blaðið - 06.02.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 06.02.2006, Blaðsíða 12
26 I BÍldtXt MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 blaöiö . Ford F-350 er fallegur og hagnýtur bíll sem nýtist vel í íslenskri náttúru. Bandarískir þílar henta vel á íslandi Það er vel þekkt staðreynd að Selfyssingar eru allajafna með heilmikla bíladellu. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt að kalla Selfoss „Mekka“ bílasölu á ís- landi enda er þar hátt hlutfall af alls kyns réttinga- og bifreiðaverk- stæðum auk bílasala. IB ehf er ein þessara bílasala en þeir hafa verið leiðandi í sölu á banda- rískum bílum. Bandarískir bílafram- leiðendur eru þekktir fyrir vandaða bíla sem búnir eru einstaklega góðum öryggisbúnaði. Bandarískir bílar hafa jafnan verið vinsælir á ís- landi því þeir þykja henta afar vel við íslenskar aðstæður þar sem þeir eru framleiddir með það fyrir augum að nýtast vel við erfið skilyrði. Dæmi um vinsælan pallbíl sem sagður er henta vel á íslandi er Ford F-350. Bíll- inn er ekki einungis hrein unun að horfa á heldur er einnig mjög ljúft að keyra hann. IB hefur flutt inn þekkt og vinsæl merki eins og Ford, GM, Jeep, Chrysler og Toyota USA. Og þeir hjá IB segja viðskiptavininn ör- uggan því það er tveggja ára ábyrgð á öllum nýjum ökutækjum. svanhvit@bladid. net Nýir sleðar í Hveragerði Hjálparsveit skáta í Hveragerði varð fyrir tugmilljóna tjóni þegar eldur kviknaði í flugeldageymslu sveitarinnar á gamlársdag. Það var skiljanlega mikið áfall þar sem nær allur búnaður félaganna eyðilagðist. Fyrirtækið Stormur ehf afhenti Hjálparsveit skáta í Hveragerði sleða af gerðinni Polaris 4 að gjöf síðastliðinn föstudag. Slitinn Cherokee-jeppi Jeppi fátœka mannsins er uppáhaldsbíll Stefáns Jóns Hafstein .Uppáhalds bíllinn minn er fyrsti jeppinn sem ég eignaðist,“ segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi, sem stendur í ströngu í prófkjöri Samfylkingarinnar þessa dagana. ,Það var í kringum 1990 og þetta var notaður Cherokee, sjálfskiptur, með ansi skemmtilega fjögurra lítra vél,“ segir Stefán en man ekki nákvæm- Musso Sport pallbíl. „Mér fannst kominn tími á að komast aftur á sjálfskiptan. Svo eru þessir pallbílar svo hagstæðir því maður getur skellt Akralind 5 201 Kópavogur Sími 544-4640 www.autosport.is / sérflokki Filmuísetni * vörn gegn sól og UV-geislum, augu, minnka upplitun. og vernda okkar dýrmætustu eign. ”*** Váxtaiausar léttgreiðslur! Njóttu hverrar stundar! AutoSport Bílaleiga Við erum með bíl handa þér! Car Rental Stefán Jón Hafstein lega hvaða árgerð hann var. „Ætli hann hafi ekki verið ‘85 eða ’86 ár- gerð en hann var nú orðinn mjög slitinn þegar ég fékk hann. Þetta var svona jeppi fátæka mannsins," segir Stefán og hlær. „Hann dugði vel í veiðitúrana og það var rosalega gaman að keyra hann. En hann var alveg afleitur í viðhaldi og ég hafði ekki efni á að eiga jeppa sem kallaði á allt þetta við- hald, svo að á endanum gafst ég upp á honum. Viðhaldið drap mig,“ segir Stefán. Hann segist þó hafa haft góð not af bílnum á þeim tveimur árum sem hann átti hann. „Þetta var nátt- úrlega fyrsti jeppinn minn þannig að ég notaði hann alveg í spað. Fór mjög mikið um landið á honum, í veiðitúra og upp á hálendið og svona,“ segir Stefán og bætir við að hann hafi alltaf saknað hans síðan. Ekki bílaáhugamaður Stefán segist hafa átt nokkra jeppa síðan og í dag ekur hann um á húsinu aftan á og þá eru þeir orðnir tipp topp í veiðitúrinn,“ segir Stefán, en hann hefur löngum verið annál- aður veiðimaður. „Ég þarf að geta staflað aflanum aftur í skott,“ bætir hann við og hlær. Stefán þvertekur fyrir að vera bíla- áhugamaður og segist ekki eiga sér neinn draumabíl. „Ég lít á bíla sem tæki sem þjóna ákveðnum tilgangi. Ég geri þá kröfu að bílar séu áreið- anlegir og geti farið með mig yfir þokkalegar ár og fjöll. Ég þarf bíl sem kallar ekki á mikla fyrirhöfn og hann má heldur ekki vera of fínn. Annars myndi ég ekki tíma að fara á honum að veiða eða upp á hálendið,“ segir Stefán. „Ég tími ekki að vera að eyða einhverjum milljónum í þetta. Ég er kannski svolítill nirfill þegar kemur að bílum.“ Blaðamaður endar á því að spyrja Stefán hvernig prófkjörið gangi. „Það gengur vel. Bíllinn sér auðvitað um að bera mig á milli. Það er númer eitt,“ segir Stefán að lokum og hlær. Auglýsingar 510 3744 blaðið=

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.