blaðið - 15.02.2006, Page 4
20 I METIS
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 blaAÍÖ
1Vetið og trúnaður
Sálfrœðimeðferð á Netinu er sögð geta gagnast félagsfœlnu fólki
Þeir eru margir sem nota Netið
reglulega, sumir halda úti blogg-
síðum og átta sig ekki alltaf á
því hvað má segja og hvað ekki.
Það getur t.a.m. orkað tvímælis
ef kennari bloggar um frammi-
stöðu nemenda sinna svo ekki sé
minnst á ef læknir bloggar um
sjúklinga sína. En Netið getur
líka verið mjög gagnlegt til að
blogga og mörgum sem eiga við
vandamál að stríða þykir léttara
að leita sér aðstoðar í gegnum
Netið en að stíga það erfiða skref
að leita sér fagiegrar aðstoðar á
opinberum vettvangi.
„Við höfum fengið eitt mál til um-
fjöllunar út af umfjöllun á bloggsíðu“,
segir Áskell Örn Kárason formaður
siðanefndar sálfræðingafélagsins.
,Það mál kom upp á borð til okkar
í kjölfar ábendingar utan úr bæ og
var viðkomandi kallaður á fund til
okkar.“ Áskell segir að siðanefnd
hafi ekki komið sér upp föstum við-
miðunarreglum í kjölfarið en segir
sálfræðingafélagið hafa strangar
reglur varðandi trúnað. Áskell segir
það hlutverk siðanefndar sálfræð-
ingafélagsins að vera félagsmönnum
til ráðgjafar en gegni ekki endilega
hlutverk refsivalds. „Siðanefndin
þarf að átta sig á því hvenær hlut-
irnir eru á gráu svæði og bregðast
við á viðeigandi hátt.“
Nöfn skjólstæðinga ekki
getið í tölvupóstum
,Umræða hefur orðið um sendingu
gagna í gegnum tölvupóst og hjá
Reykjavíkurborg eru reglurnar
þannig að ekki má geta nafna skjól-
stæðinga í pósti sem sendur er út úr
Áskell Örn Kárason formaður siðanefndar
sálfræðingafélagsins
húsi en á innra netinu er það leyfi-
legt. Sálfræðingafélagið hefur ekki
sett upp opinberar reglur varðandi
trúnað í tölvupóst en það er notað
sem viðmið að nöfn séu ekki birt
þar.“ Hluti af ástæðunni segir Áskell
er sá að alltaf sé ákveðin hætta á því
að póstur lendi hjá röngum viðtak-
anda. Þá er aldrei útilokað að sá,
sem póstinn fær, áframsendi hann.
,Fyrir tíma Netsins voru upplýsingar
gjarnan sendar á faxi á milli stofn-
ana og þar var þessi sama hætta
fyrir hendi.“
Meðferð á Netinu
Er meðferð á Netinu framtíðin?
,1 Bandaríkjunum er hægt að sækja
meðferðarráðgjöf á Netinu, svo-
kallaða e-therapy. Það hefur verið
umræða um þetta hér á landi en sál-
fræðingar hérlendis eru frekar íhald-
samir þegar kemur að því að stunda
meðferð í gegnum Netið. Hér hefur
ekki verið boðið upp á sálfræðimeð-
ferð á Netinu en fyrirspurnum hefur
verið svarað á nokkrum vefsíðum
og má sem dæmi nefna doktor.is."
Áskell segir það geta hjálpað félags-
fælnu fólki sem þorir ekki að fara
alla leið að nota Netið en á móti komi
að erfitt sé að meta skjólstæðinga
þegar persónulega upplifun vanti.
„Þá hafa sálfræðingar sett það fyrir
sig að vera í netsamskiptum við fólk
sem þeir vita engin deili á. Flestir sál-
fræðingar eru einnig á þeirri skoðun
að meðferð í gegnum Netið geti tæp-
lega komið í stað hefðbundinnar
meðferðar en hægt sé að nota þetta
form ef ekki er kostur á öðru. Hins-
vegar nýtist Netið vel til að benda á
fræðslu og aðrar upplýsingar."
h ugrun@bladid.net
Nú er miklu auðveldara að glósa þvl hægt er
að nota vefinn www.glosur.is sem hjálpartæki
Handhægar glósur
Allir þeir sem hafa verið í skóla, sem
eru nú allflestir, þekkja hvað það er
gott og gagnlegt að glósa. Ekki nóg
með það heldur er líka sérstaklega
lærdómsríkt að skoða aðrar glósur
enda á þar við máltækið; Betur sjá
augu en auga. Þegar nemandi hefur
setið daglangt yfir lærdómnum
getur vel verið að hann hafi misst
sjónar á einhverju aðalatriðanna,
eins getur það verið huglægt hvað er
aðalatriði og hvað ekki.
Frí þjónusta
I haust opnaði vefurinn www.glosur.
is þar sem auðveldlega er hægt
að nálgast sem og setja inn alls-
kyns glósur. Vefurinn, sem opnaði
í haust, hefur hlotið mjög góðar við-
tökur og hefur nú þegar um 14.000
notendur, þrátt fyrir að vefurinn
hafi lítið verið kynntur. Á vefnum
eru glósur úr alls kyns fögum, bæði
í háskólum og framhaldsskólum
landsins en vitanlega er vefurinn
einungis ætlaður til stuðnings. Til
að hvetja sem flesta að setja inn
glósur eru þrír heppnir notendur
dregnir út í hverjum mánuði og fá
þeir skemmtilegan glaðning. Glósur.
is býður upp á fría þjónustu en að
sögn aðstandanda síðunnar eru það
helst háskólanemendur sem nýta sér
síðuna og þar ber hæst nemendur úr
Háskólanum í Reykjavík.
FASTEIGNAMIBSTÖBIN
a;
LJshi«iíiii«»^í
íbúðir
fmeignir@fmeignir.is • www.fmeignir.is
»ð 3000
Skiptinemar
sjá heiminn
■ í oorum
www.afs.is
info-isl@afs.org
552 5450
augum
Er skiptinemadvöl eitthvað fyrir þig?
Fjölmörg lönd í boði. Ársdvöl, hálfsársdvöl,
3 mánaða dvöl og 4-6 vikna dvöl. Hafðu samband!
ifiQi at mmt
m
________AFSáíslandl
Alþjóðleg fræðsla og samskipti
_____________________