blaðið - 30.08.2005, Page 2
18 I BÍLAR
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2005 blaöiö
Volkswagen:
Nýog
endurbœtt
ný bjalla
Volkswagen setur á markað í
september nýja bjöllu sem feng-
ið hefur nokkra andlitslyftingu.
Útlitsbreytingin felst í því að
kominn er sléttur kantur í utan-
verð brettin, ljósum hefur verið
breytt og ný efni notuð í innrétt-
ingu. Þá hefur verðið einnig ver-
ið lækkað eilítið.
Þá verða álfelgur staðalútbún-
aður á bflunum sem og fram-
og hliðarloftpúðar. Einnig er
geislaspilari staðalbúnaður og
rafmagns rúðuupphalarar, raf-
stýrðir speglar, fjarstýrð saml-
æsing og þjófavörn.
Hægt er að fá enn aflmeiri
VW bjöllur og ekki víst að gömlu
góðu bjöllurnar hefðu borið slík-
an kraft. Þannig má fá 148 hest-
afla, 1,8 lítra túrbó útgáfu en 170
hestafla, 2,5 lítra V5 útgáfan er
ekki lengur í boði. Verðið á túr-
bó-útgáfunum erlendis verður
sem svarar tæpum 2,2 milljón-
um króna, en ómögulegt er að
segja fyrir um hvað hún kostar
þá hingað komin.
Lúxusjeppar:
Dýrir, en meiui tá líka
mikið fyrir peninginn
Undanfarin ár hefur jeppaeign
Islendinga stóraukist og ræð-
urþar vafalaust margt. Fleiri
hafa ráð á því að eignast og eiga
stóra jeppa nú en áður, þannig að
vafalaust eru margir sem hafa látið
verða af þvi að uppfylla þarfir sínar
á því sviði. Aðrir hafa öryggi sitt og
sinna efst i huga, en jepparnir eru í
senn sterklega byggðir og ólíklegri
til þess að lúta duttlungum óblíðr-
ar veðráttu landsins. Þá má ekki
gleyma því að jeppamennska er
orðin að áhugamáli hjá þúsundum
manna, sem hafa gaman af bílum
og náttúru landsins. Að lokum eru
sjálfsagt margir, sem festa kaup á
glæsilegum jeppum sem stöðutákni
og margir þeirra hafa vísast aldrei
farið út fyrir borgarmörkin.
Síðustu ár hefur þó sérstaklega
fjölgað svokölluðum lúxusjeppum,
sem eru í senn kraftmikil torfæru-
tæki og eðalvagnar. Þetta eru glæsi-
lega hannaðir bílar, þar sem ekkert
er til sparað hvað varðar kraft, ör-
yggi og þægindi. Verðið er enda oft
eftir því og þeir dýrustu geta kost-
að hátt á annan tug milljóna. Vilji
menn kaupa dýrari bíla er svo alltaf
hægt að bjarga því með aukabún-
aði á borð við demantsskreyttri gír-
stöng eða innbyggðu heimabíói.
List og verkfræði
Einn glæsilegasti lúxusjeppi
heims er vafalaust Porsche Cayenne
og hefur honum verið lýst sem hníf-
jafnri blöndu listar og verkfræði.
Það er ekkert út á hann að setja sem
jeppa, en uppruninn leynir sér ekki
heldur, því hann er öðrum þræði
sportbíll. Viðtökurnar hér á landi
hafa heldur ekki látið á sér standa.
Mörgum hefur verið hugleikið að
vita hvað slíkir eðalvagnar kosta, en
verðið hefur ekki legið fullkomlega
fyrir, enda er hver og einn þeirra
jafnan sniðinn að þörfum kaupand-
ans.
En þegar betur er að gáð kann Cay-
enne ekki að vera jafndýr og marg-
ur hyggur, þó vissulega megi lengi
bæta við. Porsche Cayenne S, sem
er með 340 hestafla 4,5 lítra V8 vél,
kostar til dæmis 7.450 þúsund krón-
ur. Það er vissulega ekki gefið, en er
ekki heldur óviðráðanlegt verð. En
síðan má líka segja að það sé ekki
svo mikið þegar haft er í huga hvað
fæst fyrir þetta verð.
Cayenne S er aðeins 6,8 sekúnd-
ur í hundraðið og hefur 242 km há-
markshraða. Um gæðin þarf ekki
að efast, en síðan er líka alls kyns
hátækni og staðalbúnaður, sem fer
langleiðina með að skýra verði. Þar
má nefna PSM Porsche stöðugleika-
kerfi, PTM Porsche gripstjórnar-
kerfi, ABD gripstýring, TCS sjálf-
virk spólvörn, ítengt fjórhjóladrif,
loftkældir diskar á öllum hjólum.
sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum,
18 tommu léttmálmsfelgur og svo
framvegis.
öryggisbúnaður er eins og hann
gerist bestur, en einnig er mikið
af þægindabúnaði á borð við akst-
urstölvu, leðursæti, rafstillanlega
framstóla, hljómtæki með 4 x 18
w mögnurum og 12 hátölurum og
hanskahólf með kælingu.
Allur þessi búnaður fer langleið-
ina í að útskýra verðið, en síðan eru
menn líka að fá Porsche og það eitt
finnst mörgum mikils virði. Þann-
ig að kannski lúxusjeppi á borð við
Cayenne S sé ekki svo dýr eftir allt
saman.
Velkomin i stærstu
varahlutaverslun landsins
Bílanaust hf - Bíldshöfða 9 - sími 535-9000 - www.bilanaust.is