blaðið - 03.03.2006, Side 6
FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 blaöiö
6 I IKWLEWDJ
in FR E
Óttast að ál-
ver ýti undir
einhæfni
Stefna Samfylkingarinnar í stó-
irðjumálum er skýr segir Ingibjörg
Sólrún
Gísladóttir,
formaður
flokksins.
„Þing-
flokkur
Samfylking-
arinnar hefur
sent frá sér
ályktun þar
sem skýrt
kemur fram
að við teljum
ekki rými
fyrir þrjú álver hér á landi á næstu
ío árum. Á hinn bóginn lýsum við
okkur samþykk uppbyggingu á einu.
Það er bæði vegna þeirrar skuldbind-
ingar sem liggur í Kyoto bókuninni
sem og vegna almennrar stöðu í
íslenska hagkerfinu," segir Ingibjörg.
Ríkisstjórnin verður að tala skýrt
Þegar eru uppi hugmyndir um
uppbygginu álvers á þremur stöðum
hér á landi á næstu misserum.
Fyrir utan hugmyndir Alcoa um
byggingu álvers við Húsavík stendur
undirbúningur stækkunar álversins
í Straumsvílc yfir. Því til viðbótar eru
Suðurnesjamenn að skoða mögu-
leika á byggingu álvers í Helguvík.
„Það er alveg skýrt að við
teljum að ekki er hægt að fara
af stað með allar þessar fram-
kvæmdir,“ segir Ingibjörg.
„Nú verður ríkisstjórnin að
tala mjög skýrt og senda ótví-
ræð skilaboð um aðeins einn af
þessum þremur kostum komi til
álita. Það er ekki hægt að halda
öllum boltum á lofti í einu.“
Gæti rutt öðrum atvinnu-
greinum úr vegi
Hvað fréttir vikunnar áhrærir
telur Ingibjörg að af þeim þremur
kostum sem til álita komu fyrir
norðan sé Húsavík vænlegastur.
„Þar kemur margt til, meðal
annars umhverfissjónarmiðin.
Það þýðir hins vegar að ef menn
kjósa að byggja upp stóriðju á
þessu svæði er ekki hægt að fara
í frekari uppbyggingu annars
staðar á landinu," segir Ingibjörg.
Hún hefur hins vegar áhyggjur af
stöðunni eins og hún blasir við í dag.
„Ég óttast auðvitað að farið verði
af stað með allar þessar þrjár fram-
kvæmdir á næstu árum. Ég tel að
slíkt geti rutt úr vegi öðrum atvinnu-
greinum og að álver sem í upphafi
voru hugsað til að renna stoðum
undir aðrar atvinnugreinar muni
ýta undir einhæfni í atvinnulífinu."
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Hættir að keppa
innbyrðis um álver
Blaöiö/Steinar Hugi
f tengslum við byggingu álvers á Reyðarfirði hefur orðið mikil uppbygging víðs vegar á
Austurlandi segir Magnús Ásgeirsson.
N o r ð 1 e n d -
ingar virðast
almennt taka
fréttum mið-
vikudagsins
vel, en þá var
tilkynnt að
Alcoa hyggðist
kanna áfram
möguleika á
byggingu ál-
vers á Bakka
við Húsavík.
„ S t æ r s t i
ávinningur-
inn er að nú
eru menn
hættir að tak-
astáumþaðá
Norðurlandi
hvar byggja
á álver,“ segir
Einar Már MagnúsÞórÁsgeirsson
Sigurðarson,
þingmaður Samfylkingarinnar í
Norð-Austurkjördæmi, og bætir við
að almenn sátt virðist vera meðal
þeirra sem hann hafi rætt við um
niðurstöðu Alcoa.
„Þeir eru auðvitað til sem eru á
móti álverum en þar skiptir stað-
setningin ekki máli,“ segir Einar
ennfremur.
Norðurland fremst í röðinni
Þrátt fyrir tilkynningu Alcoa fyrr
i vikunni og samkomulag fyrirtæk-
isins við íslensk stjórnvöld er ekk-
ert fast f hendi um það hvort álver
verði byggt á Norðurlandi eða ekki.
Samkomulagið er fyrir hvorugan
aðilann bindandi og því mun fram-
tfðin ein geta leitt í ljós hvort af ál-
versframkvæmdum á Norðurlandi
verður eða ekki.
„Mér sýnist málið hins vegar
komið ansi langt,“ segir Magnús
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri At-
vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar.
„Alcoa er á almennum hlutabréfa-
markaði úti og þar eru þeir til að
mynda búnir að tilkynna að málið
verði skoðað.“
En er Magnús ekkert hræddur við
að komin sé upp samkeppni milli
Norðurlands og annarra landshluta
þar sem hugmyndir eru uppi um
uppbyggingu álvera?
„Eg trúi því að aldrei verði farið í
allar þær framkvæmdir sem rætt
hefur verið um að undanförnu.
Menn þurfa hins vegar að horfa
í rökin fyrir því að byggja álver á
hverjum stað fyrir sig. Það þarf efna-
hags- og byggðarleg rök sem eru
klárlega til staðar hér á Norðurlandi.
Þau er hins vegar einfaldlega ekki til
staðar á Suðurlandi," segir Magnús.
„Ég átta mig ekki á því hvort það
sé samkeppni í þessu. Ef svo er þá
er ekki nein spurning í mínum huga
að Norðurland er fremst í röðinni".
Spennandi samstarfsaðili
Magnús segist vera sáttur við nið-
urstöðuna enda muni uppbyggingin
ekki einungis hafa áhrif á Húsavik,
heldur á Norðurlandi öllu.
