blaðið - 19.04.2006, Blaðsíða 28
36 I DftGSKRÁ
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 blaöið
HVAÐSEGJA
STJÖRNURNAR?
OHrútur
(21.mars-19. apríl)
I dag er góður dagur til að hrinda ýmsum hug-
myndum í framkvæmd. Þú finnur eitthvað vaxa
innra með þér og það veitir þér hlýju í amstri dags-
ins. Það verður að hlúa að líkama og sál.
©Naut
(20. april-20. mai)
Ástvinur þinn er að hugsa til þín og er glaöur yfir
því að hafa fundið þig. Stundum leynist ást þar
sem hana er síst að finna. Farðu vel með sjálfa þig
og sumarið byrjar vel.
©Tvíburar
(21.maf-21.jdnf)
Það eru sviptivindar framundan þannig að það
borgar sig að búast viö átökum. Ef þú vilt eiga
möguleika á að þrauka óveðrið verður þú að forð-
ast kastijósið.
©Krabbi
(22.jdni-22.jdl0
Þú ert sérlega yndislegur (dag. Þokki þinn hefur
tekið stórstígum framförum. Það eru ófáir hausar
sem snúa sér á götunni þegar þú gengur framhjá.
Láttu ekki athyglina stíga þér til höfuðs.
®Ljó„
(23. jdlí- 22. ágdst)
Einhver reynir að nálgast þig i dag. Ekki loka þig
af heldur fagnaðu þeim áhuga sem þér er sýndur.
Það tekur tíma að kynnast einhverjum meira en
rétt á yfirborðinu. Sönn vínátta getur ekki verið
einungis á yfirborðinu.
Meyja
J (23.ágúst-22.september)
I dag færðu hvatningu úr óvæntri átt Þess vegna
veistu ekki alveg hvernig þú átt að taka þeirri hvatn-
ingu. Nýttu hvatninguna þér til framdráttar í stað
niöurrifs.
Vog
(23. september-23.oktdber)
Þú veist ekki alveg hverjum þú getur treyst þessa
dagana. I slíkum tilfellum er best að reiða sig á
gömlu vinina. Ástvinir geta verið of tengdir til að
ræða málin á skynsamlegum nótum.
Sporðdreki
(24. oktdber-21. nóvember)
Það er ekkert sem þú getur gert í málunum þannig
að slepptu því bara. Láttu berast aðeins með vind-
inum og reyndu að sætta þig við það sem þú færð
ekki breytt.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
Þú ert ótrúlega fær þegar kemur að mannlegum
samskiptum en þú verður að passa þig á þvi að mis-
nota ekki vald þitt Fátt spillir meira en vald og því
skal beita því af yfirvegun og sanngirni.
©Steingeit
(22. desember-19. jandar)
Mestu máli skiptir að hætta ekki í miðju kafi. Ást-
vinir þínir þurfa á því aö halda að þú fylgir þvi eftir
sem þú byrjaðir á. Reyndu frekar að hægja á þér ef
þérfinnst hraðinn of mikíll.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
Þú verður að taka stóra ákvörðun i dag. Þú hefur
gert það áður þannig að það er engin ástæða til að
fara á límingunum.
©Fiskar
(19. febrdar-20. mars)
Það væri óskandi að þessi dagur yrði fljótari að líða.
Allir eru a móti þér og þú hefur sifelldar áhyggjur.
Þetta er bara lágt sjálfsmat og þú verður að taka
þigáefekkiáilla aðfara.
PP*PfPPf i 1 í
■É Épti IHÍ * WSmmBSm WmaUm wmsmm
HANDHAFAR
„FJÓRÐA VALDSINS"
Andrés Magnússon
Friðrik Þór Guðmundsson er gamalreyndur refur
í blaðamennsku og einn hinna fáu í stéttinni, sem
sérstaklega hefur sinnt rannsóknarblaðamennsku.
Þessa dagana fæst hann við lokaverkefni í meist-
aranámi í blaðamennsku við Háskóla íslands og í
tengslum við það sendi hann út spurningalista til
hóps kollega. Eg var meðal svarenda og hafði gam-
an af, enda margar spurninganna áleitnar og vel
þess virði fyrir blaðamenn að velta fyrir sér.
