blaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 12
12 I DEIGLAN
MÁNUDAGUR 24. APRÍL 2006 blaAÍð
HAUTO WAOSl
LandSÍ^
a£ rei^
Switchback SX 2006
34*900
Svarfullorðnaj
fólksins við háu
bensínverði!!!
Stell: 6061Framdempari Spinner Grind 2,70mm
Slaglengd stillanlegur Gírar SRAM ESP 3.0 21 gíra
. r^,lboö
-£leirtL a s
viW • &aí>'
Hvernig líður börnunum þegar
mamma eða pabbi fá krabbamein?
Krabbameinsfélag íslands boðar tilfundar þar semforeldrar segjafrá og deila reynslu sinni.
Njóttu þess aö vera í Vöröunni
þörfum þeirra á einlægan hátt í
slíkum aðstæðum.
Hugmyndin er að foreldrar velti
fyrir sér samræðum við börn
þegar krabbamein kemur upp í
fjöískyldunni. Hvað eru börnin að
hugsa? Hvernig líður þeim? Er erf-
itt að ræða við börn þegar foreldrar
greinast með krabbamein og hvaða
áhrif hefur þessi reynsla á þroska
barnanna?
Blaðamaður sló á þráðinn til Gunn-
jónu Unu Guðmundsdóttur sem
starfar sem verkefnisstjóri hjá
Krabbameinsfélagi Islands.
Hver er ástæðan fyrirþví aðþessum
fundi varkomið á?
„Það hefur svo lítið verið fjallað um
þetta efni og við höfum orðið vör
við að börn taka því mjög misjafn-
lega þegar foreldrar þeirra veikjast
af krabbameini. Sum byrgja tilfinn-
ingar sínar inni og það kemur fram
í atferlinu. Þá fyllast þau stundum
kvíða og ótta, en þetta er samt
sem áður einstaklingsbundið. Hug-
myndin með fundinum er að fólk
spjalli um þessi mál og fái upplýs-
ingar hvort frá öðru um hvað virkar
vel við þessar aðstæður. Þegar
foreldri veikist þá fer í gang svo
margþætt ferli að aðstaða og líðan
barnsins getur gleymst. Með fund-
inum viljum við hvetja krabbameins-
veika foreldra til að deila reynslu
sinni og styrk með hvort öðru, sem
og fá fræðslu og upplýsingar frá
fagaðilum.“
Eru stafandi hópar, eða miðstöðfyrir
aðstandendur krabbameinssjúkra?
„Já, það eru til stuðningshópar á
vegum Krabbameinsfélagsins hér á
höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru fyrir
sjúklinga og aðstandendur þeirra og
virka þannig að fólk kemur saman
og spjallar og fær fræðslu, en hingað
til hefur þetta ekki verið gert í þessu
samhengi þó að það standi nú til
bóta.“
Er til eitthvað efni, t.d. bók, sem
skýrirþessi málfyrir börnum?
„Nei, það er ekki til neitt efni á ís-
lensku enn sem komið er. Þær eru
til á öðrum tungumálum en hafa
ekki verið þýddar. Krabbameinsfé-
lagið hefur gefið út bækling ætlaðan
foreldrum barna þar sem gefnar eru
leiðbeiningar, en það er enn ekki
til fræðsluefni fyrir börn sem eiga
krabbameinsveika foreldra."
Fundarstjóri verður Halla Þor-
valdsdóttir sálfræðingur.
Dagskrá
• Eva Yngvadóttir fjallar um
reynslu af veikindum pabbans
á heimilinu sem læknaðist af
krabbameini.
• Anna Ingólfsdóttir fjallar um
reynslu í kjölfar veikinda og
andláts pabbans á heimilinu.
• Margrét Friðriksdóttir fjallar
um reynslu af veikindum pabb-
ansáheimilinusemhefurnýlega
verið í krabbameinsmeðferð.
• Nanna K. Sigurðardóttir fé-
lagsráðgjafi og Halla Þorvalds-
dóttir sálfræðingur taka þátt í
umræðum og miðla þekkingu
úr rannsóknum og meðferðar-
starfi um efnið.
margret@bladid.net
Gunnjóna Una Guðmundsdóttir
„Þegar foreldri veikist þá fer í gang svo
margþætt ferli að aðstaða og líðan barns-
ins getur gleymst. Með fundinum viljum
við hvetja krabbameinsveika foreldra til
að deila reynslu sinni og styrk með hvort
öðru."
í kvöld klukkan 20:00 verður
haldinn fundur sem hugsaður
er sem skref til að vekja upp
umræður um líðan barna þegar
foreldri greinist með krabbamein.
Fundurinn fer fram í húsnæði
Krabbameinsfélags íslands að
Skógarhlíð 8,4. hæð. Fjallað
verður um hvernig fólk getur
styrkt hvert annað sem foreldrar
til þess að mæta börnum og
Varðan
veitir þér betri
kjör við bíla-
fjármögnun
Kynntu þér hvað við getum gert meira fyrir þig á landsbanki.is.
Landsbankinn
Tyax Comp 2006
sumartilboð
29*900
(áður 36.900)
Wing Comp 2006
sumartilboð
39*900
(áður 49.900)
Stell: 6061 Ál Dekkjastærð 26x1.95 Stellstærð S-16, M-18, L-20 & XL-22 Fram-
dempari RST Dempari still. 100mm Gírar Shimano Puttaskiptiptar EF-29-8 EZ Fire
Framskiptir Shimano C050 Afturskiptir Shimano Altus 8sp
Bremsur PromaxV-bremsur
Stell: 6061 Ál/Cro-mo Framdempari RST GilaT6,100mm
Afturdempari KS-290 coil over shock Gírar Shimano Altus 24 gíra
alvöru fiallahiól
n
ALLAHJOLABUPj N FAXAFENI 7 \
5 200 200 MÁN - FÖS. KL. 9-18. LAU: Kt7Á 0-li\ \
Vertu velkomin(n) í verslun okkar Borgartúni 36
1 I
ókeypis til
80.000
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
FRJÁLST
ÓHAÐ
blaðið=