blaðið - 17.10.2005, Page 8

blaðið - 17.10.2005, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 bla6iö Fimm her- menn falla í Bagdad Fimm bandarískir hermenn létu lífið þegar sprengja sprakk við vegkant skammt vestur af Bagdad um helgina. Bíll her- mannanna ók yfir sprengjuna í bænum Ramadi, í hjarta þess svæðis sem súnní-arababar ráða. Mikið hefur verið um of- beldi í Ramadi að undanfbrnu og var meðal annars skotið á kosningamiðstöð í bænum í gær á meðan almenningur greiddi atkvæði í kosningunum í landinu. Þá brutust út átök milli bandarískra hermanna og heimamanna í miðbænum. Tæplega 2000 bandarískir hermenn hafa látíð lífið í Irak frá því að innrásin í landið hófst í marsmánuði árið 2003. Pakistan Allt að 100 þúsund manns létust í jarðskjálft- anum Stöðugt finnast fleiri lík eítir jarðskjálftann sem reið yfir Pakistan. Nú þegar hafa yfir 40 þúsund lík fundist og Pervez Musharaff, forseti landsins, segir að tala látinna muni hugsanlega fara yfir 100 þús- und. Miklar rigningar voru á svæðinu um helgina og hafa björgunaraðgerðir gengið erfið- lega. Talið er að tvær milljónir manna hafi ekkert húsaskjól en aðeins um 18 þúsund tjöldum hefur verið dreift til þurfandi íbúa. Miklir erfiðleikar eru í heilbrigðisþjónustunni, en yfir 60 þúsund manns slösuðust í skjálftanum. Mjög kalt er á nótt- unni á skjálftasvæðinu, sem er í íjalllendi, og er óttast að margir þoli ekki að hýrast úti í þeirri veðráttu sem nú er. Musharref forseti hefur metið tjónið eftir skjálftann á um 5 milljarða dala. Kosningar í írak Rice bjartsýn á að stjórnar- skráin hafi verið samþykkt Góð kosningaþátttaka. Þrír afhverjumfjórum atkvœðisbœrra manna í Bagdad greiddu at kvœði. Súnni-arabarfjölmenna á kjörstaði. Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist bjartsýn á niðurstöður í atkvæðagreiðslunni um stjórnarskrá Iraks, en milljónir íraka gengu að kjörborðinu í gær. Rice segist reyndar ekki vera viss um útkomuna, en að vonandi verði stjórnarskráin samþykkt. Rice sagð- ist í samtali við fréttamenn í Lund- únum, þar sem hún er stödd, hafa rætt við Zalmay Khalilzad, sendi- herra Bandaríkjanna í írak, í síma og hann hafi verið jákvæður í um- sögnum sínum um kosningarnar. Talið er að það taki marga daga að telja atkvæði í kosningunum en greidd voru atkvæði á um 5.800 stöð- um í landinu. Talið er að kosninga- þátttaka hafi verið nægilega mikil til að kosningarnar teljist löglegar og að niðurstaðan sé marktæk. Fare- ed Ayar, sem sæti á í kjörnefnd, seg- ir að írakar hafi sent skýr skilaboð til heimsbyggðarinnar og að lands- menn hafi áttað sig á þvi að besta leiðin til að eiga við pólitísk vanda- mál sé að greiða atkvæði. Samkvæmtsíðustutölumvarkosn- ingaþátttaka allt að 75% í Bagdad og sjö öðrum héruðum í írak og á bil- inu 33-66% í átta héruðum. Minnst þátttaka var í suðurhluta landsins, eða í Qadisiya héraði, þar sem hún virðist hafa verið undir 30%. Súnni-arabar sniðgengu kosning- arnar sem voru í Irak í janúar síðast- liðnum en samkvæmt fregnum nú var góð þátttaka í þeirra röðum. ■ Danskir sjóliðar fögnuðu fæðingu nýs erfingja dönsku krúnunnar með því að skjóta úr fallbyssum á iaugardag. Friðriki prinsi og hinni áströlsku konu hans, Mary, fæddist þá sonur á háskólasjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Ekki er búið að gefa barninu nafn. Friðrik prins var viðstaddur fæðinguna sem tók tfu klukkustundir, en Mary átti prinsinn tveimur vikum fyrir tímann. Móður og barni heilsast vel og sjálfur segist Friðrik prins vera í skýjunum. Margrét drottning mætti síðan á laugardag með blómvönd á sjúkrahúsið. ■ Breski landlœknirinn Fuglaflensa mun berast til Bretlands Telur að allt aðfimmtíu þúsund manns muni látast af völdum fuglaflensu Liam Donaldson, landlæknir Bretlands, segir að fuglaflensa muni óhjákvæmilega berast til landsins, það sé ekki spurning hvort heldur hvenær. Hann telur að fugla- flensuveiran muni stökkbreytast með flensu í mönnum. Donaldson lét þessi orð falla í viðtali við BBC. Framtíðin er ekki björt hvað þessi mál varðar því hann telur að allt að 50 þúsund manns muni deyja afvöld- um fuglaflensu í Bretlandi. „Raunar getur þessi tala orðið mun hærri því við vitum ekki hversu vel gengur að ráða niðurlögum fuglaflensunnar þegar hún fer að gera vart við sig fyr- ir alvöru.“ Landlæknirinn segir að venjulega látist um 12 þúsund manns árlega í Bretlandi af völdum flensu þannig að allt geti gerst þegar fuglaflensu- veiran stökkbreytist. „Við getum ekki komið í veg fyrir þennan farald- ur þar sem þetta er náttúrulegt fyrir- brigði sem mun koma,“ segir hann. Bresk stjórnvöld eru við öllu bú- in og eru að reyna að útvega bólu- efni vegna fuglaflensunnar. Þann- ig er stefnt að því að 14 milljónir skammta af tamiflu bóluefni verði til staðar og hafa tæplega þrjár millj- ónir skammta þegar verið keyptir og bætast um 800 þúsund skammt- ar við í hverjum mánuði. Liam Don- aldson segir að Bretland sé eitt fárra landa sem hafi þegar gripið til ráð- stafana þó að fuglaflensan hafi ekki enn greinst í landinu. ■ NAMSAÐSTOÐ í stærðfræði og raungreinum fyrir grunn- og framhaldsskólanema. Stærðfræði og tölvuþjónustan, Brautarholti 4, 105 Rvk. Sími 551 3122 Rekinn vegna fána- deilu Enskukennari í kaþólskum skóla í Bridgeport í Connect- icut í Bandaríkjunum hefur ver- ið rekinn vegna þess að hann neitaði að hafa bandaríska fán- ann uppi við í kennslustofunni. Stephen Kobasa, sem kennt heftir ensku við skólann í sex ár, segir að trúarleg sannfæring sín mæli gegn því að fáninn sé hafður uppi við. „Kristur talar um samhug án landamæra," segir Kobasa, sem er friðarsinni. „Fánar eru tákn um aðskilnað og yfirgang. Sú hugmyndafræði að hollusta við landið eigi að tengjast trú viðkomandi er fáránleg og óréttlát." Kobasa segist hafa boðið málamiðlun fyrr á árinu þegar skólastjórnin tilkynnti að nemendur ættu framvegis að fara með hollustu- eið fýrir framan bandaríska fánann á hverjum morgni. Hann hafi verið tilbúinn að hafa fánann uppi við meðan nemendur fóru með þuluna en hafi síðan viljað taka hann niður. Tillögu hans var hins vegar hafnað af yfirmönnum. Réttarhöldin yfir Saddam Hussein Aziz ber ekki vitni gegn Saddam Tareq Aziz, fyrrverandi aðstoð- arforsætisráðherra Iraks, mun ekki vitna gegn Saddam Hus- sein, fyrrverandi forseta, gegn því að fá mildari dóm í réttar- höldunum sem eru að hefjast. Þetta er haft eftir lögmanni Aziz en áður höfðu bresk blöð fullyrt hið gagnstæða, það er að segja að þessi fýrrverandi aðstoðarmaður Saddams myndi kaupa sér styttri fangelsisvist með því að skýra frá glæpum einræðisherrans fyrrverandi. Aziz hefur verið ákærður fyrir aðild að tveimur fjöldamorðum og gæti átt yfir höfði sér dauðadóm verði hann fundinn sekur. Sjálfur hefur hann ætfð neitað sök og segist einungis hafa hlýtt fýrirmælum Husseins. Tareq Aziz var mikið í sviðsljósinu í aðdraganda Írakstríðsins enda hafði hann áður gegnt starfi utanrfkisráð- herra íraks og var sem slíkur áberandi á alþjóðavettvangi.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.