blaðið - 29.03.2006, Side 8
22 I FERMING
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006 blaöiö
Móðir og dóttir eiga sama fermingardag
Auður Kristín Þorgeirsdóttir sparar stórfé með því að útbúa veitingarnar með aðstoð œttingja.
Þeir eru ekki ófáir foreldrarnir
sem standa í fermingarundirbún-
ingi þessa dagana. Við ferming-
arundirbúning er að mögu að
hyggja og dæmi þess að þeir sem
halda veisluna í heimahúsi þurfi
að endurnýja gólfefni, húsmuni
eða mála. Auður Kristín Þorgeirs-
dóttir er að ferma sitt elsta barn 8.
apríl næstkomandi og hefur því í
nógu að snúast.
að panta aðalfermingartertuna
úr bakaríi en það er ekki búið að
ákveða hvernig hún verður. Halla
Karen valdi sjálf skreytingarnar í
salinn, kerti og servíettur en skreyt-
ingarnar eru dökkbleikar, bleikar og
hvítar. Þá átti hún hugmyndina varð-
andi boðskortið en á því er mynd af
Höllu Karen frá því hún var fjögurra
ára.“
Sparnaður í að baka sjáfur
„I veislunni er boðið upp á kaffi-
hlaðborð sem hefur verið sameig-
inlegt verkefni fjölskyldunnar og
þannig sparast miklir peningar.
Ég tek mér ekkert frí úr vinnunni
vegna fermingarinnar þar sem ég fæ
svo mikla hjálp frá öðrum fjölskyldu-
meðlimum og mun einnig frá aðstoð
við að skreyta
salinn.
Auður segir
að þrátt fyrir að
kaffihlaðborðið
sé ekki aðkeypt
fylgi fermingu
vissulega nokkur
kostnaður. „Halla
Karen þurfti að
sjálfsögðu föt
fyrir ferminguna
og þau kosta sitt
en hún verður i
hvitu frá toppi til
táar samkvæmt
nýjustu tisku.
Fötin eru þó valin
með það í huga að hún geti notað
þau áfram. Svo þurfti að senda
alla fjölskylduna í klippingu. Ferm-
ingarbarnið fer svo að sjálfsögðu
í hárgreiðslu og myndatöku fyrir
ferminguna og fermingarfræðsla
og fermingin sjálf kostar um 15.000
krónur."
,Ég er að ferma Höllu Karen Haralds-
dóttur dóttur mína og hún hefur
mjög sterkar skoðanir á skrey tingum
og öðru sem viðkemur fermingunni.
Sjálf fermdist ég 8. apríl 1990 og ég
man ekki til þess að tilstandið hafi
verið jafn mikið og það er núna.
Mín veisla var
haldin heima en
fermingarveisla
Höllu Karenar
verður haldin í sal
út í bæ. Annars
gengur undirbún-
ingur fyrir ferm-
ingu hennar mjög
vel og ég nýt hans.
Salurinn var pant-
aður fyrir áramót
en það var það
fyrsta sem þurfti
að leiða hugann
að.“
Auður segist
ráðgera að um 75
manns verði í veislunni sem hún
segir að komist ekki fyrir heima.
,Sá kostur við að hafa veisluna í sal
er að það minnkar umstangið hjá
mér. Veislan verður haldin í raf-
veitusalnum í Elliðarárdal og við
fjölskyldan munum sjá um allar
veitingar sjálf. Ég geri þó ráð fyrir
99...................
„Halla Karen þurfti
að sjálfsögðu föt fyrir
ferminguna og þau
kosta sitt en hún verður
í hvítu frá toppi til táar
samkvæmt nýjustu
tísku. Fötin eruþó valin
með það í huga að hún
geti notað þau áfram.
Mæðgurnar Auður og Halla Karen taka höndum saman í fermingarundirbúningnum.
Auður segir að þrátt fyrir að
veislan sé smá í sniðum sé heildar-
kostnaður líklega um 200 þúsund
krónur fyrir utan veitingar en gjafir
til fermingarbarnsins eru innifaldar
í þessum kostnaði. Auður segir að
eftir á að hyggja hefði hún einnig
getað sparað með því að útbúa
skreytingarnar sjálf en það megi
ekki gleyma því að slíkt taki tíma og
hún vilji frekar borga fyrir það.
Fermingargjafir veglegri nú en
áður
„Það er mín tilfinningað fermingar-
börn fái mun veglegri gjafir en þegar
ég fermdist fyrir 16 árum síðan og ég
veit að húsgögn i herbergin og tölvur
eru vinsælar fermingargjafir. Her-
bergi Höllu Karenar var tekið í gegn
fyrir ári síðan en hún fær væntalega
nýtt rúm í fermingargjöf.
Annars samanstendur gjafalisti
hennar af ferðatölvu, rúmi, hljóm-
flutingstæki undir i-pod, gsm síma,
skartgripum og peningum."
„Þrátt fyrir kostnaðinn og fyrir-
höfnina má segja að ákveðinn hluti
eins og að endurnýja herbergi ferm-
ingarbarnsins sé liður í því að það
kveðji barnæskuna og takist á við
unglingsárin. Þetta er því kostnaður
sem hvort sem er hefði þurft að
leggja í.“
hugrun@bladid. net
Comfort Latex
NEVERTURN
Svæóaskipt heilsudýna
BOXSPRING
90x200 verð 15.900
120x200 verð 26.900
FIRST CLASS
120x200 verð 38.900
160x200 verð 49.900
COMFORT LATEX
120x200 verð 43.110
140x200 verð 52.110
160x200 verð 59.900
Þrjú heppin fermingarbörn sem fá nýtt
rúm frá Rúmgott í mars og apríl, fá andvirði
rúmsins ífermingargjöf frá Rúmgott.
Dregið verður 5. maí.
NEVERTURN
90x200 verð 35.910
100x200 verð 37.710
110x200 verð 41.310
120x200 verð 44.910
130x200 verð 51.210
máTraPlex
Rafmagnsrúm
www.rumgott.is
FERMINGARLEIKUR
RÚMGOTT
Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kt. 11-16