blaðið


blaðið - 17.10.2005, Qupperneq 6

blaðið - 17.10.2005, Qupperneq 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 blaöiö Austurland: Enn mótmæli gegn álveri Slagorð gegn Alcoa blöstu við íbúum á Austurlandi á föstu- daginn. Skiltin voru á Kaupfé- lagshúsunum á Seyðisfirði og Egilsstöðum og á þéttbýlisskilti utan Egilsstaða í gærmorgun. Annars vegar hafði verið ritað Alcoa - go home eða Alcoa - farðu heim og hins vegar Alcoa greeds, Iceland bleeds eða Alcoa græðir, íslandi blæðir. Lögreglan á Egilsstöðum vissi ekki hverjir voru að verki. ■ Líkamsárás: Réðst á mann með hnífi Lögreglan á Selfossi handtók karlmann á fertugsaldri upp úr miðnætti aðfaranótt sunnu- dags fyrir að leggja til annars manns með hnífi á skemmti- stað í bænum. Sá sem varð fyrir árásinni slasaðist minniháttar að sögn lögreglu. Árásarmað- urinn situr nú bak við lás og slá og bíður yfirheyrslu. ■ Eldri borgarar: Könnun um búsetukosti Félagið óoplús í Hafnarfirði ætlar á næstu dögum að kanna hug eldri borgara í sveitarfé- laginu um hvernig þeir vilji að búsetumálum þeirra verði hátt- að í framtíðinni. I tilkynningu frá samtökunum í gær segir að eldri borgarar í Hafnarfirði hafi ekki áður verið spurðir beint um eigin mál, óskir og langanir. I könnuninni nú á að kanna hvort eldri borgarar hafi áhuga á að búa í íbúðum í blokkum, htlum raðhúsum, sambýlum, dvalarheimilum eða í lidum þjónustukjörnum. Gert er ráð fyrir að könnuninni verði lokið fyrir 25. október og má gera ráð fyrir að niðurstöður hennar liggi fyrir fljótlega upp úr þvi. ■ GÓÐHEILSA GULU BETRl www.nowfoods.com Mikill munur á könnunum Yfir 10% munur er áfylgi Sjálfstœðisflokksins í Reykjavík í tveimur nýlegum skoðanakönn- unum. Gallup segirfylgi flokksins vera 56% en Félagsvísindastofnun segirþað 46% Báðar kannanirnar sem um ræðir eru nýlegar. Sú fyrri var gerð af fyrir- tækinu Gallup og var meðal annars sagt frá niðurstöðum hennar hjá RUV 23. septembersíðastliðinn. Hin könnunin var gerð af Félagsvísinda- stofnun Háskóla Islands og voru niðurstöður hennar kynntar nú um helgina. Samkvæmt könnun Gallup fengi Sjálfstæðisflokkurinn rúmlega 56% atkvæða en fylgi flokksins mæl- ist hins vegar tæp 46% í könnun Fé- lagsvísindadeildar. Munur er á fylgi allra flokka f könnununum tveimur. Hjá Gallup mælist Samfylkingin með tæp 28% og Vinstri-grænir með rúm 11% en Félagsvísindadeild segir fylgi Samfylkingar tæp 31% og Vinstri-grænna tæp 15%. Framsókn- arflokkur og Frjálslyndi flokkurinn mælast síðan með mun minna fylgi í báðum könnunum. Munur á vinnubrögðum? Eftir stendur að munurinn á fylgi Sjálfstæðisflokksins er mjög mikill og í raun meiri en svo að hægt sé að skýra hann með fylgisbreytingu á þeim tíma sem leið á milli gerð þessara tveggja kannana. Sérfræð- ingar sem Blaðið ræddi við í gær segja að munur á framkvæmd gæti haft einhver áhrif. Kannanir séu oft framkvæmdar á þann hátt að fyrst er spurt hvað viðmælandi ætli að kjósa í næstu kosningum. Ef við- komandi getur ekki svarað því er haldið áfram og t.d. spurt hvað við- komandi myndi kjósa ef kosið yrði í dag. Ef ekki kemur svar gæti næsta spurning verið - er líklegra að þú kysir þetta eða hitt? Allt þetta er gert til að fá sem hæst svarhlutfall og um leið meiri nákvæmni. Hefðin sé hins vegar sú að vinstrimenn séu frekar óákveðnir um hvað þeir ætli að kjósa og því gæti aukin eftirfylgni aukið fylgi vinstri flokkanna í skoð- anakönnunum. Enginn af þeim sem Blaðið ræddi við í gær gat hins vegar fullyrt um að þetta væri skýringin á mismunandi niðurstöðum kannan- anna tveggja. ■ Mikill munur er á tveimur skoðanakönnunum sem gerðar voru með stuttu millibili á kjörfylgi stjórnmálaflokkanna í Reykjavík. Mestur munur mælist á fylgi Sjálfstæðisf lokksins, eða rúm 10%. Munur á mældu fylgi annarra flokka er mun minni. BlaÖið/SteinarHugi 250 skákir á 33 tímum Skákmaraþoni Hrafns Jökulssonar i Kringlunni lauk um helgina eftir að forseti Hróksins hafði teflt 250 skákir án þess að unna sér hvíldar í 33 klukkustundir. Af skákunum 250 tapaði Hrafn aðeins 17 skákum og gerði 35 jafntefli.Tilgangur skákmaraþons Hrafns var söfnun vegna skáklandnáms Hróksins á Grænlandi og safn- aðist fyrir um 500 skákborðum handa krökkum á Austur-Grænlandi. Byggingaverk- eða tæknifræðingar Ris ehf óskar eftir að ráða 2-3 kraftmikla og duglega starfskrafta til starfa. Starfssvið: # Tilboðs- og útboðsgerð # Magnútreikningur # Verkefnastjórnun # Verkáætlanagerð # Byggingastjórnun # Hönnunarstörf Menntunar- og hæfniskröfur: # Byggingarverk- eða tæknifræðingur # Reynsla af tilboðs- og útboðsgerð # Frumkvæði og sjálfstæði í starfi # Reynsla af sambærilegu starfi æskileg #/!,,, Ris ehf er byggingarfyrirtæki sem var stofnað árið 1966. Verkefnin eru umfangsmikil og er fyrirtækið virkt á útboðsmarkaði auk þess að byggja og selja íbúðir og atvinnuhúsnæði i eigin reikning. Hjá Ris ehf starfa I dag um 100 manns. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að skila inn umsóknum á skrifstofu fyrirtækisins að Skeiðarási 12,210 Garðabæ. Umsóknarfrestur er til og með 20.október nk. Nánari upplýsingar gefa: Kristinn Jörundsson í sima 693-3343 og Jón Gunnar Sævarsson í síma 663-7632. Skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt Karlmaður á sextugsaldri var í Héraðsdómi Vestfjarða í síðustu viku dæmdur í 10 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir fjár- drátt í opinberu starfi. Maðurinn dró sér rúmlega 17 milljónir króna í yfir 100 færslum en endurgreiddi féð að verulegu leyti á því tímabili sem ákæran nær til og hefur nú endurgreitt féð að fullu. Litið var . til þess við ákvörðun refsingar að ' ákærði gerði enga tilraun til að fela brot sitt, játaði það og lét sjálf- ur af starfi vegna þess. Þá hefur hann ekki sætt refsingu áður og hefur endurgreitt allt það fé sem hann dró sér. Til þyngingar var aftur á móti litið til þess hversu mikið fé maðurinn dró sér í opin- beru starfi. ■ .^<1 4 a t >4

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.