blaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 8
20 I BÖRN OG UPPELDI ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 bladiö Könnunarleikurinneflirhugmyndaauðgiogsamskiptahœfniyngstu barnanna oghefur gefið afargóða raun í leikskólum landsins Pvottaklemma verður geimflaug bjorn @bladid. net Hiutirnir skipta um hlutverk Halldóra segir hugmyndina komna frá Bretlandi en það voru tvær konur þaðan sem áttu frumkvæðið að leiknum. „Þeirra hugsun var sú að börnin fái að leyfa hugmynda- fluginu að ráða og leiki sér ekki bara með tilbúið dót. Það erum við fullorðna fólkið sem búum til leikföng og með þeim flestum eru leiðbeiningar um hvernig á að nota hlutinn eða hvernig hann á að líta út í lokinn. f Könnunarleiknum ákveða börnin það hins vegar sjálf og hlutirnir skipta um hlutverk. Tvær þvottaklemmur fastar saman geta verið byssa, machintoshdolla með tveimur leggjum er frábært trommusett.og þar fram eftir göt- unum. Börnin fá þannig að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn,“ segir Halldóra. „Það var Hildur Skarphéðinsdóttir, sem nú er yfirmaður hjá mennta- sviði leikskólanna, sem kynntist leiknum þegar hún var í masters- námi í Skotlandi og kynnti þetta á námskeiði hérna. Ég var á þessu námskeiði og varð bara alveg hug- fangin af leiknum en á þessum tíma var ég að taka við yngstu deildinni," segir Halldóra um það hvernig hún kynntist leiknum. „Ég hafði strax samband við Hildi og við fórum af stað með þróunarverkefni. Upphaf- lega voru það sjö leikskólar í Reykja- vík sem byrjuðu með þetta. í fram- haldi af því fór ég að kynna leikinn fyrir öðrum skólum og segja frá því hvernig ég innleiddi hann í minn skóla,“ segir Halldóra. Læra að hugsa sjálf Halldóra segir að reynt sé að láta börnin að mestu afskiptalaus á meðan þau leika sér í Könnunar- leiknum. „Börnin eru nokkur saman í afmörkuðu rými þar sem ekkert truflar þau. Áður en þau koma inn er kennari búinn að raða hlutunum upp í hrúgu á aðlaðandi hátt þannig að þetta virðist heillandi og skemmti- legt. Svo fylgist kennarinn bara með og skiptir sér sem minnst af börn- unum á meðan,“ segir Halldóra. „Á leikskólanum erum við alltaf að skipta okkur af þeim og hafa þessa yfirsýn. En þarna fáum við tækifæri til að setjast niður og fylgjast með einstaklingunum í litlum hóp. Þetta er mjög gott tækifæri fyrir kennar- ann til þess að kynnast börnunum betur og sjá hvernig þau bregðast við,“ segir Hildur. Hún segist ekki hafa tölu yfir þá leikskóla sem notast við Könnunar- leikinn í dag en hún segir þá vera fjölmarga. „Reynslan hefur verið mjög góð og stöðugt fleiri að taka þetta upp. Það sem er svo skemmti- legt við þetta er hversu einfalt þetta er í framkvæmd og svo náttúrulega hafa börnin svo gaman af þessu. Þau detta alveg inn í þetta og virð- ast aldrei fá leið,“ segir Halldóra að lokum. Blaöiö/Frikkl Snillingar framtíðarinnar skemmtu sér konunglega við að leika sér og læra í Könnunar- leiknum á Dvergasteini í gær. „Leikurinn gengur út á að börnin leiki sér að óhefðbundnum efnivið, sem er í raun bara fallegt orð yfir alls kyns verðlaust drasl. Þá er ég að tala um skyrdollur, machintosh- dollur, þvottaklemmur, keðjur og fleira en við leitumst við að efnivið- urinn hafi sem fjölbreyttasta áferð,“ segir Halldóra Guðmundsdóttir um Könnunarleikinn, fyrirbæri sem hefur verið í gangi hjá fjölmörgum leikskólum hér á landi í um þrjú ár. Halldóra er deildarstjóri á yngstu deild leikskólans Dvergasteinn í Vesturbæ en þar er Könnunarleik- urinn í hávegum hafður. „Megintil- gangurinn er kannski sá að þau sjái að það eru fleiri en ein leið að híut- unum. Ef að ein leið gengur ekki þá þarf bara að finna einhverja aðra og þannig læra þau að leysa allar heimsins gátur. Leikurinn á að efla hugmyndaflug og samskiptahæfni barnsins," segir Halldóra, en leikur- inn er hugsaður fyrir yngri börnin sem eru á bilinu 1-3 ára. Auqlýsingadeild 510-3744 Ritstjórn 510-3799

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.