blaðið - 17.10.2005, Síða 18
MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 blaöiö
Ómótstæðilegir litir og
einstök gæði.
OPI fékk Allure
"Best Of Beauty"
verðlaun fyrir
naglalökkin:
"l'm Not Really A
Waitress" og
"Samoan Sand"
Utsölustaðir:
Debenhams, Hagkaup,
Lyf og heilsa, Lyfja, nagla- og
snyrtistofur.
2005 OPI Products Inc,
26 I SWYRTIVÖRUR
-frískleiki ogfegurð
Fimm skref
náttúrulegs
til
útlits
Cameron Diaz hefur ósjaldan sést lítið förðuð og þykir það klæða hana afar vel.
Pó svo að gaman geti verið að
farða sig vel við ákveðin til-
efni er því ekki að neita að
flestum þykir konur fallegastar þeg-
ar lítið er um farða og annars konar
litadýrð í andliti þeirra. Sitt sýnist
að sjálfsögðu hverjum en þó er gott
að hafa í huga að ágætt getur verið
að hvíla húðina á miklum efnum
inn á milli og hafa sem minnst á sér.
Lykillinn að náttúrulegu og fallegu
útliti er að hafa förðunina einfalda,
létta og vel ásetta en mikilvægt er
að velja vörur sem henta hverri og
einni. Snyrtifræðingar og förðunar-
fræðingar eru yfirleitt til taks í þeim
verslunum sem selja snyrtivörur og
er ekki úr vegi að notfæra sér kunn-
áttu þeirra og fá aðstoð við val á vör-
um. Það er í það minnsta mikilvægt
að kynna sér eitthvað af þeim mögu-
leikum sem í boði eru því það er allt
eins líklegt að til sé vara sem henti
okkur betur en sú sem við höfum
hingað til notað.
Hér eru fimm skref sem hægt er
að styðjast við ef ná á náttúrulegu út-
liti á stuttum tíma og í kjölfarið verð-
ur andlitið frísklegt og létt yfirlitum.
Annars er um að gera að prófa sig
áfram og fylgjast með því sem er í
gangi hverju sinni.
1. skref:
Byrjaðu á að hreinsa vel andlitið og
setja gott rakakrem á hreina húðina.
Settu síðan þunnt lag af uppáhalds
farðanum þínum með púða eða
fingrunum, en passaðu upp á að
setja eins lítið og mögulegt er. Ef
óþarft er að þekja mikið af andliti
þínu skaltu setja sem minnst.
2. skref:
Settu hyljara, sem er í aðeins ljósari
tón en farðinn, undir augnsvæðið og
á staði sem eru ójafnir eða með ein-
hvers konar útbrotum. Mikilvægt er
að setja lítið af hyljaranum og dreifa
með fingurgómum. Eftir þetta má
setja létt púður yfir andlitið, þær
sem það vilja, en það getur sett loka-
tóninn á farðann. Þó þurfa þess alls
ekki allar.
3.skref:
Notaðu kremlitaðan augnskugga
í náttúrulegum tón og dreifðu var-
lega úr honum upp á móti með fingr-
unum á allt augnlokið. Notaðu siðan
aðeins dekkri augnskugga, helst ein-
hvern ljósbrúnan tón, undir neðri
augnhárin. Línan þarf ekki að sjást
greinilega og því gott að setja litinn
mjúklega á með þunnum bursta. Þá
getur verið sniðugt að bursta Iétt yf-
ir línuna til þess að hún verði ekki
of skýr. Eftir að augnskugginn hefur
verið settur á er komið að maskaran-
um, en settu jafnt lag á neðri og efri
augnhárin. Ef þú vilt stækka augun
og gera þau bjartari getur verið fal-
legt að setja hvíta línu á innanverð
augun fyrir ofan neðri augnhárin.
4.skref:
Örlítill kinnalitur getur gert mikið
fyrir annars litla förðun. Fallegur
rósbleikur litur dregur fram frísk-
leikann í andlitinu en brúnn gerir
andlitið klassískara. Notaðu þar til
gerðann bursta og settu lítið af litn-
um ofarlega á kinnarnar - á kinn-
beinin - og jafnaðu litinn síðan út
með því að nudda svæðið vel með
fingrunum.
5.skref:
Síðast en ekki síst verður fallegur
gloss að vera til staðar. Hann setur
punktinn yfir i-ið, hvort sem um
bleikan, brúnan eða aðra liti er að
ræða. Hafa skal í huga að ef ná á
fram náttúrulegu útliti þarf glos-
sinn, eins og allt hitt, að vera ljós og
ekki of áberandi. ■