blaðið - 30.08.2005, Page 1
bBadið—
Söluspár:
f'
Metár i sölu nýrra bila
Bjartsýni ríkir hjá bílaumboðum
um þessar mundir enda stefnir allt í
að sala nýrra bifreiða í ár verði meiri
en sést hefur um árabil. Ástæðuna
telja menn að sé að leita i almennum
uppgangi í þjóðfélaginu og auknum
ráðstöfunartekjum heimilanna. Eg-
ill Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Brimborgar, telur að salan geti orðið
um 18 til 19 þúsund bifreiðar á þessu
ári. „Bílamarkaðurinn var í lægð
árið 2002 en hefur farið vaxandi síð-
an þá. Bílar eru háðari kaupgetu en
margt annað í þjóðfélaginu og núna
með vaxandi ráðstöfunartekjum
virðist fólk hafa efni á meiru,“ segir
Egill.
Gerir ráð fyrir minnkandi
sölu á næsta ári
Segja má að bílamarkaðurinn hafi
náð vissri lægð árið 2001 og 2002 en
þá dró úr nýskráningu nýrra bíla
um allt að helming frá árunum þar
á undan. Hjá bílaumboðunum hafa
menn þó ekki áhyggjur af því að sal-
an muni detta niður i sömu lægðir,
allavega ekki á næstunni. „Einhvers-
staðar er vissulega þakið þar sem
markaðurinn verður að mestu mett-
ur en á móti kemur að í efnahags-
legri uppsveiflu er ekki óalgengt að
yngri bílar séu endurnýjaðir,“ segir
Kristinn Bjarnason, markaðsstjóri
P.Samúelsson umboðsaðila Toyota.
Hann bendir á að það hafi sýnt sig
að bílamarkaðurinn sé bylgjukennd-
ur en í dag sé heildaraukning á lín-
una og heimilin í landinu ekki að-
eins að endurnýja bíla heldur einnig
að bæta við bílaflotann. Undir þetta
tekur Egill en telur þó að toppnum
sé náð. „Flestir bjuggust við að mark-
aðurinn mundi ná toppnum á næsta
ári en ég held að við séum að upplifa
hann núna. Maður les þetta úr hag-
tölum og því hvernig ráðamenn tala.
Ég geri ráð fyrir því að salan muni
minnka um 20% á næsta ári.“
Innflutningur einstaklinga
Mikið hefur verið rætt um að ein-
staklingar séu í meiri mæli að flytja
sjálfir inn sína bíla framhjá umboð-
unum. En þrátt fyrir að tölur sýni
að slíkur innflutningur fari vaxandi
telja menn hjá bílaumboðunum það
ekki hafa áhrif á sölu hjá þeim. Þeir
benda á að hinn svokallaði „grái
markaður" hafi alltafvaxið samhliða
vexti hins almenna markaðar og í
sumum tilfellum jafnvel hraðar. Því
hafi þetta ekki mikil áhrif. Egill segir
að hjá Brimborg fagni menn jafnvel
því að mikið sé um innflutning á
Ford frekar en á öðrum bfltegundum.
„Við veitum eigendum Ford þjónustu
og seljum varahluti í þær bifreiðar.
Bara á þessu ári hefur sala á varhlut-
um í Ford tffaldast."
Umboðin hirða ekki gengishagnað
Bent hefur verið á að innflutning-
ur einstaklinga væri eflaust minni ef
bílaumboðin hefðu látið neytendur
hagnast meira á sterkri stöðu íslensku
krónunnar gagnvart erlendum gjald-
miðlum. Þessu neita Egill og Kristinn
og telja þvert á móti að umboðin hafi
sannarlega mætt neytendum í þess-
um máli. „Menn þurfa að horfa á
lengra tímabil í þessum málum. Árið
1999 var krónan mjög sterkog veiktist
svo skart tveimur árum síðar án þess
að bílaverð hafi breyst," segir Egill og
bætir við að ættu umboðin að fylgja
eftir bæði verðbólgu erlendis og geng-
issveiflum ættu bílar að hafa hækkað
um a.m.k. 12% sl. fimm ár en það hef-
ur ekki gerst. „Sala á Ford bílum hef-
ur t.d. aukist til muna og við værum
ekki að horfa á svona söluaukningu
ef einhver fótur væri fyrir þessu.“
Nýskráning alls
Þarafnýskráning
notaðra bifreiða
Skv. tölum frá
BHgreinasambandinu
2000 2001 2002 2003 2004 2005 (jsn-Júl)
Ár
Allt á einum stað
fyrir bílinn þinn...
bilaattan.is
Smiójuvegi 30
Sími 587 1400
Verslun
Verslun • Smurstöð • Bílaverkstæði • Dekkjaverkstæði