blaðið - 19.04.2006, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 blaöiö
32 l
Avísun
á bœkur
Vika bókarinnar hefst á morgun,
miðvikudaginn 19. apríl og
stendur til þriðjudagsins 25.
apríl. í tilefni þess fær hvert
heimili á landinu senda þúsund
króna ávísun sem gildir sem
innborgun á bækur sem gefnar
eru út af íslenskum bókaútgef-
endum. Til að ávísunin teljist
gild þarf að kaupa bækur fyrir
að lágmarki 3000 krónur.
„Þessi hugmynd hefur augljós-
lega verið vítamínsprauta fyrir ís-
lenska bókaútgefendur sem aldrei
áður hafa á þessum árstíma sent
frá sér jafn margar bækur. Ég held
að ég geti fullyrt að aldrei hafi út-
gáfan verið jafn metnaðarfull og
nú,“ segir Bryndís Loftsdóttir vöru-
stjóri íslenskra bóka hjá Pennanum
Eymundsson. „Ég giska á að í apr-
íllok verði komnar 150-200 bækur
sem gefnar hafa verið út á þessu
ári. Það er örugglega búin að vera
jólastemmning í prentsmiðjunum
á undanförnum dögum, unnið
nótt við dag til að koma þessu öllu
á pappír og í band.“
99....................
Fyrír nokkrum árum
virðist þó einhver snill-
ingurinn hafa fengið þá
séríslensku hugmynd að
lengja þennan alþjóða
dag í heila viku. Þá fór
að skapast svigrúm til
að gera hitt og þetta.
Dagur verður að viku
Hinn alþjóðlegi Dagur bókarinnar
er 23. apríl sem er afmælisdagur
William Shakespeare, og reyndar
einnig Halldórs Laxness. Hér á
landi hefur ekki einungis verið
haldið upp á Dag bókarinnar
heldur haldin Vika bókarinnar.
Bryndís lýsir þróuninni á þennan
hátt: „Ég man fyrst eftir því að
Auður Jónsdóttir. Hef ur flutt sig til JPV útgáfu.
Auður
til JPV útgáfu
Auður Jónsdóttir rithöfundur hefur
ákveðið að flytja sig til JPV útgáfu
en bækur hennar hafa áður komið
út hjá Máli og menningu.
Auður hefur þegar skipað sér
á bekk með helstu rithöfundum
landsins. Síðasta skáldsaga hennar,
Fólkið í kjallaranum, hlaut íslensku
bókmenntaverðlaunin 2004 og var
ennfremur tilnefnd til Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs. Auður
Jónsdóttir er fædd 1973 og hefur
þegar sent frá sér þrjár skáldsögur,
en fyrsta skáldsaga hennar, Stjórn-
laus lukka, var tilnefnd til íslensku
bókmenntaverðlaunanna.
Auður hefur einnig sent frá sér
þrjár barnabækur en ein þeirra,
Skrýtnastur er maður sjálfur, er bók
fyrir börn um Halldór Laxness, afa
Auðar. Hún var kosin besta barna-
bókin í kosningu íslenskra bók-
sala 2002 og hlaut viðurkenningu
Upplýsingar - félags bókasafns- og
upplýsingafræðinga sem besta
fræðibókin handa börnum 2002
og var loks tilnefnd til Islensku
bókmenntaverðlaunanna.
Auður vinnur að nýrri skáld-
sögu um þessar mundir en ekkert
hefur verið ákveðið um útgáfutíma
hennar.
Bryndís Loftsdóttir. Er önnum kafinn þessa dagana við að undirbúa Viku bókarinnar sem hefst á morgun.
BlaöiÖ/Frikki
Dagur bókarinnar hafi dúkkað
upp í bókabúðum fyrir rúmlega
tíu árum. Vel má vera að hann hafi
verið haldinn í hundrað ár en þetta
var í fyrsta skipti sem ég varð vör
við hann. Mig minnir nú að þetta
hafi verið hálf klaufalegt í fyrstu,
aðeins var talað um Dag bókar-
innar sem er alþjóðlegur. Hér á Is-
landi gekk hann þó oftar en ekki
illa upp þar sem þessi dagsetning
23. apríl virðist svo gjarnan lenda
á rauðum dögum, um páska eða
á sumardeginum fyrsta. Lítið var
gert úr deginum í nokkur ár, kalda-
stríðsleg plaköt voru send í versl-
anir og á bókasöfn deginum áður
og tekin jafn harðan niður aftur.
Fyrir nokkrum árum virðist þó
einhver snillingurinn hafa fengið
þá séríslensku hugmynd að lengja
þennan alþjóða dag í heila viku. Þá
fór að skapast svigrúm til að gera
Smásagnasamkeppni Mannlíís
Tímaritið Mannlíf í samvinnu við
Hið íslenska glæpafélag beinir
sjónum sínum að sakamálum í
smásagnasamkeppni ársins 2006.