Ein spurninganna fjallaði um það hvort æskilegt
væri að blaðamenn litu á sig sem „fjórða valdið" í
samfélaginu öðrum valdhöfum til aðhalds.
Ég svaraði Friðriki Þór eitthvað á þá lund að þó
ég teldi æskilegt og í eðli fjölmiðla að vera öðrum að-
hald teldi ég það óæskilegt að blaðamenn litu á sig
sem sérstaka handhafa slíks valds, enda hefði eng-
inn kosið þá eða skipað til þess. Að því leyti væru
fjölmiðlungar sem hver annar borgari, munurinn
er sá að þeir hafa óvenju háværar raddir og reyna
eftir fremsta megni að brjóta viðfangsefni dagsins
til mergjar, spyrja þeirra spurninga er máli skipta
og greina frá þeim af sanngirni svo allir skilji.
Hjal um „fjórða valdið“ væri því líklegast til þess
að valda innistæðulausu drambi hjá stéttinni og við
vitum öll hvað kemur næst.
En með störfum sínum eru blaðamenn samt óhjá-
kvæmilega að sinna gæsluhlutverki í þjóðfélaginu.
Vandinn væri að venju hver ætti að hafa gát á gæslu-
mönnunum. I fyrri tíð var það aðhald tvenns konar:
frá lesendum og frá öðrum miðlum. Eftir að fríblöð-
in komu til sögunnar er aðhald lesenda hins vegar
mun minna en áður eða hvernig eiga menn að segja
upp blöðum á borð við Fréttablaðið og Blaðið? Und-
ir venjulegum kringumstæðum kæmi aðhald aug-
lýsenda í staðinn, en því er varla að heilsa ef helstu
auglýsendur eru sama viðskiptaveldið og á annan
hvern fjölmiðil. Sem aftur leiðir að því að aðhald
frá öðrum fjölmiðlum er minna vegna samþjöpp-
unar eignarhalds. Er til lausn á þessu? Ekki augljós
og fljótt á litið virðist algerlega sneitt hjá þessum
vanda í drögum að nýju fjölmiðlafrumvarpi.
LAUGARDAGUR
SJÓNVARPIÐ
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Disneystundin
18.01 Stjáni (43:52)
18.23 Sígildar teiknimyndir (29:42)
18.30 Sögur úr Andabæ (53:65)
18.54 Víkingalottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljós
20.30 Tískuþrautir (8:12) Kynnir í þátt- unum er fyrirsætan Heidi Klum og meðal dómara er hönnuðurinn Mi- chael Kors.
21.15 Svona er lífið (8:13) Meðal leik- enda eru Sean Faris, Jon Foster, Chris Lowell, Missy Peregrym og Kelly Osbourn e.
22.00 Tíufréttir
22.20 íþróttakvöld
22.35 Formúlukvöld Hitað upp fyrir kappaksturinn í San Marínó um helgina.
23.00 John Adams (John Adams: Americ- an Classic)
23.55 í Drungadal (Sleepy Hollow)
01.35 Kastljós
02.25 Dagskrárlok SIRKUS
18.30 Fréttir NFS
19.00 ísland í dag
19.25 Þrándur bloggar Fyrsta videobloggstjarna (slands
19.30 My Name is Earl e.
20.00 Friends (13:24)
20.30 SirkusRVK
20.55 Þrándur bloggar
21.00 My Name is Earl
21.30 Invasion (15:22)
22.15 Bikinimódel íslands 2006
22.45 "bak við böndin"
23.15 Þrándurbloggar
23.20 Friends (13:24) e.
23.45 Sirkus RVKe.
5TÖÐ2
06.58 fsland í bítið
09.00 Bold and the Beautiful
09.20 Ífínuformi20os
09.35 Oprah Winfrey
10.20 My Sweet Fat Valentina
11.10 Strong Medicine (3:22)
12.00 Hádegisfréttir
12.25 Neighbours
12.50 (fínuformi2005
13.05 Home Improvement (11:25)
13.30 George Lopez (8:24)
13.55 Whose Line Is it Anyway?
14.20 Amazing Race (4:14)
15.15 20/20 - First Deadly Sin (20/20
Bandarískur fréttaskýringaþáttur
um fyrstu dauðasyndina; hégóma.
