blaðið


blaðið - 17.10.2005, Qupperneq 14

blaðið - 17.10.2005, Qupperneq 14
blaðið Útgáfuféiag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. NY FORYSTA SJÁLFSTÆÐISFLOKKS Pað er ekki hægt að segja annað en að Geir H. Haarde hafi hlotið glæsilega kosningu til formanns Sjálfstæðisflokksins á lands- fundinum í gær. Að fá yfir 94% greiddra atkvæða lýsir fyrst og fremst þeim mikla stuðningi sem hann virðist njóta meðal flokk- systkina sinna. í sjálfu sér þarf það ekki að koma á óvart. Ferill Geirs í íslenskum stjórnmálum er einkar farsæll og hefur hann oftast staðið fyrir ofan og utan þess hefðbundna dægurþrass sem einkennir íslenska stjórnmálaumræðu allt of oft. Það að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skyldi hafa verið kjörin varaformaður kemur ekki heldur á óvart. Staða hennar var mun sterk- ari en Kristjáns Þórs Júlíussonar þegar kom að sjálfu kjörinu - enda ráðherra með sterkara bakland. Það verður þó að segjast eins og er að málflutningur Kristjáns var sterkari en Þorgerðar í aðdraganda kosn- inganna. Hann virtist hafa fastmótaðri skoðanir á því hvað þyrfti að gera í innra starfi flokksins til að styrkja hann fyrir komandi átök. Al- mennt hefur skort nokkuð á það að frambjóðendur Sjálfstæðisflokks- ins, hvort sem er í prófkjörinu í Reykjavík eða á landsfundi, hafi markað sér ákveðna stefnu sem skilur þá frá öðrum frambjóðendum - málflutningur Kristjáns Þórs var því sem ferskur vindur inn í stein- dauða umræðu. Margir hafa efast um að Geir H. Haarde sé jafn sterkur leiðtogi og Davíð Oddsson var. Jafnframt hafa þær raddir heyrst að búast megi við meiri ágreiningi innan flokksins um einstök mál þar sem járn- agi Davíðs sé ekki lengur til staðar. Vissulega var persónulegt fylgi Davíðs Oddssonar mikið en menn mega ekki heldur gleyma því að andstæðingar hans voru og eru líka fjölmargir. Það er í sjálfu sér eng- in ástæða til að ætla annað en að Geir H. Haarde verði farsæll leiðtogi þessa stærsta stjórnmálaflokks landsins. Hann hefur reynsluna sem þarf og það er ekki annað að sjá miðað við kosninguna í gær en að hann hafi óskorðaðan stuðning flokksbræðra sinna. Það er meira en forystumenn annarra stjórnmálaflokka á íslandi geta sagt í dag. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Símbréf áfréttadeild: 510.3701. Símbréf áauglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Kaupmannahöfn - La Villa ódýr og góð gisting miðsvæðis í Kaupmannahöfn. Tölum íslensku. Sími 0045 3297 5530 • gsm 0045 2848 8905 _____www.lavilla.dk • Geymiðauglýsinguna_ Rániö hefurfengið B frábærar fl móttokur | íslenskra 1 lesenda ! oghér bætist við ein ný viðurkenning /BbY 14 I ÁLIT MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 blaöiö Stóru verkefnin framundan Forystuskipti í Sjálfstæðisflokknum gengu eftir á þann hátt, sem flestir bjuggust við, og án verulegra átaka. Við er tekin samhent forysta, sem vafalaust mun reynast vandanum vaxin, þó sumir séu raunar þegar farnir að kvarta undan því að ekki verði hún jafn svipmikil og verið hef- ur undanfarin ár. Sjáum nú til með það, bæði Geir Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir eru hressilegt fólk. En hver eru hin stóru verkefni stjórnmálamanna næstu ára? Ég ætla að gera tilraun til þess að telja þau helstu upp. Það á svo eftir að koma í ljós hversu mikill drifkraft- ur reynist í hinni nýju forystu sjálf- stæðismanna til þess að sinna þeim, en þá má ekki gleyma hinu, að mörg þeirra eru hjartans mál fleiri flokka en Sjálfstæðisflokksins. Stöðugleikinn Brýnasta verkefni þeirra, sem standa við stjórnvölinn á næstu árum, verður án nokkurs vafa það að viðhalda efnahagslegum stöðug- leika, halda hagvexti á því róli sem verið hefur og sjá til þess að þensla eða ókyrrð á vinnumarkaði valdi ekki búsifjum. Islenskt efnahagslíf - hvort heldur er litið til einstaklinga eða fyrirtækja - er mjög háð frekari vexti og festu. Ekki er að efa að Geir, sem farsæll fjármálaráðherra, mun mjög hafa hugann við þetta. sagt enn eftir, þar sem orkugeirinn er. Það mun á hinn bóginn vafalaust reynast mikið hitamál. Þó kann það að liðka fyrir að Landsvirkjun er ekki öllum kær eftir