blaðið - 17.10.2005, Síða 2
2 I INWLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 blaöiö
Fjölmiðlar:
Skorður á
eignarhald
1 ályktun landsfundar sjálf-
stæðismanna um menningar-
mál var vikið að lagaumhverfi
fjölmiðla og er þar mælst til
þess að lagaskorður verði
settar við þvi að fyrirtæki með
yfirburðastöðu á markaði geti
jafnframt átt í íjölmiðlum. Á
hinn bóginn er ekki fyllilega
ljóst hvaða leið landsfund-
urinn vill fara í því, en fram
hefur komið að Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, mennta-
málaráðherra, og nýkjörinn
varaformaður flokksins, er ekki
á sama máli og Davíð Oddsson,
fráfarandi formaður, um það.
1 ályktuninni sagði að
nauðsyn rammalöggjafar um
starfsemi fjölmiðla hefði orðið
æ augljósari upp á síðkastið, en
þessi veigamikli og viðkvæmi
þáttur lýðræðislegrar umræðu
þyrfti að njóta óskorðaðs
trausts almennings. „Koma
þarf í veg fyrir samþjöppun og
einokun á fjölmiðlamarkaði svo
stórir aðilar á markaði fái ekki
neytt aflsmunar til þess að hafa
áhrif á fréttaflutning og skoð-
anamyndun í landinu. Skorður
á eignarhaldi fjölmiðla kunna
að vera nauðsynlegar til að ná
þeim markmiðum að tryggja
heilbrigða samkeppni og fjöl-
breytni á fjölmiðlamarkaði."
Ennfremur sagði að í
kjarna sjálfstæðisstefnunnar
fælist andóf gegn einok-
un og hringamyndun.
Stjórnarskráin:
Synjunarvald
forsetans út
í ályktun um réttarfars- og
stjórnskipunarmál, sem
samþykkt var á landsfimdi
Sjálfstæðisflokksínsýségír að
eðlilegt sé að I. og II. kafli
stjórnarskrárinnar verði færðir
til nútímalegra horfs. Þar á
meðal að skýrar verði kveðið
á um inntak þingræðis, stöðu
forseta lýðvéldisins og myndun,
eðli og valdheimildir ríkisstjórn-
ar. Óhjákvæmilegt er því að
ákvæði 26. greinar um synjunar-
vald forseta verði fellt úr gildi.
Miðstjórn
Níu konur
kosnar
Kosningu til miðstjórnar
Sjálfstæðisflokksins lauk um
hádegisbilið í gær. Kosið var
um eflefu laus sæti í miðstjórn-
inni og sóttust tuttugu og
fjórir einstaklingar eftir því
að ná kjöri. Athygli vekur að
af eflefu einstaklingum sem
kosnir voru í miðstjórnina að
þessu sinni eru nfu konur.
Nýrformaður Sjálfstœðisflokksins
Geir fékk
afgerandi kosningu
Tímamót urðu í íslenskri stjórnmálasögu þegar Geir H. Haarde
var kjörinn formaður Sjálfstœðisflokksins á landsfundi flokksins
sem lauk í gcer. Hannfékk afgerandi kosningu eða rúm 94 prósent
greiddra atkvœða.
Geir H. Haarde fékk afgerandi
kosningu eða alls 94,3% gildra at-
kvæða. 23 aðrir sjálfstæðismenn
hlutu samtals 65 atkvæði. Auðir
seðlar voru 40.
Ábyrgðamesta starf á íslandi
Geir sagðist í ræðu sinni vera þakk-
látur fyrir það traust sem hann nyti
innan Sjálfstæðisflokksins. „Ég
mun leggja mig fram um að rísa
undir þessu mikla trausti sem mér
er sýnt,“ sagði nýi formaðurinn.
Hann sagði að starf formanns Sjálf-
stæðisflokksins væri ábyrgðarmesta
starf á íslandi.
Hann sagði ljóst að flokkurinn
væri sameinaður eftir þennan lands-
fund. „Við erum ósigrandi þegar við
stöndum saman og þá eru andstæð-
ingarnir hræddir við okkur.“ Geir
sagði í ræðu sinni að mikilvægt væri
að efla starf flokksins fyrir komandi~
sveitarstjórnarkosningar og sagði
auk þess mikilvægt að virkja þann
stuðning sem flokkurinn nyti nú.
Davíð kveður
Davfð_ Oddsson, fráfarandi formað-
úrjíagðist hrærður yfir þeim mikla
stuðningi sem nýi formaðurinn fékk
Blaöit/Frikki
og sagðist geta horfið af hinu pólit-
íska sviði „glaður og keikur". Hann
sagðiþýðingarmikið að Geir nytivel-
gengni í formannsstarfinu því þegar
formanjúSjáJfstæðisflokksins gengi
vel þá gengi þjóðinni vel. ■
Samhent forysta
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hlaut örugga kosningu í
varaformannssœtið á landsfundi Sjálfstœðisflokksins ígær. Kristján
Þór Júlíusson tók tapinu karlmannlega.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
var kjörin varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins með 728 atkvæðum á
landsfundi flokksins. Það eru 62,3%
atkvæðá og er því óhætt að segja að
hin nýja forysta hafi traustan stuðn-
ing að baki sér. Kristján Þór Júlíus-
son, bæjarstjóri á Akureyri, laut í
lægra haldi fyrir Þorgerði Katrínu
með 424 atkvæði, en hann bar sig
karlmannlega eftir kjörið og sagði
að mikilvægt væri fyrir flokkinn
að standa þétt saman að baki nýrri
forystu.