Svo virðist sem útlitið skipti okkur
á meira máli og má merkja það
æ vaxandi fegurðardýrkun og að
lýtaaðgerðir eru nú algengari og
öfgakenndari en þær hafa nokkru
sinni áður verið. f fréttaskýringa-
þættinum verður könnuð betur
þessi fegurðardýrkun mannsins og
þeirri spurningu velt upp hvort við
séum endanlega búin að gefa okkur
hégómanumávald. 2005.
16.00 Barnatími Stöðvar 2
17.20 Bold and the Beautiful
17.40 Neighbours
18.05 TheSimpsons (11:23)
18.30 Fréttir, íþróttir og veður
19.00 ísland í dag
19.40 Strákarnir
20.05 Veggfóður (12:18)
20.50 Oprah (52:145)
21.35 Medium (5:22) (Miðillinn)
22.20 Strong Medicine (4:22)
23.05 Stelpurnar (12:24)
23.30 Abandon (Hvarfið)
01.05 The Reunion (Bekkjarmótið)
02.45 Stepfather, The (1:2) (Stjúpinn)
03.55 Stepfather, The (2:2) (Stjúpinn)
05.05 The Simpsons (11:23)
05.30 Fréttir og ísland f dag
06.35 Tónlistarmyndbönd frá Popp
TíVí
5KJÁR 1
07.00 6 til sjö e.
08.00 Dr.Phile.
08.45 Heilogsæl e.
16.05 Innlit / útlit e.
17.05 Dr. Phil
18.00 6 til sjö
19.00 Cheers
19.25 Fasteignasjónvarpið
19.35 The Drew Carey Show e.
20.00 Homes withStyle
20.30 Fyrstu skrefin Umsjónarmaður þáttarins er Guðrún Gunnarsdóttir söngkona.
21.00 Queer Eye for the Straight Guy
22.00 Law&Order:SVU
22.50 Sex and the City - 6. þáttaröð
23.20 JayLeno
00.05 Closeto Home e.
00.50 Cheers e.
01.20 Fasteignasjónvarpið e.
01.30 Óstöðvandi tónlist
5ÝN
07.00 Meistaradeildin með Guðna Bergs
07.20 Meistaradeiidin með Guðna Bergs
07.40 Meistaradeildin með Guðna Bergs
08.00 Meistaradeildin með Guðna Bergs
18.00 Meistaradeiidin með Guðna Bergs
18.30 Meistaradeild Evrópu (Villarreal - Arsenal)
Bein útsending frá leik Villarreal og Arsenal í undanúrslitum í Meistara-
deild Evrópu.
20.35 Meistaradeildin með Guðna Bergs
20.55 Sænsku nördarnir
21.45 Meistaradeild Evrópu
23.25 Meistaradeildin með Guðna Bergs
23.45 US Masters
EN5KIBOLTINN
14.00 Wigan-AstonVillafrá
16.00 Charlton - Porstmouth frá
17.04
18.35 Birmingham - Biackburn b.
20.45 Everton - Tottenham frá 15.04
22.45 Arsenal-WBAfrá 15.04
00.45 Dagskrárlok
STÖÐ2-BÍÓ
06.00 Eurotrip
08.00 Beethoven's sth
10.00 The Curse of the Pink Panther
(Bölvun Bleika pardusins)
12.00 Duplex (Grannaslagur)
14.00 Beethoven's sth
16.00 The Curse of the Pink Panther
(Bölvun Bleika pardusins)
Frábær gamanmynd. Hinn snjalli
Clouseau er týndur og allt er lagt
í sölurnar til að finna kappann.
Rannsóknarlögregluforinginn Clif-
ton Seigh erfenginn til verksins en
hér er ekki allt sem sýnist. Dreyfus,
fjandvinurClouseaus, á hlut að máli
en hefur auðvitað ekki heppnina
með sér frekar en fyrri daginn. Að-
alhlutverk: Ted Wass, David Niven,
Robert Wagner, Herbert Lom. Leik-
stjóri: Blake Edwards. 1983. Leyfð
öllum aldurshópum.
18.00 Duplex (Grannaslagur)
Aðalhlutverk: Drew Barrymore,
Ben Stiller, Eileen Essel. Leikstjóri,
Danny Devito. 2003. Leyfð öllum
aldurshópum.
