blaðið - 17.10.2005, Blaðsíða 29
DAGSKRÁ I 37
blaöið MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005
◄
◄
◄
EITTHVAÐ FYRIR...
...þjóölega
...matargöt
.. .œvin týragjarna
og Courteney
með fyrirtœki
Jennifer Aniston er að fara að stofna fyrirtæki í samvinnu við stöllu
sína úr þáttunum Friends, Courteney Cox. Þær ætla að stofna kvik-
myndavinnslufyrirtæki. Jennifer átti áður fyrirtækið Plan B með fyrr-
verandi eiginmanni sínum Brad Pitt. Heimildamaður sagði: „Hún og
Courtney ætla að framleiða verðlaunamyndir. Þær eiga jafnan hlut
og verða einu eigendurnir, þetta verður flott hjá þeim.“ Courteney og
maður hennar, David Arquette, eiga nú þegar eitt framleiðslufyrir-
tæki sem sérhæfir sig í að vinna í sjónvarpsþáttum.
Hlynur Sigurðsson er með þáttinn Þak yfir höfuðið sem er á dagskrá Skjás 1 alla virka
daga kl.l 9:20. Hlynur er ennfremur stofnandi Fasteignasjónvarpsins sem fer af stað i
nóvember.
Hvernig hefurðu það í dag?
,Ég hef það fínt, það er mánudagur og ég
erígóðu skapi."
Hvenær byrjaðirðu að vinna í fjölmiðl-
um?
,Ég byrjaði að vinna í fjölmiðlum árið 2002,
um sumarið, þá sem fréttamaður hjá
Sjónvarpinu'
Er vinna í fjölmiðlum öðruvísi en þú
hafðir ímyndað þér?
,Nei, hún er það í raun og veru ekki. Hún er
alveg eins skemmtileg og ég hafði ímynd-
að mér. Hún er lifandi og maður er alltaf
að takast á við mismunandi viðfangsefni,
það er sama hvort það er„Þakið" eða frétt-
irnar. Þetta er lifandi starf sem ég sóttist í
og sækist í."
Hvað er uppáhaldstími dagsins hjá
þér?
„Uppáhaldstími dagsins er væntanlega
svona fyrst á morgnana þegar mað-
ur getur haft smá næði. Svo æsast
leikar yfirleitt þegar líður á."
Geturðu lýst dæmigerðum
degi í lífi Hlyns Sigurðsson-
ar?
„Ég vakna á morgnana, stund-
um fer ég með litlu dóttur mína
til dagmömmunnar, stund-
umfer mamma hennar
meðhana. Ferí
vinnuna, yfirleitt
einhvern tíman
milli hálf-níu og
nfu og sinni því
sem þarf. Svo
eru gjarnan
fundir þar sem
ég er að selja
kynningartil
fasteignasala
þannig að
ég fer oft í
heimsóknirá
fasteignasölur.
Stundum fer ég
f tökur. Dagurinn
líður hratt en
þessa dagana er
mjög mikið að gera
því ég er að opna sjón-
varpsstöð í nóvember
sem verður á Breiðband-
inu og ADSL-kerfi Símans.
Það tegist því oft úr
deginum og ég er kannski
ekkert kominn heimfyrren um 19:00.
Oftar en ekki sit ég svo með kjöltutölvuna
í sófanum heima, þessa dagana alla vega.
Ég reyni nú samt alla jafna að vera í fríi
um helgaref ég get."
Hvað ætlaðirðu að vinna við þegar þú
varst lítill?
,Ég ætlaði að verða gamli góði slökkviliðs-
maðurinn og löggan og allt það þegar
ég var mjög lítill. Á tímabili ætlaði ég að
verða leikari. Svo gekk maður í gegnum
einhvern lögfræðingafasa en það var nú
fljótt að ganga yfir. Svo var ég alltaf rosal-
ega spenntur fyrir fjölmiðlum. Ég gaf út
tímaritið„Tappinn“ með vini mínum þegar
ég var 7 eða 8 ára og við seldum það á
50-kall. Þar var mikill metnaður. Við„kóper-
uðum" krossgátur úr krossgátubókum og
fengum uppskriftir af einhverju dóti frá
mömmum okkar. Ég valdi alltaf allt tengt
fjölmiðlum í grunn- og framhaldsskóla
og var ritstjóri skólablaðsins í framhalds-
skóla, þannig að hugurinn hneigðist
snemma í þessa átt."
