blaðið - 14.02.2006, Side 6
18 I BÖRW OG UPPELDI
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Bömin hafa áhrif á neyslu heimila
Auglýsingar beinast sífellt meira að börnum ogsamkvœmt talsmanni Neytendastofu eru einhverjar auglýsingar sem ganga oflan
Það er mál manna að auglýs-
ingar séu ekki einungis að verða
ágengari heldur beinist athygli aug-
lýsenda sífellt meira að börnum.
Börn eru með á hreinu hvaða leik-
fang er vinsælast, hvaða skyndi-
bitamatur er bestur og hvaða
vítamín er hollast, enda sáu þau
það allt í barnatímanum. í 8. grein
laga um eftirlit með óréttmætum
viðskiptaháttum og gagnsæi
markaðarins segir að auglýsingar
skuli miðast við að börn sjái þær
og heyri og mega þær á engan hátt
misbjóða þeim. Eins segir að í aug-
lýsingum verði að sýna sérstaka
Fit Food
Hellsnsjoppan
Tilbúin hollusta til að taka með
Margskonar grænmetis- og ávaxta-
bakkar, hollustuianglokur, pasta,
ávaxtaskyrdrykkir, prótíndrykkir
ávextir og grænmeti og margt fleira.
Nýbýlavegi 28, Kópavogi, sími 517-0110
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is
www.avaxtabillinn.is
jUóðwrast
VCbtw vvuAsuxsiwe/lCtCð bcwnið pCttvar?
Cjífteett, med letöbeinln#um/-fráy cvtíL fr
Auðvelt í/notlucn/, marcycvr gerðLr
HomrQborg 7 Sími 564 1451 imjuiu.modurasUs
varkárni vegna trúgirni barna og
unglinga og áhrifa á þau.
Þann 1. mars næstkomandi verður
haldið málþing á vegum Heimilis og
skóla, talsmanns neytenda og Um-
boðsmanns barna sem ber nafnið;
Börn og auglýsingar-Er vilji til að
setja frekari mörk við markaðssókn
sem beinist að börnum?
Anna Elísabet Ólafsdóttir, for-
stjóri Lýðheilsustöðvar, segir að
börn séu einstaklega góður mark-
hópur. „Börnin eru framtíðin og
þeir sem eru að markaðssetja vöru
vilja tryggja að sitt vörumerki stimpl-
ist sem fyrst í huga fólks. Börn hafa
áhrif á neyslu heimila og eru virkir
þáttakendur í heimilishaldi. Þó þau
séu börn þá sjá þau auglýsingar og
spyrja hvort ekki eigi að kaupa þetta
og hitt. Þau hafa því áhrif á fjölskyld-
una og ákvarðanatökuna þótt valdið
sé vitanlega hjá foreldrum og uppal-
endum. Það er einföldun að segja að
foreldrar geti bannað og neitað því
vitanlega hefur það sem börnin segja
áhrif. “
Rætt hvort eigi að setja
mörk á auglýsingar
„Það er ástæða fyrir því að það er
ákvæði í lögunum að sýna beri var-
kárni vegna barna,“ segir Anna Birna
Halldórsdóttir, sviðsstjóri markaðs-
sviðs Neytendastofu, þegar hún er
innt eftir því hvort auglýsingar hafi
önnur áhrif á börn en fullorðna. „Að
okkar dómi er alltaf ein og ein auglýs-
ing sem gengur of langt. Það er alltaf
farið yfir strikið öðru hverju og ég
get ekki ímyndað mér að það teljist já-
kvæð þróun. En við höfum engar for-
sendur til að meta það.“ Samkvæmt
Önnu Elísabetu eru auglýsendur
Börnin eru framtíðin og þeir sem eru að markaðssetja vöru vilja tryggja að sitt voru-C""nl1
merki stimpiist sem fyrst í huga fólks.
alltaf að verða hugmyndaríkari i að
ná augum væntanlegs kaupanda.
„Hugmyndirnar verða alltaf frum-
legri og eftirtektarverðri, það er það
sem menn vilja. Ég held við ættum að
ræða um hvort og hvernig við setjum
mörk á auglýsingar sem beinast að
börnum. Þótt ég taki ekki frekari af-
stöðu til þess þá finnst mér tvímæla-
laust tilefni til þess að fjalla um þetta.
Það koma upp alls kyns vangaveltur
um hvar eigi að setja mörk og þetta
getur verið flókið.“
Ekki með þroska til að meta
boðskap auglýsingar
Anna Elísabet talar líka um að auglýs-
ingar sem beinast að börnum hafa
töluverð áhrif. „Ef þú á annað borð
nærð til barnsins þá held ég að það
hafi töluverð áhrif. Ungir krakkar
eru ekki komnir með þroska til að
meta boðskap auglýsingarinnar og
geta ekki túlkað hann. Þau taka hann
hráan eins og hann kemur þeim fyrir
sjónir. Það kallar enn og aftur á það
að foreldrar tali við börnin sín um
auglýsingar.“
Samkvæmt Önnu Birnu getur verið
mjög erfitt að setja mörk á auglýsingar
en það sé þó alveg möguleiki. „Auglýs-
ingar eru orðnar ágengari en þær hafa
verið. Það er mjög breiður hópur fólks
á málþinginu og það er því um að gera
að ræða þetta og sjá hvort fólk vilji ein-
hverjar breytingar.“
svanhvit@bladid. net
Hverjir ráða á íslandi?
Una Stefánsdóttir
Ég veit það ekki alveg. Ég þarf eiginlega
aðfáað hugsa málið.
Svanhildur Helgadóttir
Forseti fslands. Ég man ekki hvað hann
heitir. Ég hef samt séð hann á mynd og ég mest. Þeir eru á Alþingi
veit að hann er með hvítt hár.
Hákon Elliði Arnarson
Ég man eftir einhverjum körlum sem ráða
Fyrsta íslenska bókin um meðgöngu,
^^Jœðingu og umönnun ungbarna
Eftir Huldu Jensdóttur, brautryðjanda í nútíma fæðingarhjálp
Spennandi og aðgengileg lesning með glænýjum
ljósmyndum úr íslensktun veruleika. Bók sem yljar
öllum um hjartarætur og opnar nýjan heim íýrir þeim
sem bíða eftirþví veigamikla og síbreytilega hlutverki
að verða foreldrar.
• Breytingar á meðgöngu
• Mæðraskoðun
• Ógleði
• Fœðingin og mismunandi aðferðir
• Brjóstagjöf
•Antlleg liðan eftir fœðingu
• Heimilið og fjölskylduaðstceður
■ Ufsstíll
• Matarœði
■ Slökunaraðferðir
• Ungbarnanudd
■ Samband foreldra eftir fœðingu
• Og margt fleira
góðar bækur
Guttormur Pétursson
Forsetinn, hann heitir Ólafur Ragnar
Grímsson. Svo ráða Alþingismennirnir og
Steinunn Valdís. Þau ráða öll saman.
Margrét Karlsdóttir
Það er enginn sem ræður mest. Það eru
allir jafnir.