20.00 Eurotrip
22.00 30, Still Single: Contemplating
Suicide (Þrjátíu, enn á lausu: I
sjálfsmorðshugleiðingum) Aðalhlut-
verk: Christopher may, Terry Gatens,
Jill Zimmerman. Leikstjóri, Gregory
J. Lanesey. 1998. Bönnuð börnum.
00.00 Fourplay (Ástin er óútreiknanleg)
02.00 Cheech and Chong's Next
Movie Aðalhlutverk: Cheech Marin,
Tommy Chong. Leikstjóri, Tommy
Chong. 1980. Stranglega bönnuð
börnum.
04.00 30, Still Single: Contemplating
Suicide
RÁS1 92,4 / 93,5 • RÁS 2 90,1 / 99,9 • Kiss FM 77,5 • Xfm 91,9 • Bylgjan 98,9 • FM 95,7 • X-ið 97,7 • Útvarp saga 103,3 • Talstöðin 90,9
Mótmœla fyrningu
Elektrónískar dansöreindir
Fjölmargir breskir lagahöfundar
hafa tekið höndum saman um að
mótmæla lögum um fyrningu höf-
undarréttar. Það mun að sjálfsögðu
verða til þess að höfundar hætta að
fá stefgjöld og önnur gjöld tengd
notkun á hugsmíðum þeirra.
Höfundarréttur á tónsmíðum hef-
ur verið í gildi í Evrópu síðustu 50
árin eða svo en nú óttast margir að
þeir fái ekki að njóta ávaxta erfiðis
síns í ellinni. Samtök lagahöfunda
hafa einnig bent á að höfundarrétt-
ur falli þá oft í skaut fyrirtækja sem
hafa ekki endilega áhuga á að fjár-
festa í tónlistarmarkaðnum.
Tónlistarmenn á borð við -Cliff
Richard, Bono og Bruce Welsh úr
hljómsveitinni Shadows hafa mót-
mælt þessu harðlega og hafa bent
á að þetta komi sérstaklega illa við
þá sem slógu í gegn snemma á sín-
Cliff Richard hefur mótmælt harðlega
fyrningu höfundarréttar
um ferli en drógu sig fljótlega út úr
kastljósinu. Á móti má þó benda að
þeir sömu einstaklingar hafa vænt-
anlega lifað vel af þessum tekjum í
áratugi án þess að hafa þurft að gera
mikið annað.
Laugardaginn 22. apríl mun Techno.
is halda raftónleika á Grand rokk.
Fram koma Worm is Green, Tonik,
Ruxpin og Kaido Kirikmáe.
Raftónlistarmaðurinn Ruxpin
(Jónas Þór Guðmundsson) hefur
spilað víða erlendis og gefið út fjór-
ar breiðskífur og fjölda smáskífa og
sú fimmta er rétt óútkomin. Hann
hefur verið iðinn við danstónlist í
gegnum tíðina og vermt efstu sæti
á vinsældarlistum hjá mönnum á
borð við Dave Clarke, Lee Burridge
og Darren Emmerson hjá Underw-
orld.
Ruxpin skilur einnig eftir sig
fjöldann allan af endurhljóðblönd-
unum sveita eins og Sanasol, Gus
Gus, AMPOP og Worm is green.
Kaido Kirikmáe er einn umfangs-
mesti raftónlistarmaður Eistlands.
Hann hefur haldið rafsenunni uppi
þar í landi og rekur eigið útgáfufyr-
irtæki Kuurortrecords. Kirikmae
er að spila á Islandi í annað sinn
og mun spila „live organic elektró-
níska tóna“ en hann spilar einnig
með Roni Size á Nasa 19. apríl.
Worm is green inniheldur Árna
Teit Ásgeirsson, Vilberg Rafstein
Jónsson, Bjarna Þór Hannesson, Þor-
stein Hannesson og Guðríði Ring-
sted. Þau hafa gefð út tvær breiðskíf-
ur er nefnast Automagic og þá nýju
Pushplay.
Tonik er raftónlistarapparat sem
hefur margbreytilegan fjölda flytj-
enda. Forsprakki Toniks er Anton
Kaido Kirikmae á tónleikum
Kaldal Ágústsson sem hefur gert
raftónlist í meira en 10 ár.
Tónleikarnir byrja stundvíslega
klukkan 23.00 og kostar 500 krónur
inn.