Horfirðu sjálfur á þáttinn þinn?
„Jájá, ég geri það. Ekkert endilega
á þeim tíma sem þeir eru sýndir
en ég hef það fyrir venju að horfa
á alla þættina. Þetta allt þarf að
koma rétt út því þættirnir eru fólki
mjög mikilvægir. Við erum
kannski að kynna aleigu fólks
í sumum tilvikum og fólki er
því umhugað að kynningin
sé vel úr garði gjörð. Okkur
er umhugað um að allir
séu ánægðir."
Ef þú fengir eina ósk,
hverværi hún?
„Óskin yrði sú að ég fengi
að halda áfram á þeirri
braut sem ég er á og
að ég verði áfram jafn
ánægður í starfi og
einkalífi og ég er í dag."
Hver myndir þú vilja
að væri lokaspurn-
ingin í þessu stutta
spjalli?
„tg vildi að hún væri:
„Eru FH-ingarekki alveg
örugglega langbestir
í fótbolta?" og svarið
væri:„Jú."
Skjár í - Survivor Guatemala - kl.
21:00
I ár fer keppnin fram í Guatemala
og búast má við hörkuslag. Framleið-
endur þáttanna finna alltaf eitthvað
nýtt til að auka á spennuna en með-
al þátttakenda í þessari þáttaröð er
Gary Hogeboom sem leikið hefur
með Dallas Cowboys. Tökur fóru
fram í þjóðgarðinum í Yaxhá-Nak-
um-Naranjo.
RÚV-Þjóð-
legt og
skemmtilegt
- Kl. 21.00
Síðastliðið
haust skelltu
nokkrar leik-
konur ásamt
fullt af góðu
fólki sér í slát-
urgerð, einhverja elstu og skemmti-
legustu matargerð á Islandi. Þarna
var gleðin við völd, spilað og sung-
ið og fólk á öllum aldri lagði sitt af
mörkum að búa til þetta góðmeti.
Ákaflega margir íslendingar eiga
góðar minningar tengdar sláturgerð
og fáum við að heyra nokkrar þeirra
í þættinum.
Stöð 2 - You are
What You Eat
(1:17) - kl. 21:15
Matarvenjur okk-
ar eru eins ólíkar
og við erum mörg.
I þáttaröðinni sjá-
um við dr. Gillian
hjálpa fólki úr
miklum ógöngum.
Reyklaust á neöri hœöinni
á meðan eldhúsiö er opiö.
Eldhúsið er opið frá kl. 8:00 til kl. 22:00.
O L I V 0 R
www.cafeoliver.is
■ spurning dagsins
Hver heldurðu að verði næsti spyrill í Gettu betur?
Guðmundur Hafsteinsson
„Ég gæti trúað að það verði
Sigmar"
Magnús Jónsson
„Ég hef ekki minnstu hug-
mynd um það."
Aðalheiður Pétursdóttir
„Verður það ekki bara
Ómar Ragnarsson, það er
gott að hafa hann."
Dagbjartur Pálsson
„Ég hef ekki hugmynd
um það."
Jón Gunnarsson
„Simmi í Idolinu."
Ragnar Pálsson
„Gæti það ekki verið
einhverfréttamaður. Ætli
það endi ekki með því
að Páll Magnússon verði
það bara sjálfur."
Madonna
til Lon
fyrir
ástina
Söngkonan Madonna sem hat-
aði London áður en hún kynntist
manni sínum Guy Richie hefur
ákveðið að flytja til London með
honum. Hún hafði lengi haldið
því fram að hún fengi heimþrá
og einmanakennd þegar liún
væri í London. Nú eftir að
hún kynntist manni sínum
segist hún tilbúin til að flytja
þangað fyrir ástina. Hún seg-
ist hafa orðið ástfangin af
borginni og að nú vilji hún
helst vera þar. Ef hún væri í
Bandaríkjunum segist hún
muna sakna London svo hún
sé mjög sátt þar.
I Sex and the City mán - mið kl. 22.45
Þær eru sætar, sexý og til í allt! Fylgstu með frá upphafi! Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga ®