blaðið - 30.08.2005, Blaðsíða 9

blaðið - 30.08.2005, Blaðsíða 9
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2005 BÍLAR I 25 betur sem Opel, ætlar að kynna Opel Twin Top, sem er með inndrag- anlegum hörðum toppi. Það sem er óvenjulegt við hann er að toppurinn er í þremur hlutum og leggst saman bak við aftursætin. Hægt verður að fá hann með i,6, i,8, og 2,o lítra vélum, en sú síðast- nefnda skilar 200 hestöflum. GM segir að bíllinn hafi verið hannaður sem blæjubíll frá grunni, þannig að grindin er sterkari en gengur og ger- ist um marga blæjubíla, sem eru lít- ið annað en afskornir farþegabílar. Honda Civic: Nýr bíll, sama nafnið Honda kynnti hugmyndir sínar um áttundu kynslóð Honda Civic á bíla- sýningunni í Genf, en endanlegri útgáfu verður hleypt af stokkunum í Frankfurt. Að útliti verður Civ- ic ekki ósvipuð öðrum Hondum í smærri kantinum og það segir sína sögu að sá sem stýrði hönnun og smíði nýja Civicins er sá sami og bar ábyrgð á Honda Jazz, sem hefur farið sigurför um heiminn. Lögun- in er nánast framúrstefnuleg, en að innan hefur tekist einstaklega vel að nýta rýmið til hagræðis og þæginda fyrir ökumann og farþega. Civic verður með 1,8 Htra bens- ínvél, en svo má fá 1,4 eða 2,2 lítra dísilvélar. Hægt verður að fá sex gíra beinskipta útgáfu af nýja Civicnum, en Honda ætlar augljóslega að gera hann að einum glæsilegasta bíln- um í sínum stærðarflokki og því er hann hlaðinn staðalbúnaði. Menn eru farnir að venjast því að flestir bílar stækka með árunum og nýjum útgáfum. Þetta á ekki við um nýja Civicinn, en hann verður minni og lægri en fyrirrennarinn. Á hinn bóg- inn er hann eilítið breiðari en áður. Fiat sækir í sig veðrið 2277 567 NYJA BILAHOLLINN | v/ Breiðhöfða • www.notadirbilar.is FORD ESCAPE LTD luxury-comfortpakki árg 05 km 19 ssk leður lúga krókur og fl verð 3.390 litir: SVARTUR, GRÁR, SILFUR. Nýja Bllahöllin - Bllkjarninn Eirhöfða, 110 Reykjavlk www.notadirbilar.is Smábíll alþrif Fólksbill aíþrif Jepplingur alþrif Jeppar alþrif Eftir erfiðleika undanfarinna ára hefur Fiat mjög sótt í sig veðrið og það er ekkert slegið af. I Frankfurt verður kynntur til sögunnar nýr bíll: Grande Punto, en það er - eins og nafnið bendir til - stóri bróðir Fiat Punto. Punto hefur selst í sex milljónum eintaka, síðan hann var kynntur til sögunnar fyrir 12 árum, en Grande Punto er þó ekki ætlað að leysa hann af hólmi. Punto verð- ur áfram framleiddur, en Grande Punto er fyrir þá sem vilja aðeins meira. Hönnunin er eins ítölsk eins og hugsast getur, bæði að utan og innan, en vélaraflið er í stíl við hina evrópsku hneigð: 2 bensínvélar og 4 dísilvélar með túrbó. Skoda gefur í Islendinga hafa líkt og aðrir orðið varir við ótrúlega endurfæðingu Skoda á síðustu árum. Skoda er raun- ar fornfrægur bílaframleiðandi, en eftir fall járntjaldsins keypti Volks- wagen fyrirtækið og hefur gert Skoda að eftirsóttum og ódýrum bíl með þeim árangri að verksmiðj- urnar anna ekki eftirspurn. I Frank- furt verður kynntur nýr Skoda, sem verður hraðskreiðasti bíll verksmiðj- unnar til þessa. Þetta er Octavia vRS, sem fá má sem hlaðbak eða skutbíl. I honum verður 200 hestafla 2 lítra túrbóvél með beinni innspýtingu, sem kemst á hundrað kílómetra hraða úr kyrrstöðu á 7,3 sekúndum, en hámarkshraði verður um 240 km/klst. Glænýr Honda Civic verður byggður á þessum framúrstefnulega hugmyndabíi. Von er á nýjum Audi jepplingi, sem er með afar alvörugefið grill. Opel Astra með harðri blæju. Fiat Grande Punto. Opel kynnir blæjubíl Blæjubílar hafa af augljósum ástæð- um aldrei notið almennra vinsælda á íslandi, en þó hefur meira sést af þeim upp á síðkastið en nokkru sinni fyrr. Ekki síst á það við um blæjubíla með hörðum toppi. Evr- ópudeild GM, sem við þekkjum HPI Savage fjarstýrður bensínbíll. Fáanlegur með þremur vélastærðum 3,5,4,1 og 4,6cc. Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.