blaðið - 06.02.2006, Síða 6
20 I BÍLAR
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 blaðiö
© 24.03. Liverpool - Everton 69.900 kr.
WWW.6XpreSSf6rdir.iS Express Ferðir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100
Hreinn bíll er fagur bíll
Eins gaman og það er nú að eiga flottan bíl, keyra
um á honum á götunum og dást að honum úr glugg-
unum þá þarf víst líka að þrífa hann. Fæstum þykir
mjög skemmtilegt að þrífa bíla en það er staðreynd
að það fer vitanlega mikið betur með þá. Já, það er
ljótt að segja en bílinn verður að þrifa mjög reglu-
lega. Hér að neðan má sjá hvernig best er að þrífa
bílinn frá grunni.
Fyrst ber að velja rétta staðinn til að þrífa bílinn. Gott
er að vera í bílskúr eða á bílastæði en varist að það sé
ekki tré fyrir ofan svæðið sem gæti lekið eða hent af sér
laufblöðum á nýþveginn bílinn.
Lokið öllum gluggum og
hurðum. Setjið bílasápu og
vatn í fötu og hafið tilbúið.
En byrjið á því að skola bíl-
inn til að ná helstu drullunni
af honum. Byrjið á þakinu
og vinnið ykkur niður að
dekkjunum.
Gegnbleytið svamp eða klút
í sápufötunni og þvoið þak
bílsins. Gerið það sama við
allar hliðarnar. Vandið ykkur
og passið að fara yfir allt yf-
irborð bílsins. Ekki gleyma
dekkjum, gluggum eða öðru.
Að þessu loknu má skola bíl-
inn vel og vandlega. Eins og
áður þarf að passa að allt sé
þvegið vel og engu má gleyma.
Endurtakið ef þarf.
Þurrkið bílinn. Eins og venju-
lega er best að byrja á þakinu
og vinna sig niður að dekkj-
unum. Ef rúðurnar glansa
ekki nægilega má vöðla dag-
blaði upp og pússa þær þar
til þær skína í gegn. Málm og
króm skal pússa sérstaklega
vel til að koma í veg fyrir að
vatnsblettir myndast.
En það er ekki búið enn. Nú
er komin röðin að því að bíll-
inn skíni að INNAN jafnt
sem að utan.
Fyrst af öllu þarf vitanlega að
henda öllu drasli og rusli úr
bílnum. Siðan má fjarlægja
motturnarábílgólfinu. Hristið
þær og þvoið þær síðan vel og
vandlega, helst með bursta.
Ryksugið bílinn vandlega.
Farið í öll horn, sæti, höfuð-
púða og gólf. Ekki gleyma aft-
urhlið sætanna.
Ef það er blettur á áklæði eða
bílgólfinu þá skulið þið nota
blautan klút og teppasjampó
til að ná blettinum úr. Nuddið
þar til bletturinn hverfur.
Þrífið sjampóið í burtu og
leyfið blettinum að þorna.
Pússið alla gluggana að innan
með dagblaði.
Þrífið mælaborð, hurðarhúna
og allan vínyl innan í bílnum.
Nú er bíllinn orðinn tandur-
hreinn og því ekki seinna
vænna en að fara niður Lauga-
veginn, sýna sig og sjá aðra
flotta bíla!
svanhvit@bladid.net
mmm
Flestum finnst heldur skemmtilegra aö keyra bílinn en að þvo hann. En því miður er það
nauðsynlegt.
Námskeið til aukinna ökuréttinda verður haldið í Reykjavík eða Hafnarfirði
mánudaginn 13. febrúar nk. kl 18 ef næg þátttaka fæst.
ATHIATH!
Erum í sambandi við atvinnurekanda sem vill borga námskeið fyrir 1-2 aðila
að uppfylltum fyrirfram ákveðnum skilyrðum.
Einnig viljum við benda á að nemendum okkar hefur gengið sérstaklega
vel í svokölluðum ÖR-prófum og engum hefur mistekist.
Námskeið til aukinna ökuréttinda
Ath.! Nú greiða verkalýðsfélög
allt að 85.000 kr. af námskeiði
Skráning f 567 9094, 692 4124, 892 4124 og 822 2908
ÖKUSKÓU
SlMI 567 9094
mui;in okurmini)i
LEIGU Blf Rtlft - UÖRUBIFREIÐ - HÓPBIf REI!)
IMP innflutningur ehf - www.imp.is
Sími: 4833227 - gsm 6950227
^:NGRA
O VELTISTÝRI
„UPPGVÖTUN ALDARINIMAR."
Snowtrax
O900VÉUN
„TOGIÐ ER ÓVIÖFJAFNANLEGT."
Snowgoer
-----oiq™ifs
„MEÐFÆRILEGT OG STÖÐUGT
ÓLÍKT ÖLLUM ÖÐRUM."
SnowTec
o POLRHIS
Stormur ehf vill vekja athygli á nauðsin þess að nota hjálm og brynju.
Haga akstri eftir eigin getu og aðstæðum, auk þess á akstur og áfengi enga samleið.
STORMURw
Kletthálsi 15, sími 577 1717
FAR
„Switcheback erfjölhæfasti sleðin á markaðnum
er skoðun „SnowTech" tímaritsins.
Við bjóðum hann með þremur vélum
• Nýrri 600cc HO - rúm 120 hp
• Nýrri 750 cc fjórgengis með forþjöppu
og millikæli -135 hp
• Endurbygðri 900cc. með beinni
innspýtingu -152 Hp