I ávarpi sínu til fundarins eftir
að hún var lýst réttkjörinn varafor-
maður sagðist Þorgerður Katrín
afar þakklát fyrir hinn mikla og af-
gerandi stuðning við sig. Taldi hún
mjög mikilvægt fyrir hina nýju for-
ystu að fá slíkt vegarnesti svo öllum
yrði ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn
stæði heill og óskiptur þó breyting-
ar væru gerðar í brúnni. „Þegar
Sjálfstæðisflokkurinn er á flugi er
öll þjóðin á flugi,“ sagði Þorgerður í
ræðu sinni.
Varaformaðurinn vék máli sínu
sérstaklega að fráfarandi formanni
og þakkaði honum „drengilega og
einlæga kosningabaráttu“.
Þorgerður Katrín sagði ljóst að
mikið og erfitt starf væri framund-
an hjá sjálfstæðismönnum, sveitar-
stjórnarkosningar á komandi ári og
eins styttist í þingkosningar. Mikil-
vægt væri að þjóðin fyndi samhljóm
með Sjálfstæðisflokknum í kosning-
Blatiö/Frikki
unum og það kæmi í hlut forystunn-
ar og trúnaðarmanna flokksins að
vinna það starf. ■
Upplýsingatœkni:
Rafrænar
kosningar
skoðaðar
I ályktun landsfundar Sjálf-
stæðisflokks um upplýsinga-
tæknimál segir að kanna
skuli með hvaða hætti notkun
upplýsingatækni geti einfald-
að framkvæmd kosninga án
þess að öryggi og leynd þeirra
sé stefnt í hættu. Með þessu
vill flokkurinn opna á þann
möguleika að fara í rafrænar
kosningar þó ekki komi fram
hvenær það eigi að verða.
í sömu ályktun er sérstak-
lega íjallað um persónuupp-
lýsingar og sagt að tryggja
þurfi leynd þeirra, án þess að
hömlur séu settar á starfsemi
fyrirtækja eða framgang nýrrar
tækni. Gera má ráð fyrir að
nýleg birting á tölvupósti
Jónínu Benediktsdóttur hafi
haft þarna eitthvað að segja.
Orkumál:
Vilja einka-
væða Lands-
virkjun
I ályktun sjálfstæðismanna
um orkumál var einkavæðing
Landsvirkjunar lögð til, án
þess þó að sérstök áhersla
væri lögð á þann þátt.
I ályktuninni sagði að með
nýjum raforkulögum hefði ver-
ið lagður grunnur að markaðs-
umhverfi í raforkuviðskiptum,
með samkeppni í framleiðslu
og sölu raforku og þeirri skoð-
un lýst að æskilegt væri að nýir
aðilar kæmust inn á markað
svo samkeppni væri virk.
Minnt var á að orkufyrirtæki
landsins væru enn að mestu í
opinberri eigu, en hugmyndir
væru uppi um sameiningu og
samstarf nokkurra þeirra. „Við
sameiningu orkufyrirtækjanna
skal taka tillit til þess að veru-
leg hagræðing náist, samkeppni
skerðist ekki og hugað verði
að því að einkavæða a.m.k.
hluta starfsemi orkufyrir-
tækja, þ.m.t. Landsvirkjun, á
komandi árum. Til þess að svo
megi verða þarf að setja lög
um nýtingarétt auðlindanna.“
Auglýsiiujadeild 510-3744
LilELIIiS
EGLA bréfabindi frá MÚLALUNDl
fást í næstu bókaverslun
Við kaup á EGLA
bréfabindum er stutt við
bakið á mörgum sem
þurfa á því að halda.
Veljum íslenskt!
\i
Múlalundur sími 562 8500
www.mulalundur.is
Á i
i.: k
\ Á V
(3 Heiðskírt (3 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað
Rigning, lítilsháttar Y// Rigning 9 9 Súld Ý. 't' Snjókoma
9 *
\j~j Slydda Snjóél \-j <
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madríd
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
Parls
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vfn
Algarve
Dublin
Glasgow
14
22
12
08
13
12
09
10
16
20
22
10
12
18
09
18
08
11
10
20
14
14
5°
0
//
/ //
%
//
///
10°
10°
///
//
/ //
//
/ //
Ámorgun
9C
Veðurtiorfur í dag Id: 18.00
Veðursíminn
Byggt á upptýsingum frá Veöurstofu ísiands
///
W*'///
//
/ //
9°