blaðið - 06.02.2006, Qupperneq 5
blaðið MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006
BÍLAR I 19
Hefur safnað Volkswag■
en bjöllum í mörg ár
Guðbjörn Haraldsson œtlaði sér að eiga eina bjöllu í hverjum lit.
Það virðist vera einkennandi
fyrir bílaáhugamenn að þeir taka
ástfóstur við eina tegund bifreiða.
Þetta er svo sem ekkert nýmæli en
hitt er annað að ekki munu þeir
allir vera svo ástríðufullir að þeir
safni tugum slíkra bíla. Það gerir
Guðbjörn Haraldsson bifvélavirki
aftur á móti. Hann tók ástfóstri
við Volkswagen bjöllur árið 1970
og eftir það var ekki aftur snúið.
vegar er mjög erfitt að fá að kaupa
góða bjöllu og Guðbjörn segist telja
að þær séu vart til. Sjálfur segist
hann ekki geta selt sínar bjöllur því
hann sé búinn að eyða svo miklum
peningi í þær en ekkert fáist hins
vegar fyrir þær. Aðspurður hvernig
eiginkonan taki þessu dýra áhuga-
máli segir Guðbjörn: „Hún er svo
þægileg og góð við mig að hún þolir
þetta allt saman. Ég er ekkert að
vinna í bilskúrnum öll kvöld. Ég tek
svona tarnir og hvíli mig inn á milli.
Ég hef svo mörg önnur áhugamál
sem þarf að sinna og eru tímafrek.“
svanhvit@bladid.net
BlaÖið/Frikki
Guðbjöm Haraldsson stendur við gullfallega bjöllu sem hann hefur sjálfur gert upp.
„Ég held ég sé búinn að eiga alls um
49 Volkswagen bjöllur enda hef ég
safnað þeim í mörg ár.
Ég lærði bifvélavirkjun hjá Heklu
árið 1970 og þá tók ég ástfóstri við
Volkswagen. Þetta eru einfaldir
og skemmtilegir bílar í viðgerð.
Núna á ég bara tvær bjöllur og þrjú
rúgbrauð en ég hef bara áhuga á
gömlum Volkswagen bílum, ekki
þessum nýju,“ segir Guðbjörn kátur.
„Ég keyri bílana bara sitt á hvað, eftir
því sem hentar."
99.................
Ég á eina bjöllu heima
í skúr sem er alveg eins
og hún hafi komið beint
úr umboðinu, hún er
árgerð 1973 og er ekinn
73-ooo frá upphafi. Hún
er öll krómi sleginn
og rosalega falleg.
Öll krómi sleginn
Þótt Guðbirni sé annt um alla sína
bíla þá er ein bjalla sem honum
þykir sérstaklega vænt um. „Ég á
eina bjöllu heima í skúr sem er al-
veg eins og hún hafi komið beint úr
umboðinu, hún er árgerð 1973 og er
ekinn 73.000 frá upphafi. Ég gerði
hana upp fyrir tíu árum og þegar
ég fékk hana þá var einungis brettið
ónýtt. Ég keypti því bara nýjan stuð-
ara og nýtt króm. Hún er öll krómi
sleginn og rosalega falleg. Ég keyri
hana bara á sunnudögum og þegar
gott er veður. Ég keyri hana aldrei í
rigningu," segir Guðbjörn og hlær.
„Ég hef reyndar einu sinni farið út á
henni í rigningu. Þá keyrði ég barna-
barn fyrrum eigenda bílsins í brúð-
kaup hennar en hún var einmitt
keyrð í þessum bíl í skírnina sína.
Hún var æðislega ánægð með það.“
Til Bretlands eftir varahlutum
Guðbjörn segir að það sé misjafnt
hve miklum tíma hann eyðir í að
gera upp bílana. „Ég eyddi miklum
tíma í rauðu bjölluna, fór til dæmis
eina ferð til Bretlands að ná í vara-
hluti og hann kostaði mig um 600
þúsund krónur. Einhvern tímann
ákvað ég að ég ætlaði mér að eiga
fjórar bjöllur, gula, rauða, græna og
bláa,“ segir Guðbjörn með kímni í
röddinni. „En svo þarf náttúrlega að
geyma bílana einhvers staðar og ég
er með skúrinn minn fullan af dóti.
Það er einn rauður í bílskúrnum og
svo er ég með einn grænan í geymslu.
Það vantar bara gula og bláa bjöllu.
Ég veit nú ekki hvað ég geri ef ég fæ
þær líka. Þetta er bara svona della.
Eg þekki þessa bíla svo ofboðslega
vel og mér finnst svo ofboðslega ein-
falt að halda þeim gangandi."
Mörg önnur áhugamál
Samkvæmt Guðbirni er lítið mál að
finna varahluti í bjöllur úti í Bret-
landi enda sé ansi margt til þar. Hins
NYR GRAND VITARA
SUZUKI BILAR HF.
'funni 17. Sími 568 5100.
www. suzukibilar. is
SETTU MARKIÐ
HÍTTl
Nýr Grand Vitara, er lúxusjeppi byggöur á grunni Grand Vitara frá Suzuki, einum stærsta
bílaframleiöanda Japans. Grand Vitara er alvöru jeppi af réttri stærð fyrir nútíma fólk
sem gerir miklar kröfur um aksturseiginleika, öryggi og hagkvæman rekstur.
Undir glæsilegri yfirbyggingu leynist sterkbyggð grind, aflmikil vél og fullkomið
fjórhjóladrif með háu og lágu sídrifi með læsingu á milli fram- og afturhjóla.
Það skiptir ekki máli hvort þú ert í borgarumferðinni, eða uppi á fjöllum, einstakir
aksturseiginleikar Grand Vitara gera aksturinn ánægjulegan.
£2