blaðið - 30.08.2005, Blaðsíða 4
20 I BÍLAR
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2005 blaðiö
Hvað skal skoða á notuðum bílum?
Bílasala á íslandi hefur sjald-
an verið meiri, en um leið
er framboð notaðra bíla afar
mikið. Verð þeirra hefur raunar lít-
ið lækkað enn sem komið er, enda
hafa margar fjölskyldur notað tæki-
færið til þess að bæta við öðrum eða
þriðja bílnum á heimilið. Eins hafa
margir notfært sér lágt gengi Banda-
ríkjadals til þess að kaupa sér notað-
ar drossíur að vestan.
En það er vandi að kaupa sér not-
aðan bíl. Flestir eru þeir þrifnir og
stífbónaðir áður en þeir eru settir á
sölu og seljendurnir reyna oftast að
bæta verstu vankantana, a.m.k. þá
sýnilegu.
Viti menn ekki þeim mun meira um
bíla er rétt að athuga notaðan bíl
af kostgæfni áður en spírurnar eru
lagðar á borðið. Best er auðvitað að
fá bílvirkja eða a.m.k. bíladellukarl
til þess að skoða gripinn með sér.
Þeir geta þá bent á það sem kann að
vera að, áætla kostnað við viðgerðir
eða aukið viðhald í framtíðinni og
mjög sennilega geta athugasemdir
þeirra orðið til þess að lækka verðið.
En menn geta athugað margt sjálf-
ir án þess að vera útlærðir í faginu.
Það er ekki nóg að sparka í dekkin og
skella hurðum, þó það sé vissulega
góð byrjun. Hér á eftir fer gátlisti að
fyrirmynd FÍB yfir það helsta, sem
ástæða er til þess að athuga.
VATNAGARÐAR 38, GEGNT IKEA
SÍMI 517 0000 - FAX 517 0005 - PLANID@PUNID.IS
• Er lakkið skemmt
eða séstryð?
• Notið ísskápssegul til
að athuga hvort gert
hafi verið við með plast-
fylliefnum. Segullinn
dregst aðeins að járni.
• Bendir eitthvað
til að bíllinn hafi
skemmst í árekstri?
• Bankið í bretti þar
sem þau eru fest og í
kringum Ijósin, því þar
er mikil hætta á ryði.
• Athugið ryðmyndun
og frágang ryðvarn-
ar í hjólbogum.
• Móða innan á bílrúðum
í þurrviðri getur verið
vísbending um ryð.
• Athugið hvortyfir-
bygging hafi skekkst.
• Falla hurðirvel
aðstöfum?
• Er framrúða rispuð eða
skemmd eftir steinkast?
• Lyftið gólfmottum,
mottu í skotti og gáið
undir varadekkið til
þess að leita að ryði.
• Er hlaup í stýri?
• Athugið smurþjónustubók.
Þefið afteppum, myglu-
lykt getur bent til leka.
Skrúfið rúðurnar upp
og niður, athugið slit
í lömum með því að
lyfta undir hurðir.
Athugið kælivatn á vél
- engin olía má vera í vatn-
inu. Olía í kælivatni gæti
bent til þess að -"head-
pakkning"sé léleg eða
að blokkin sé sprungin.
Eru óhreinindi eða
olía utan á vélinni?
Athugið hvort dropar séu
undirbifreiðinni. Kanna
þarfhvort um sé að ræða
vélarolíu, bensín, bremsu-
vökva, kælivatn eða ann-
að. Sé leki getur viðgerð
verið kostnaðarsöm.
Athugið dekkin. Mynstur-
skorurnarskulu vera a.m.k.
1,6 mm á dýptþarsem þeir
eru mestslitnir og dekkin
eiga öll að vera sömu gerð-
ar. Skoða þarfhvort hjól-
barðarséu misslitnir. Ekki
má vera hlaup í hjólum.
Eru felgur dældaðar?
Það getur verið ábend-
ing um að bílnum hafi
verið ekið óvarlega.
Ræsið vélina. Hlustið eftir
óeðlilegum hljóðum.
Athugið útblásturs-
kerfið. Erþað óryðgað,
eru fyllingar í því eða
festingar lausar?
Stígið fast á bremsuna.
Fótstigið á ekki að fara
alveg í botn, heldur á að
vera gott bil niður að gólfi.
• Lítur bifeiðin almennt
út fyrir að vera illa hirt?
Það getur gefið vísbend-
ingu um að annað
ástand sé ekki í lagL
• Athugið rafgeymi, er
útfelling við pólana?
• Mælið olíu á vélinni.
Lítil eða óeðlilega
þykk olía bendir til að
vélin sé mjög slitin.
Athugið demparana
með því að ýta á brettið
yfir hverju hjóli. Haldi
bíllinn áfram að fjaðra
geta höggdeyfar verið
bUaðir eða ónýtir.
• Athugið kílómetramæli.
Berið álestur saman við
almenntútlitogaldur
bifreiðarinnar. Reikna má
með að meðalakstur sé frá
15.000-18.000 km á ári.
Allar nánari upplýsingar i simum 866-5354 og 533-2100
Auglýsingadeild 510-3744
blaði6=
Alhliða lausn í
bílafjarmögnun
. $
LYSING
Suóurlandsbraut 8
to8 Reykjavík
s: 540 1500
www.lysing.is
HÖFÐAHÖLLIN
Vagnhöfða 9 - Sími 567-4840 og 660-0565
BÍLASALAN
m fc
BILASALAN.IS
. o '
Range Rover 4.4
3/2002 ek 54.000km
20" felgur, Navigation,
TV, Leður, lúga, hiti (stýri
Lán 4.900.000,-
Verð 7.900.000.-
, Tilboð 7.2900.-