virkjanaum- ræðu undanfarinna ára. Einokunin Það þarf ekki að eyða mörgum orð- um í það að áhyggjur af einokun og hringamyndun hafa vaxið á umliðn- um árum, en hins vegar hafa sum- ir minna tekið undir þær en áður vegna þess að þeir höfðu meiri óbeit á Davíð en Baugi. Hugsanlega geta menn hugsað og rætt þau mál af meiri stillingu eftir að Davíð er far- inn úr jöfnunni. En þá er kannski líka tækifæri til þess að velta fyrir sér öðru umhverfi viðskipta og fjár- sýslu, þannig að innherjar geti ekki valsað um markaðinn hindrana- laust, bankar haldi sig við leistann sinn og svo framvegis. ist tæplega í bráð. Menn eru nokkuð sammála um markmiðin, en leiðir- nar hafa reynst vandfundnari. Á því sviði kann hins vegar að finnast sam- staða íhalds og krata, sem hafa talað um uppskurð frekar en niðurskurð í því samhengi. Landbúnaður Sjálfstæðismenn hafa algerlega van- rækt það að koma landbúnaðinum inn í 20. öldina, að ekki sé minnst á hina 21.w Þar er nóg af verkefnum, en hins vegar er alveg ljóst að slíkt mun ekki gerast í samstarfi við Framsókn. Skattar Það hefur mikið verið gert í skatt- kerfinu undanfarin ár, þeim hefur verið fækkað og margir lækkað. Á hinn bóginn hefur ekki mikið gerst í því að einfalda skattkerfið eða að gera það réttlátara. Þar er sóknar- færi fyrir hvern sem er. Og hvernig væri að leggja tollana einfaldlega nið- ur. Þeir kosta margfalt á við það sem þeir færa í ríkiskassann. Hverjir geta gengið í verkefni sem þessi? Sjálfstæðismenn geta það ekki einir. Vinstri-grænir verða varla til viðtals um neitt af þessu og hver nennir að tala við Frjálslynda? Þá eru eftir framsóknarmenn og Samfylking. Hvorir skyldu bjóða betur? Einkavæðing Heilbrigðiskerfið ................................ Þóhelstuverkefnunumásviðieinka- Stærsti fjárlagaliðurinn heldur Höfundur er blaðamaður. væðingar sé lokið er hið stærsta sjálf- áfram að vaxa ár frá ári og það breyt- Klippt & skorið klipptogskorid@vbl.is Athygli vekur að Jakob Frímann Magnússon, varaþingmaður Sam- fylkingarinnar, virðlst vera fastagestur í Silfri Egils þetta árið og virðist þannig vera orðinn helsti talsmaður flokksins milli þess sem hann ber blak af forráðamönnum Baugs í blaðagrein- um. (Silfrinu í gær ræddi hann um setningar- ræðu Davíðs Oddssonar og lýsti þeirri skoðun sinni að forsætisráðherrann fyrrverandi væri geðveikur og að nánast öll þjóðin hefði verið meðvirk. Þessi afstaða kom fram í umræðu um ummæli Davíðs um Samfylkinguna og tengsl hennar við Baug. Spurningin er þá sú hvort Jak- ob er að lýsa skoðun Samfylkingarinnar, sem þá hlýturað setja stjórnmálaumræðu héríann- an farveg en verið hefur. DV heldur áfram að birta auglýsingu sína, þar sem auglýsendur eru grát- beðnir um að beina viðskiptum sín- um þangað á fölskum forsendum. En sumar auglýsingar í DV geta vissulega haft tvöfaldan slagkraft, eins og best sást í helgarblaði DV. Þar var sfða 56 nefni- lega end- urtekin á síðu 57- Pað vakti athygli að Davíð Oddsson kom ekki (áður boðað viðtal f Kast- Ijósl á Rfkissjónvarpinu eftir ræðu sfna á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sfðast- liðinn fimmtudag, en þar hraunaði hann yfir Samfylkinguna og sér í lagi formann hennar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Opinbera skýr- ingin hjá RÚV er að Davíð hafi verið ósáttur við umfjöllunina. Sannleikur málsins mun hins vegar hafa verið sá að RÚV fékk eitt fjölmiðla að sjá ræðuna fyrir fram, en kom afriti af henni í hendurnar á Ingibjörgu Sólrúnu, sem síðan fékk að flytja palladóma um hana i beinni útsendingu án þess að ræðunni væri aðöðruleyti gerðalmenni- leg skil. Með þessu mun Ingibjörg Sólrún jafn- framt vera að rjúfa þá hefð að stjórnmálaflokk- ar hafa fengið sæmilegan frið hverjir frá öðrum í kringum landsfundi sína. Pað verður ekki annað séð en að hið nýja tímarit Jakobs F. Ásgeirssonar, Þjóðmál, fái fljúgandi start. Þetta hugsjónarit hægrimanna fékk auglýsingu i landsfundarræðu Davíðs Oddssonar og Egill Helgason hampaði þvi sömuleiðis I þætti sín- um. Klippari getur svo vel játað að honum þyk- ir veigur (þessari viðbót I tímaritaflóruna. I P K I j

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.