð box sem innihalda 9
reiti. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í hverri línu og innan hvers
box. Allar gátur er hægt að ráða út
frá þeim tölum sem gefnar eru upp
í upphafi. Leitað er að talnapörum
og reynt að koma þeirri þriðju fyrir.
Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta
boxinu vinstra megin og því neðsta
líka, ætti ekki að vera erfitt að átta
sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu.
Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt
að skrá þá hjá sér og halda áfram.
Lausn á 44. gátu
lausn á44. gátu
4 9 5 6 1 7 2 3 8
7 6 2 5 8 3 4 1 9
8 1 3 2 4 9 7 6 5
3 4 9 7 2 5 6 8 1
2 5 1 8 3 6 9 4 7
6 8 7 4 9 1 5 2 3
1 2 4 9 5 8 3 7 6
9 7 8 3 6 2 1 5 4
5 3 6 1 7 4 8 9 2
45. gata
8 4 7 2
4 3 6
5 1 9
3 6 7
6 9 41
3 5 1
2 7 1
5 9 8
3 1 8 5
Rimœlisgling
ur Beyonce
Sumar stúlkur eru heppnari en
aðrar og ef skartgripaeign er mæli-
kvarði er Beyonce ein af þeim
allra heppnustu. Kærastinn,
Jay-Z, splæsti nefnilega í
mjög dýrt glingur til að
gera 24 ára afmæli hennar
eftirminnilegt. Rapparinn
gróf upp úr vösum sínum
ansi háar upphæðir til
kaupa á viðeigandi skart-
gripum fyrir stjörnuna.
Fyrstan mætti telja dem-
ants- og rúbínhring
semmetinnerái.2millj- a
ónir sterlingspunda. En
það dugði ekki til, því hann
bætti við þrjúhundruð þús-
und punda armbandsúri
í stíl. Kærustuparið,
sem ætlar sér að ganga
í það heilaga í næsta
mánuði, er frægt fyrir
smekk sinn fyrir dýr-
um skartgripum og
hönnunarfötum. Hvað
ætli brúðarkjóllinn og
hringurinn komi eigin-
lega til með að kosta?
ar sig upp
Lítið hefur heyrst í Michael Jack-
son síðan í réttarhöldunum yfir
honum en kjaftasögur eru farnar
að heyrast um meiriháttar átak
sem hann er í. Hann er sagður
halda sig í Bahrain, þar sem hann
lyftir lóðum og undirbýr endur-
komu sina á sviðið. Hann ætlar
líka að fá sér nýjar sérsniðnar
hárkollur og fara aðeins að slaka
á í andlitsfarða notkuninni. Þetta
ku allt vera hluti af átaki sem for-
eldrar hans undirbjuggu til að
gera honum kleift að syngja aft-
ur. Fyrir aðdáendur hans eru svo
bestu fréttirnar að hugsanlega er í
bígerð langtímasamningur um að
syngja í Vegas. ■
Courteney rœðir
sögurnar um
lystarstol
Courtney Cox hefur nú lýst skoðun sinni á kjaftasögunum
um að hún þjáist af lystarstoli. Hin 41 árs fyrrum „vinur“
segir hreinskilnislega að hún sé bara eins og hún vilji
sjálf vera. Þegar hún er spurð út í skoðun sína á því að
hafa verið tahn of grönn í þáttunum svarar hún:
„Ég finn ekki til ábyrgðar. Ef mér lík-
ar vel við mig á einhvern ákveðinn
hátt, ætti ég ekki að þurfa að
taka ábyrgð á lystarstolsfar-
aldri um allan heim út afþví.
Ég ræð ekki yfir neinum
nema mér sjálfri og ef
ég er ánægð með mína
þyngd, þá held ég
henni. Ég þjáist ekki
af átröskun." Hún
hélt áfram og tjáði
sig um fjölmiðla:
„Égmanaðeittblað
skrifaði:„Courten-
ey Cox talar um
búlímíu sína, “Ég
sagði ekkert um það.
Þau spurðu mig og ég
svaraði að ég myndi
ekki kasta upp þótt
þau borguðu mér fyrir.
Af hverju ætti ég svo sem
aðgeraþað?”
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ ÞNú er góður tími til að takast á við ný verk-
efni eða laða að nýja kúnna. Sýndu frumkvæði og
láttu hlutina gerast
V Það er hægt að gleyma sér í framagirni en
ekki ^leyma að leika pér. Leyfðu hjartanu að ráða
brot ur aegi og einhver gæti tekið eftir því, -og þér.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Reyndu að kynnast einhverjum í vinnunni
sem þu hefúr ekki talað við áður. Það er eott að
þekkja ólíkt fólk og breikka þannig sjóndeildar-
nringmn.
