blaðið - 17.10.2005, Qupperneq 22
30 I ÍPRÓTTIR
MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 blaöiö
Heppnir Haukar
„Bölvaður aumingjaskapursagði Birkir
ívar Guðmundsson eftir nauman 33-29 sig-
ur Hauka á ítalska liðinu Torggler í Meist-
aradeildinni í handbolta.
;S
Haukar voru heppnir að fara með sig-
ur af hólmi gegn ítalska liðinu Torg-
gler í Evrópukeppninni í handbolta
á Ásvöllum í gær. Þetta var fyrsti sig-
ur Hauka í keppninni en lokatölur
voru 32-29 - alltof lítill munur miðað
við getu liðanna. Þetta var fyrsti sig-
ur Hauka í riðlakeppninni en liðið
hefur nú leikið þrjá leiki. Haukarnir
hafa oft spilað betur en þeir gerðu í
gær og ljóst er að þeir verða að taka
sig á ef þeir ætla að komast áfram í
keppninni.
„Eigum að klára þetta"
Jón Karl Björnsson var lykilmaður
í Haukaliðinu og setti fjórtán mörk
í öllum regnbogans litum og var
markahæsti maður liðsins. „Já, ég er
mjög sáttur við minn leik. Ég var að
finna mig vel og vítin voru að rata
rétta leið,“ sagði Jón Karl við Blaðið
eftir leikinn. Hann var sáttur með
stigin tvö þrátt fyrir að Haukar hafi
oft spilað betur. „Já, ég er nú mjög
sáttur við sigurinn þó svo að hann
hefði vissulega mátt vera stærri. Við
vorum bara of stressaðir þarna í
byrjun leiks í sókninni og komumst
ekki alveg nægilega vel inn í leik-
inn en sem betur fer kláruðum við
þetta,“ bætti Jón Karl við. Möguleik-
ar Hauka á því að komast áfram eru
ágætir og Jón Karl er bjartsýnn: „Við
eigum að klára þriðja sætið auðveld-
lega en við stefnum að sjálfsögðu á
að komast áfram og til þess að gera
það verðum við að lenda í öðru sæti.
Ef við vinnum báða útileikina okkar
og Árhus með tveimur mörkum þá
er þetta komið.“
„Bölvaður aumingjaskapur"
„Ég veit ekki hvort ég sé sáttur með
leikinn, ekkert sérstaklega,“ sagði
Birkir Ivar Guðmundsson, mark-
maður, að leik loknum. Birkir varði
fjórtán skot og var góður í fyrri hálf-
leik en heldur dró af honum í þeim
síðari. „Við vorum arfaslakir í síðari
hálfleik, við eigum að vinna þetta
lið með tíu marka mun og eigum ekk-
ert að sætta okkur við neitt minna.
Stigin skipta kannski höfuðmáli en
mörkin geta skipt máli ef við ætlum
okkur að ná þessu öðru sæti. Þetta
var bara bölvaður aumingjaskapur.
Við eigum möguleika bæði á öðru
Blaöið/Hjalti Þór
og þriðja sætinu en þetta veltur mik-
ið á leiknum við Árhus úti. Það er
lykilleikur en við eigum fína mögu-
leika í þessum riðli.“
Heimsmeistarakeppni ökumanna
Nýkrýndur heimsmeistari í Form-
úlu 1, Fernando Alonso, tryggði sér
sigur í lokamótinu í gær þegar hann
hampaði sigri í Kína kappakstrin-
um. Þar með tryggði hann Renault
heimsmeistaratitilbílaframleiðenda
í fyrsta sinn og vinnur Renault því
tvöfalt í ár. Mikið var um árekstra í
Shanghai og í tvígang var öryggisbíll-
inn kallaður út. Juan Pablo Montoya
og Michael Schumacher voru meðal
þeirra sem heltust úr lestinni á með-
an Alonso ók örugglega til sigurs. I
öðru sæti varð Kimi Raikkonen öku-
maður McLaren og þriðja sæti náði
Ralf Schumacher á Toyota. Alonso
er þar með óumdeilanlega kóngur
Formúlu 1 þetta árið en hann var
krýndur heimsmeistari um síðustu
helgi í Japan.
„Auðveldasti sigur ársins"
,Þetta var líklega auðveldasti sigur
ársins,“ sagði hinn 24 ára gamli Al-
onso eftir keppnina. „Að frátaldri
yfirstýringu í byrjun var bíllinn
fullkominn. Við sýndum hvað í
okkur bjó í tímatökunum og náðum
þá fullu afli úr mótornum en í kapp-
akstrinum skrúfuðum við hann
aðeins niður. Tímabilið hefur verið
frábært fyrir allt liðið. Við sýndum
það og sönnuðum hér að ef við vilj-
Alonso fagnar sigrinum meö Briatore, liðstjóra Renault liðsins.
um taka aðeins meiri áhættu og ef
við viljum vinna McLaren, þá get-
um við gert það.“ Alonso vann alls
sjö keppnir á árinu og lauk keppni
með 21 stigi meira en Raikkonen
í heildarstigakeppninni. Michael
Schumacher var svo langt þar fyrir
aftan í þriðja sæti.
Reynum aftur á næsta ári
„Bíllinn var ekki nógu hraðskreiður í
byrjun keppninnar,“ sagði ósáttur
Kimi Raikkonen eftir keppnina.
„Undir lokin var hann aftur á móti
fullkominn. Því miður kom það
bara 40 hringjum of seint. Ég gerði
mitt besta en það var bara ekki nóg
og Renault-menn voru bara of fljót-
ir og ég verð því að hrósa þeim. Á
næsti ári reynum við bara aftur.“ ■
Nafn Bíll Land Stig
1 FernandoAlonso Renault Spá 133
2 Kimi Raikkonen McLaren Fin 112,
3 Michael Schumacher Ferrari Þýs %,62 '
4JuanPablo Montoya McLaren Kól 60
5Giancarlo Fisichella Renault (ta 58
6 Ralf Schumacher Toyota Þýs 45««l
7JarnoTrulli Toyota (ta 43
8 Rubens Barrichello Ferrari Bra 38
9Jenson Button BAR Bre 37
lOMarkWebber Williams Aus 36
Heimsmeistarakeppni bilasmiða
Uð Stig
1 Renault 191
2 McLaren-Mercedes 182
3 Ferrari 100
4Toyota 88
5 Williams-BMW 66
6 BAR-Honda 38
7 Red Bull-Cosworth 34
8 Sauber-Petronas 20
9Jordan-Toyota 12
10 Minardi-Cosworth 7