blaðið - 17.10.2005, Blaðsíða 4

blaðið - 17.10.2005, Blaðsíða 4
20 I MATUR MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 MaAIÖ ryGœti það veríð betra?" -Melabúðin bœtir enn við sig tryggum viðskiptavinum á sínu fimmtugasta starfsári Oft er talað um að ákveðið andrúms- loft eða stemmning einkenni Vesturbæ Reykjavíkur. Henni er erfitt að lýsa eða fanga með orðum svo vel sé en kannski mætti ímynda sér að viðhorf íbúa borg- arhlutans til hans taki nokkuð mið af rómantískum hugmyndum um líf í smábæjum og -þorpum á síðustu öld. Sá sem vildi skilgreina og skilja ítar- lega hvað felst í meintum anda Vestur- bæjar gæti gert margt vitlausara en að hefja rannsókn sína í Melabúðinni en þar má segja að hverfisstemmningin birtist hvað skýrast og jafnvel kristall- ist í vinalegu viðmóti starfsfólks og viðskiptavina. I það minnsta bar ekki á öðru þegar fulltrúa Blaðsins bar að garði fyrripart miðvikudags í síðustu viku. Starfsfólk- ið rölti raulandi milh bása og brosti við glaðlegum viðskiptavinum sem týndu hráefni í máltíðir næstu kvölda úr þétt- skipuðum hillum og ofan í körfurnar sínar. Ilmurinn af hinum fræga grill- aða kjúklingi lá í loftinu og frystivöru- borðið gaf frá sér lágvært suð. 50% afsláttur í þrjá mánuði og loka svo sjoppunni! Melabúðin hefur alla tíð verið fjöl- skyldufyrirtæki, nokkuð sem aðstand- endur hennar vilja meina að eigi ríkan þátt í velgengni verslunarinnar. Hún var stofnuð af Guðmundi Júlíussyni fyrir rétt tæplega hálfri öld, nánar til- tekið þann 4. júlí árið 1956, en nú sjá tveir synir hans, þeir Pétur Alan og Friðrik Ármann, um reksturinn. Að- spurður vill Friðrik ekkert gefa út um hvort eða hvernig fimmtugsafmælinu verði fagnað: „í gamni hef ég sagt fólki að við verðum með 50% afslátt af öllu í þrjá mánuði og lokum svo sjoppunni. En það verður varla,“ segir Friðrik og hlær. Verslunin hefur verið rekin í sama húsnæði frá upphafi, en var þó Htið eitt minni um sig ffarnan af, þar sem hún deildi plássinu með mjólkurbúð. Friðrik segir: „Þegar hún var aflögð tókum við yfir þann hluta hússins og við þá breytingu varð verslunin sú önnur stærsta á landinu. Nú er þetta bara krækiber í helvíti miðað við ris- ana, kæmist fyrir í mjólkurkæli sumra þeirra." Þegar Melabúðin hóf störf skar hún sig frá öðrum hverfisverslunum með því að hafa kjötborð, en á þeim tíma var venja að kjötmeti væri sótt í þartil- gerðar sérverslanir. Samkvæmt Frið- riki hafa ekki orðið mikil stakkaskipti á rekstrinum ffá upphafi, umffam það sem eðlilegt gæti talist. „Það má segja að í áranna rás hafi verslunin þróast í að vera meiri sælkerabúð með áherslu á gott vöruúrval og hátt þjónustustig. Við erum með ótrúlega mikið úrval, það er með ólíkindum hvað hægt er að koma hér fyrir af vöru og við reynum að vera með á nótunum hvað varðar nýjar og spennandi tegundir, sérvöru og annað þvíumlíkt. Við höfum oftar en ekki verið á undan öðrum með ým- w 7°0% VIÐ^ 0öö<^ ^rJURTAOLlu^^^ 79^4e(NlNGUMlt^ Létt með smjörbragði www.smyrja.is islegt sem hefur síðar orðið vinsælt og erum stolt af því.“ Friðrik tekur fyrir að giska á hve margar vörutegundir er að fmna í þessari litlu verslun en segir þó að það hlaupi á einhverjum þúsund- um og fullyrðir að Melabúðin standi yfirleitt fr amar stærri verslunum hvað varðar vöruúrval. „I grænmetisborð- inu einu eru nær 200 tegundir, svo dæmi sé tekið. Pældu í því.“ Hvort heldur ráðsmenn eða ráðherrar Friðrik vill sem sagt meina að vel- gengni Melabúðarinnar byggi að mestu á góðu vöruúrvali, sanngjörnu verði og vinalegu viðmóti. „Fólk er mikið að sækja í kjötborðið okkar og ferska fiskinn, verðið þar er lægra en í öðrum sambærilegum verslunum og úrvahð jafnvel enn betra. 