blaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 3

blaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 3
blaðið MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 NETID I 19 Fréttatengt í uppáhaldi Regína Ósk Óskarsdóttir, sem stendur í ströngu í undankeppni Eurovision þessa dag- ana, segist yfirleitt nota Internetið nokkra klukkutíma á dag. „Ég nota Netið mjög mikið. Ég fer alltaf þegar ég vakna, á kvöldin og svo ef ég er heima yfir daginn. Ég fer í raun alltaf þegar ég hef ekkert að gera,“ segir Regína. „Ég nota líka póstinn mikið, það er svo þægilegt að geta sent hvenær sem er því að ég er nú oft við tölvuna seint á kvöldin,“ bætir hún við. Regína segir að frá því að undankeppni Eurovision hófst í sjónvarpinu hafi hún skoðað síður þar sem rætt er um keppnina og fólk segir sína skoðun. „Ég hef t.d. mikið skoðað huga.is og hef verið mjög sátt við þau viðbrögð sem ég hef fengið þar,“ segir hún. Regína segir að mest skoði hún frétta- tengdar síður og þá horfir hún einnig á sjón- varpsþætti á Netinu. „Þegar ég hef ekki verið heima og misst af sjónvarpinu horfi ég á þá þætti sem hægt er að finna á Netinu, frétta- tímana og annað. Svo skoða ég tónlistarsíður á borð við tónlist.is og svo náttúrulega þær síður sem að fólk sem ég þekki heldur úti,“ segir Regína en segist ekki eiga neina eina uppáhalds síðu. „Ekki nema bara síðuna mína,“ segir hún og hlær, en Regína heldur úti heimasíðunni regina.is sem hún uppfærir sjálf. m Regína Ósk Óskarsdóttir Leikir á Internetinu hafa löngum verið vinsælir og hver man ekki eftir Tetris, Majong og PacMan sem var spilaður á Netinu dægrin löng. Síðan þá hefur margt breyst og leikjaúrvalið þar á meðal. Nýj- asta æðið er svokallaður Net- póker sem talsmaður SÁS, sam- taka áhugafólks um spilafíkn segir að sé stórhættulegur. Það er án efa töluverður fjöldi Is- lendinga sem spila póker á Netinu. Það er ekki þar með sagt að allir séu að spila upp á peninga því á þessum síðum er oftar en ekki gefinn sá möguleiki að spila póker án þess að nota kreditkort. Hitt er annað að þessar síður hala vitanlega inn peninga frá viðskiptavinum sínum og því græða þeir meira á þeim ein- staklingum sem spila upp á peninga. Þannig flæða allskyns gylliboð til viðskiptavina þar sem þeir geta spilað upp á peninga en vefsíðan gefur þeim ío dali eða annað eins til að hefja leikinn. Með því er von- ast til að fólk ánetjist leiknum og hafi áhuga á að spila frekar upp á peninga. Fjölskyldur splundrast vegna Netfíknar Pókersíður á Netinu skipta tugum ef ekki hundruðum og því er ljóst að eftirspurnin er mikil. Talsmaður SÁS segir að fjárhættuspil á Netinu sé að mörgu leyti hættulegra en annað fjárhættuspil. „Þetta er hættu- legra að því leytinu til að á Netinu er meiri hugsun á bakvið notkunina og spilafíklar flytja sig til dæmis á milli borða þar sem upphæðin sem lagt er undir er hærri. En þetta er mjög hættulegt og alveg jafn slæmt og annað fjárhættuspil, bæði fyrir spilafíkilinn og hans aðstandendur. Enda fáum við til okkar fólk þar sem fjölskyldan er að splundrast út afNetfíkninni." svanhvit@bladid. net Gríðarlegar upphæðir Á pókersíðunum leynast vafalaust spilafíklar innan um aðra sem spila sér einungis til skemmtunar og því er forvitnilegt að vita hvort spila- fiklar sækjast meira í fjárhættuspil á Netinu vegna þess að skömmin sé ekki eins mikil. „Spilafíklarnir eru algjörlega einir á Netinu og enginn sér þá. En skömmin er sú sama, samt sem áður. Það er alveg sama skömmin og örvinglunin sem grípur spilafíkilinn þegar hann er búinn að spila á Netinu og tapa tugum ef ekki hundruðum þúsunda og ef hann tapar þeim fjármunum við spilakassana. Það hafa komið til okkar menn sem hafa tapað milljón eftir svona netleiki. Þetta eru gríð- arlegar upphæðir. En það er hvorki hægt að banna Netpóker, spilakassa eða annað en það á að vera hægt að stjórna þessu. Til dæmis gætu kreditkortin haft ákveðna heimild á svona síðum eða sett einhvers konar mörk,“ segir talsmaður SÁS að lokum. Nýjasta æðiö er svokallaður Netpóker sem talsmaður SAS, samtaka áhugafólks um spilafíkn telur að sé stórhættulegur. Tapa milljón í Netpóker Netpóker verður sífellt vin- sœlli en talsmaður samtaka áhugafólks um spilaftkn telur pókerinn hcettulegan og sundra fjölskyldum Vottun VISA er þjónusta sem miðar að því að gera viðskipti á Netinu enn öruggari. ■Nv‘>si' ,vu ' * i '• ’v'. -. t.tftll! * • .• It? Eftirtalin fyrirtæki og verslanir eru meðal hinna fjölmörgu sem krefjast Vottunar VISA (Verified by VISA) í viðskiptum við VISA kreditkorthafa á Netinu: British Airways Northwest Airlines Jet Blue Airways TUI Travel Thomas Cook Skype Easy Car Comp USA Office Max Last Minute PC World Walmart Wine Cellar World Pay Play Station Niketown Reebok Petco Fáðu lykilorðið þitt á www.visa.is og nýttu þér Vottun VISA í öruggari viðskiptum á Netinu. V/SA Öruggari netviðskipti ■ Hvernig notar þú Netið?

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.