V Þú ert allur í tilraunamennskunni þessa dag-
ana. Reyndu að vera opinn fyrir því óvænta í ást-
armálunum líka því ástin gæti birst á ólíklegustu
stöðum..
©Fiskar
(19.febrúar-20. mars)
$ Þú sjálfur ert lykillinn að þeim nauðsynlegu
framfbrum sem þurfa að eiga sér stað. Sannfærou
yfirmanninn um það og þú ert á grænni grein.
V Vertu viss um hvað þú vilt og vilt ekki í ástar-
málunum. Stiörnurnar segja að nú sé rétti tíminn
til að huga að framtíðinm og laga það sem betur
mætti fara.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
$ Persónutöfrar þínir eru meira en nægjanlegir
til að vinna þau malefni sem liggur á. Slepptu þér
og allt gengur betur.
V Þú þarft ekki að lyfta fmgri í dag —lyftu bara
augabrun eða brostu f rétta átt og það koífaUa allir
fyrir þér. Þú gætir alveg vanist þessu.
Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Þú ert fullur af jákvæðri orku og eetur beitt
henni á uppáhaldsverkefnin þín. Einnver gæti
þurft á þínum ráðum að halda en að mestu leyti
færðu fnð fyrir þig í dag.
V Gefðu þér það sem þú þarft mest á að halda:
Lestu góða bók og borðaðu súkkulaði og fsrst þú
ert að pessu, fáðu þig lausa/n úr vinnu. Elskaðu
sjálfa/n þig og heimurinn elskar þig líka.
I Tvíburar
. 12.1. maí-21. jý.nfl.......
$ Það er rafmagn í kringum þig og mannleg
saraskipti ættu þvfað ganga vel i dag. Þu ert í stuði
í vinnunni og það er kraftur í þér.
V ÞRafmagnið leiðir út i rómantikina lika og all-
ir vilja eyða með þér tíma enda glóirðu bókstaflega.
Haltu áfram svona.
©Krabbi
(22. júnf-22. JÚIO
$ Hugmyndir fljúga á milli manna í dag og þú
gætir átt nokkrar góðar. Hentu þér út i samvinnu
eða fáðu aðra til að bakka þinar nugdettur upp.
V Jafnvel áður en þú ert búin/n að uppgötva
hvað þú vilt hefur það birst beint fyrir framan nef-
ið á þér. Á meðan allt gengur svona vel, berðu upp
mikuvægustu óskina. Segðu hana upphátt..
Ljón
(23. júlf- 22. ágúst)
$ Þú ert réttur maður á réttum tíma og það taka
allir effir þér. Þú gætir haff áhrif á framvindu mála
i vinnunni þinni. Nýttu þér það..
V Þetta lltur kannski ekki út fyrir að vera góð-
ur dagur fyrir rómantik en það væri synd að sóa
honum því það er mikil orka i loftinu. Reyndu að
daðra eins mikið og þú mögulega getur.
Meyja
(23. ágúst-22. september)
$ Nú er tíminn til að láta bera á sér. Segðu
skrýtlu á fundum dagsins eða farðu i fyndinn bol
V Geturðu ekki ákveðið þig með eitthvað eða
einhvern? Hittu einhvern vm pinn og ræddu um
það. Oft hjálpar að tala um hlutina, þá verða þeir
skýrari fyrir manni.
©Vog
(23. september-23. október)
$ Þú hefur óþnótandi orku til félagsmála um
þessar mundir. Stökktu á einhvern vinnufélaga
og dragðu hann með á djammið. Einnig er góður
timi tilað sanka að sér nyjum sambönaum.
▼ Listræna hliðin þín blómstrar núna. Málaðu,
semdu ljóð, taktu myndir, búðu til styttur. AUt það
sem þér dettur í hug og er skapandi er þess virði
að kanna svolítið betur.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
$ Upplýsingarnar sem þijg vantar gengur eitt-
hvað erfiðlega að ná í, en naíðu engar áhyggjur.
Þetta skýrist allt í lok dagsins.
^ Þér líður stórkostlega, en hjartað er eitthvað
efins. Vertu ekkert að velta þér upp úr því. Njóttu
stundarinnar og vertu með það á nreinu að taka
engar ákvarðamr íyrr en þú ert tilbúin/n.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
í Þú skemmtir þér vel að fara yfir mismunandi
möguleika fyrir íramtíðina. Þú þarft samþykki
yfirmanna en það verður miklu auðveldara en þú
nélst.
V í dag geturðu sannfært alla um það sem þú
þarft, iafnt stór mál sem smá. Stjarna þín sldn
skært í dag.