1 kjötborð- inu finnur þú svipað úrval og í stærstu verslununum að viðbættri sérstakri áherslu á ferskleika hráefnisins sem við stillum þar upp. Fyrripart vikunn- ar leggjum við meiri áherslu á fisk og fiskrétti, sem taka þá meirihlutann af borðinu. Þegar Uða fer á vikuna tekur kjötið svo smám saman yfir og undir helgina er það allsráðandi - steikur, naut og lamb. Svo getur fólk sagt okkur til hvernig það vill fá matinn sinn með- höndlaðan, við marinerum, kryddum og skerum eftir óskum viðskiptavinar- ins. Sé fólk með sérþarfir reynum við að bregðast við þeim eftir bestu getu, ég hef til dæmis útvegað kanínukjöt við nokkur tækifæri. Ég held að úrvalið hafi ansi mikið að segja um vinsældir verslunarinnar, en þjónustan - þ.e.a.s starfsfólkið sem heldur henni uppi - og öll samskipti sem eiga sér stað hér í búðinni laða líka að. Umhverfið er svolftið þannig, smæðarinnar vegna m.a., að stemmn- ingin verður náin og persónuleg. Það er ennfremur meðvituð stefna okkar að halda því svoleiðis, að sjálfsögðu; hér standa háir sem lágir saman í bið- röð við kjötborð eða kassa og spjalla, hvort sem þar fara ráðsmenn eða ráð- herrar. Við eigum mjög fastan kjarna viðskiptavina sem koma hvaðanæva að úr hverfinu, að sjálfsögðu, en svo er fólk að koma alls staðar af stórhöfuð- borgarsvæðinu og jafnvel landsbyggð- arfólk sem á leið í bæinn og hefur heyrt orðspor okkar. Þetta er mjög sérstök verslun." Rammíslenskar Speltkökur og Kartöflukökur af Ströndum 100 ára hefð og ekkert nema hollusta DRANGABAKSTUR KRINGLUNNI Slmi: 568 6440 I busahold@busahold.is Stálpottasett á góðu verði Brúðhjónalistar og gjafakort búsáhöld Þú borðar þær með uppáhalds álegginu, kannski ylvolgar úr ofninum, ristaðar, með hvítlauksolíu, stundum eins og pizzur ...eða eins og Strandamenn, glænýjar með íslensku smjöri. Fáðu þér Speltköku og Kartöfluköku í næstu matvöruverslun. Hollara brauð finnst varla. <RsS&r „Óhugsandi að við flytjum" Melabúðin grundvallast eins og áður sagði að miklu leyti á stórum hópi tryggra viðskiptavina sem sumir hverj- ir hafa verslað nauðsynjavörur þar allt frá upphafi. „Það týnist nú reglulega úr þessum upphaflega kjarna með ár- unum en alltaf bætast nýir í hópinn og reglulegum viðskiptavinum okkar fer fjölgandi með hverju árinu frekar en hitt, enda er Vesturbærinn alltaf að stækka [hlær]. Hér er mikið „rennerT og mér reiknast svo til að verslunina heimsæki nær þúsund manns dag hvern. Þessi hraða velta viðskiptavina auðveldar okkur mikið að halda úrval- inu góðu, vörunum ferskum og þjón- ustustiginu háu, en galdurinn á bak við það er annars að vera alltaf á tán- um, fylgjast vel með og hafa gott fólk í vinnu. Kjötiðnaðarmaðurinn okkar, Unnar Stefánsson, er t.a.m. búinn að vera hjá okkur í áraraðir og hugsar mjög vel um kjötdeildina." -Geta Melabúðarmenn hugsað sér að stœkka við sigeða jafnvelflytja verslun- ina? „Ég sé nú ekki fyrir mér að hægt verði að stækka búðina meira en orðið er, það yrði þá að vera á hæðina og það er alveg óhugsandi að við flytjum. Það má segja að okkur sé kannski þröngur stakkur sniðinn en þetta er Melabúðin og það eru þessi þrengsli og þessi litla verslun sem fólk er að sækja í - pláss- leysið á sinn þátt í því að skapa þetta sér- staka umhverfi sem ríkir hérna inni.“ -Hefur þú eitthvað að segja að lokum? „Bara yndislegt, lífið er yndislegt í Vesturbænum. Það er nóg að gera þeg- ar maður er á hlaupum allan daginn, þá líður hann fljótt og maður er kátur í sínu litla hjarta. Þetta er verslun með gott hjarta og hingað kemur gott fólk í hundraðatali að heimsækja okkur dag hvern. Gæti það verið betra?“ haukur@vbl.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.