blaðið - 24.04.2006, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 24. APRÍL 2006 blaöiö
Enn óvíst hver
keppir við Humala
Enn liggur ekki fyrir hver verður
keppinautur Ollanta Humala í síð-
ari umferð forsetakosninganna
í Perú.
Ollanta Humala vet ekki enn við
hvern hann keppir í annarri umferð
forsetakosninganna
Reuters
Fyrri umferðin fór fram 9. þessa
mánaðar og þótt sleitulaust hafi
verið unnið að talningu atkvæða
liggja úrslitin enn ekki fyrir að öðru
leyti en því að Humala, sem er þjóð-
ernissinni og fyrrum herforingi,
varð efstur. Humala hlaut 30,9% at-
kvæðanna en í stjórnarskrá Perú er
mælt fyrir um að forseti skuli jafnan
hafa meirihluta atkvæða að baki sér.
Því er önnur umferð nauðsynleg.
Humala mun annað hvort mæta
jafnaðarmanninum Alan Garcia
eða þingkonunni Lourdes Flores í
síðari umferðinni. Garcia, sem er
fyrrum forseti Perú, hefur naumt
forskot á Flores en eftir á að telja um
8% atkvæðanna. Flores er fulltrúi
íhaldsaflanna og hefur tvívegis áður
boðið sig fram í forsetakosningum
í Perú.
Töf hefur orðið á því að atkvæði
sem greidd voru erlendis berist og
á það sama við um kjörgögn frá af-
skekktum stöðum.
Líklegt er að úrslit liggi ekki fyrir
fyrr en um næstu mánaðamót.
G R I S A
SniÍAel
.ífí* '• *
■ • : ■
MjL i
®Dl;\í
OrísovBislo 1 sinum (jrsBHum
Fulleldaðir og tilbúnir
á pönnuna eða í ofninn!
Molgrís
- Lostæti með lítilli fijrirhöfn
Silvio Berlusconi, fráfarandi forsætisráðherra ftalíu, kom mörgum á óvart þegar hann sagði að stjórn Romano Prodi myndi setja út
kjörtímabilið.
Berlusconi spáir
stjórn Prodis langlífi
5ilvio Berlusconi, fráfarandi for- gera þeim kleift að ráða ríkium munu stjórn Romanos Prodis, ven
Silvio
sætisráðherra Ítalíu, hefur loks
viðurkennt ósigur sinn í þingkosn-
ingunum sem fram fóru 9. og 10.
þessa mánaðar. Nú spáir Berlus-
coni því að vinstri menn verði við
völd á Ítalíu næstu fimm árin, hið
minnsta.
Þetta var haft eftir Berlusconi í
ítalska dagblaðinu La Repubblica í
gær. „Valdið sameinar og það mun
gera þeim kleift að ráða ríkjum
næstu fimm árin. Þeir munu halda
velli... Þeir verða a.m.k. við völd
næstu fimm árin og jafnvel lengur,"
var og haft eftir Berlusconi í Corri-
ere della Sera.
Ummæli hans koma nokkuð á
óvart því almennt er talið að hægri
menn á Italíu hyggist leggja áherslu
á að djúpstæður ágreiningur sé uppi
á meðal flokka þeirra sem mynda
Varðan
veitir þér betri
kjör við verðbréfa-
viðskipti
Kynntu þér hvað við getum gert meira fyrir þig á landsbanki.is.
Landsbankinn
Njóttu þess að vera í Vörðunni
stjórn Romanos Prodis, verð-
andi forsætisráðherra.
Berlusconi viðurkenndi loks
ósigur sinn á föstudag en hann hefur
enn ekki óskað Prodi til hamingju
með sigurinn. Berlusconi hét stuðn-
ingsmönnum sínum því að halda
uppi öflugri stjórnarandstöðu og
taldi þá víst að vinstri stjórnin ætti
ekki langa lífdaga fyrir höndum.
„Ég hef enga trú á því að þessum
heiðursmönnum takist að stjórna
landinu. Vinstri stjórnin verður
aðeins tilraun,“ sagði Berlusconi
á föstudag á fundi með stuðnings-
mönnum flokks síns, Forza Italia.
Að baki Prodi standa ólíkir
flokkar og telja margir stjórnmála-
skýrendur að honum muni aldrei
lánast að mynda sterka ríkisstjórn.
Innan bandalags hans er að finna
miðjusækna, katólska flokka, trú-
leysingja og minnst þrjá flokka
sem eiga rætur að rekja til ítalska
kommúnistaflokksins. Einn leið-
togi kommúnista, Fausto Bertinotti,
verður forseti fulltrúadeildar ítalska
þingsins. Eftir því embætti sóttist
einnig Massimo DAlema, formaður
flokks vinstri demókrata, en hann
ákvað síðan að gefa ekki kost á sér
og vísaði til „ábyrgðarkenndar*
sinnar. Deilur þeirra Bertinotti og
Massimo DAlema urðu stjórn Prodi
að falli árið 1998 en tveimur árum
áður hafði hann borið sigurorð af
Silvio Berlusconi í þingkosningum.
SJONARHOLL
Gleraugnaverslun
Reykavíkurvegur 22
220 Haíharfírði
565-5970
1
Líklega hlýlegasta
gleraugnaverslunin
norðan Alpafjalla
Þar sem gæðagleraugu kosta minna
U’ M’ W s i o n u •holt.is