I fyrra gaf Mannlíf út fylgirit með
sex hrollvekjum sem valdar höfðu
verið bestu innsendu sögurnar. Gríð-
arleg þátttaka var í keppninni og bár-
ust yfir 70 sögur.
í ár er komið að flokki sakamála-
sagna. Dómnefnd Mannlífs og Hins
íslenska glæpafélags mun velja þrjár
bestu sögurnar og verða þær verðlaun-
aðar ogbirtar við hlið sakamálasagna
frá nokkrum af bestu höfundum
landsins í þeim geira í fylgiriti Mann-
lífs, Nýjar íslenskar sakamálasögur, í
júlí næstkomandi.
Verðlaun fyrir bestu söguna eru
50 þúsund krónur. Fyrir næstbestu
söguna eru veittar 30 þúsund krónur
og þá þriðju bestu 20 þúsund. Önnur
verðlaun verða kynnt síðar.
Hámarkslengd innsendra sagna
er 2500 orð og rennur skilafrestur út
20. maí næstkomandi. Sögurnar skal
senda á netfangið mannlif@frodi.is.
hitt og þetta. I verslunum fór að
bera á sérstökum tilboðum í Viku
bókarinnar og íslenska vorbókaút-
gáfan fæddist með trukki. Einnig
voru gefnar út nýjar íslenskar
bækur í nokkur ár sem viðskipta-
vinir bókaverslana fengu gefins
þegar þeir keyptu sér bækur. Svo
var boðið upp á alls kyns uppá-
komur og viðburði í bókabúðum, á
bókasöfnum og hingað og þangað
um landið. Reynt var að þema-
tengja vikuna með misgóðum ár-
angri, einna best var salan þegar
hún var tengd við spennusögur og
barnabækur en minnst var hún nú
þegar hún var helguð ljóðlistinni."
Gróska í kiljuútgáfu
Mikil gróska er í bókaútgáfu hér á
landi og bókaunnendur hafa ekki
komist hjá þvi að verða varir við
hversu kiljuútgáfa hefur aukist.
„íslenskar bækur eru bókstaflega
að sprengja allar hillur í búðunum
hjá okkur, meira er um frumút-
gáfur í kilju en nokkru sinni fyrr
auk þess sem skemmri tími líður
nú frá útgáfu metsölubóka í hörðu
bandi þangað til ódýrari kiljuút-
gáfa er komin í verslanir,“ segir
Bryndís.
Avísunin, sem er nú komin eða
á leið á heimili landsmanna, gildir
til 3. maí. „Ég hvet alla til að nýta
sér ávísunina góðu, líta við í næstu
bókabúð og kynna sér úrvalið,"
segir Bryndís og bætir við: „Við
skulum líka muna eftir börnunum,
gefa þeim tíma af lífi okkar til að
lesa með þeim og spjalla við þau
um alla þá leyndardóma sem í bók-
unum býr.“
Nýtt smá-
sagnasafn
JPV útgáfa hefur sent frá sér nýja
bók eftir Pál Kristin Pálsson sem
heitir Það sem þú vilt.
Það sem þú vilt hefur að geyma
sex smásögur. Þær eru í senn fjöl-
breyttar og samstæðar hvað varðar
stíl og efni, en í þeim öllum er spurt
áleitinna spurninga um bröltið á
okkur mannfólkinu - og eins og
vera ber er lesandanum látið eftir að
svara fyrir sig. Páll Kristinn Pálsson
fæddist í Reykjavík árið 1956. Það
sem þú vilt er níunda bók hans. Páll
Kristinn hefur einnig skrifað fjölda
greina og viðtala fyrir blöð og tima-
rit, unnið að þáttagerð fyrir sjónvarp
og útvarp og skrifað handrit að kvik-
myndum og sjónvarpsmyndum.
SU DOKU talnaþrautir
Lausn síðustu gátu
4 7 6 5 1 8 9 2 3
8 2 3 9 6 4 1 7 5
5 9 1 2 3 7 4 6 8
7 5 4 6 8 3 2 9 1
9 6 8 t 4 2 5 3 7
3 1 2 7 5 9 8 4 6
6 8 7 4 2 5 3 1 9
1 4 5 3 9 6 7 8 2
2 3 9 8 7 1 6 5 4
Su Doku þrautin snýst um
að raöa tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
9 3
1 4 8 9
5 7 6 8
6 2 7 5 3 1 8
8 1 3 6
1 6
8 4 9 7
1 2 9 5
2 4
SHOP-1S @6610015