„Það er verkefni okkar á næstunni
að tryggja fyrirtækjum í Eyjafirði
viðskipti við álverið. Hérna eru fjöl-
mörg þjónustufyrirtæki og svæðið
hefur sterka stöðu. Það er því mitt
álit að við eigum eftir að græða
mikið á þessu og uppbygging við
Húsavík á eftir að gagnast okkur
mikið á næstu árum. Ég bendi til
að mynda á að í tengslum við bygg-
ingu álvers á Reyðarfirði hefur orðið
mikil uppbygging víðs vegar á Aust-
urlandi," segir Magnús. Hann segir
ennfremur að Alcoa sé spennandi
samstarfsaðili.
„Fyrirtækið rekur útboðsstefnu
sem kemur atvinnurekstri hér á
svæðinu mjög vel. Þeir hafa úthýst
mjög mörgum verkefnum sem getur
fært fyrirtækjum á svæðinu umtals-
verðan ávinning“.
Aógangur að hráefni og
mörkuöum skiptir sköpum
Aðgangur að nægu fjármagni er
ekki það eina sem þarf til að byggja
upp álver heldur skiptir aðgangur
að hráefni og mörkuðum gríðarlega
miklu máli.
Hér til hliðar veltir Magnús Þór
Hafsteinsson, þingmaður Frjálsynda
flokksins, því upp af hverju ávallt
þurfi að leita út fyrir landsteinana
þegar byggja á stóriðju hér á landi.
Hann bendir á að mikil þekking á
rekstri og uppbyggingu stóriðju sé
til staðar á Islandi. Þá sé mikið fjár-
magn í umferð hér á landi.
Ekki hægt að liggja með állager
„Stóru risarnir á álmörkuðum hafa
aðgang að bæði hráefni og mörk-
uðum sem skiptir höfuðmáli. Þeir
geta því lagt fram tryggingu um að
keypt verði orka þó markaðir bregð-
ist. Það er ekki hægt að liggja með
lager af áli og því þurfa einingar og
fyrirtæki sem reisa álver að vera
mjög öflugar,“ segir Ragnar S. Hall-
dórsson, verkfræðingur og fyrrver-
andi forstjóri Isal.
Hann segir ennfremur að sú þekk-
ing sem sé til staðar hér á landi dugi
ekki.
„Þessi stórfyrirtæki eru í sífelldri
þróun með þær vörur sem þau selja.
Við höfum einfaldlega ekki mögu-
leika á að þróa hliðstætt kerfi og
vera vissir um að framleiða vörur
sem hinn stóri markaður úti í heimi
kærir sig um. Hráefnisframleiðslan
er bara einn hlekkur í mjög stórri
keðju,“ segir Ragnar.
Prófsteinn á
hvort hægt sé
að nýta gufuafl
„Ég vil byrja á að óska Húsvíkingum
til hamingju,“ segir Magnús Þór
Hafsteinsson,
varaformaður
Frjálslynda
flokksins.
„Hvað stefnu
flokksins
varðar þá
höfum við nú
verið frekar á
bremsunnivarð-
andi virkjanir.
Til að mynda
vorum við
mjög gagnrýnir á Kárahnjúka-
virkjun á sínum tíma og erum á
móti virkjun á t.d. Þjórsársvæðinu.
Okkur lýst hins vegar betur á að
gufuaflið sé virkjað og sýnist að
þarna verði prófsteinn á hvort hægt
sé að nýta það,“ segir Magnús.
Hann bendir á að Húsavík
og svæðið í kring hafi átt undir
högg að sækja undanfarin miss-
eri og að nú geti menn horít
fram á veginn með trú um að
uppbygging sé þar að hefjast.
„Eg vil hins vegar hafa ákveðin
varnarorð með þensluna, því
það verður að vanda sig þannig
að ekld verði efnahagsleg
kollsteypa,“ segir Magnús.
„Ekki fugl í hendi"
í samkomulaginu frá því fyrr í vik-
unni milli íslenskra stjórnvalda og
Alcoa er engin skuldbinding til ann-
ars en að málið verði skoðað frekar.
„Það er talað um að fara eigi
í uppbyggingu í fyrsta lagi árið
2010 og allt er þetta nú frekar
óöruggt. Mér sýnist þetta allavega
ekki fugl í hendi ef svo má að
orði komast,“ segir Magnús.
„Og ef af framkvæmdum
verður verðum við að gæta þess
að framkvæmdin verði ekki
til þess að við missum störf í
öðrum geirum í atvinnulífinu.“
Hvar eru íslensku Ijárfestarnir?
„Ég hef einnig verið að velta því
fyrir mér af hverju við getum ekki
átt álverin sjálf og af hverju við
þurfum að vera upp á erlenda íjár-
festa komin. Það er mikil þekking
á uppbyggingu og rekstri álvera til
staðar á Islandi og ég spyr hvar eru
íslensku fjárfestarnir? Mér sýnist að
þetta væri svipað og ef við myndum
neita að eiga togarana hér á landi
en útvega miðin og mannskapinn.
Hin erlendu álfyrirtæki kaupa hér
rafmagn, einhverja þjónustu og
greiða laun. Hagnaðurinn fer hins
vegar allur úr landi,“ segir Magnús.
Magnús Þór
Hafsteinsson
með
Microfiber
áklæði
290x200
Kr. 149.700
SUÐURLANDSBRAUT 22 • SÍMI 553 7100 • www.linan.is