blaðið - 17.10.2005, Page 10
10 I IEILSA
MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 Ma6iö
Internetið opnar heim fyrir spilafíkla
Með tilkomu Internetsins hefur opn-
ast stór heimur fjárhættuspila sem
hafa aldrei verið tæknilegri en um
þessar mundir. Sumir geta ráðið við
sig og skemmt sér vel við að spila
og geta eytt því sem þeir hafa ráð
á - ekki meiru. Aðrir eiga hins veg-
ar við vanda að stríða, spilafíkn, og
hætta ekki fyrr en þeir standa uppi
slyppir og snauðir. Sveinbjörn K.
Þorkelsson er áfengis- og spilafíkn-
arráðgjafi hjá SÁA og hefur mjög
miklar áhyggjur af hinum svokall-
aða Texas Holdem Poker sem er nú
orðið mjög vinsæll, bæði í sjónvarp-
inu og á Internetinu um allan heim.
„Ég var á ráðstefnu í New Orle-
ans í Bandaríkjunum í sumar hjá
óháðum samtökum sem taka ekki
afstöðu til lögleiðingar eða banns
á fjárhættuspilum en vinna að
fræðslu og menntun ráðgjafa og ann-
að slíkt. Þeir höfðu miklar áhyggjur
af þessu Texas Holdem æði sem virð-
ist nú vera í gangi og ég sé ástæðu til
að við höfum áhyggjur líka,“ segir
Sveinbjörn. Pókerinn virkar þannig
að þú getur verið að spila á Internet-
inu við fólk alls staðar að úr heimin-
um, með kreditkortið að vopni.
99....................
Sumar sjoppur eru
eins og veðmálastofur.
Það er lottó, lengjan,
1X2 og spilakassar.
Það eru alls konar
siðferðilegar spurn-
ingar sem vakna í
kringum þetta en það
er Ijóst að efþað ætti
að breyta þessu þyrfti
að skera upp alla
fjáröflun á íslandi
Texas Holdem hér á landi
Sveinbjörn segir að það séu Tex-
as Holdem klúbbar víðsvegar um
borgina, í heimahúsum auk þess
sem að menn spili mikið einir á net-
inu. „Það hefur ekki orðið aukning
á fólki sem leitar sér aðstoðar hjá
SÁÁ, seinustu 3 árin hefur þetta ver-
ið stöðugt.
Hins vegar varðandi internet-
spilamennsku þá held ég að við eig-
Billjard-Pool
Púttvöllur
S35 i;**
SLAKKA
Alltaf gott veður
Míní-golf
Veitingar
ER VERIÐ AÐ SPÁ I ÓVISSUFERÐ ?
um eftir að sjá miklar afleiðingar af
henni eftir svona 1-2 ár.Við höfum
nú þegar fengið nokkra einstak-
linga vegna Texas Holdem," segir
Sveinbjörn. Hann var sjálfur spila-
fíkill en hefur verið óvirkur spilari
í 7 ár. Hann segir að síðasta árið
hans sem spilafíkill hafi hann verið
farinn að spila á netinu þannig að
internetspilamennska er ekki alveg
ný af nálinni. Margir fíklar nýta
sér hana vegna þess að þá fá þeir að
vera í friði og þurfa ekki að upplifa
skömmina sem þeir upplifa þegar
þeir sjást á stöðum í spilakassa eða
annað slíkt.
Sjoppur eins og veðmálastofur
Sveinbjörn segir að þrátt fyrir að
spilavíti séu ólögleg hér á landi þá
séu mörg tækifæri til þess að stunda
fjárhættuspil, það er auðvitað ekki
bara á netinu sem hægt er að eyða
fúlgum í fjárhættuspil.
„Sumar sjoppur eru eins og veð-
málastofur. Það er lottó, lengjan,
1X2 og spilakassar. Það eru alls
konar siðferðilegar spurningar sem
vakna í kringum þetta en það er
ljóst að ef það ætti að breyta þessu
jyrfti að skera upp alla fjáröflun á
slandi,“ segir Sveinbjörn. Háskóli
slands, Rauði-krossinn og Lands-
björg eru allt stofnanir sem afla fjár
með fjárhættuspilum hvers konar.
Jafnvel SÁÁ fær 10% af ágóða af
íslandsspili eða úr Gullnámunum
sem er umdeilt meðal margra starfs-
manna SÁÁ.
„Svo er það líka ríkið sem selur
áfengi og tekur toll af því og borgar
svo líka áfengismeðferðir fyrir fólk,“
segir Sveinbjörn og bendir á að það
sé einnig þversögn.
Spilafíkn veldur gríð-
arlegri vanlíðan
Spilafíkn er ekki bara peninga-
vandamál þó að það sé óneitanlega
fylgifiskur sem getur verið erfitt að
ná sér út úr.
„Spilafíkn er fyrst og fremst fikn
sem hefur áhrif á heilastarfsemina
og getur valdið rosalegri vanlíðan.
Ekki nóg með það að fólk tapi stór-
um fjárhæðum heldur tapar það
einnig virðingunni og það getur
líka tapað fjölskyldunni sinni."
Úrræði fyrir spilafíkla eru þau að
láta annan sjá um peningana fyrst
um sinn - leggja launin inn á ann-
an reiking, fá bara pening daglega
og koma heim með kvittanir. Hjá
SÁÁ er námskeið fyrir spilafíkla
á sex vikna fresti sem er nokkurs
konar meðferð. Næsta námskeið
er 4-6 nóvember. SÁÁ er með einn
stuðningshóp í viku og bendir öll-
um á að nota stuðninginn og fara
á Gamblers Anonumous, eða GA
fundi. Upplýsingar um þá er hægt
að fá hjá SÁÁ. ■
I
Vió bjóðum upp á veitingar, púttvöll og mínígolf. Auk karókíkerfís
og billjardborðs í 800 fermetra húsnæði.
Nánari upplýsingar á www.slakki.is eða í síma 868-7626
Golfhúsið í Slakka, Bláskógabyggö
OPIÐ ALLT ÁRIÐ
Nokkrar stað-
reyndir um
spilafíkn
• Fólk úr öllum þrepum
samfélagsins getur átt
við spilafíkn að striða.
• Spílafíkn byrjar oft snemma,
áður en einstaklingur
stofnar eigin fjölskyldu.
• Skuld spilafíkla getur verið
allt frá nokkrum hundruð
þúsundum til tugi milljóna.
• Streita, kvíði og brotin
sjálfsmynd geta allt verið
aukaverkanir spilafíknar.
• Stórir vinningar sem
menn vinna fara yfir-
leitt aftur í kassann.
• Spilafíklar eru vanalega
fullir af ranghugmyndum
um að stóri vinningur-
inn sé á næsta leiti.
Marinó Már MagnúiiHon 2005