blaðið - 02.05.2006, Blaðsíða 4
4IFRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2006 blaAÍÖ
Ráðist að sam-
kynhneigðum
Skemmtistaður í Rússlandi
hefur neyðst til að aflýsa einu
stærsta skemmtikvöldi fyrir
samkynhneigða, sem haldið
er þar í landi, vegna háværra
mótmæla.
Á annað hundrað nýnas-
istar, ásamt þjóðernissinnum
og fjölda eldri borgara höfðu
safnast saman til að mótmæla
og hentu glerflöskum, eggjum
og öðru lauslegu að gestum
og hindruðu aðgang þeirra að
staðnum. Óeirðarlögreglaþurfti
að stöðva mótmælin og fylgja
þeim sem inni á staðnum voru
i skjól, en engin alvarleg meiðsli
hlutust.
Nokkrar vikur eru í að yf-
irvöld Moskvuborgar ákveði
hvort leyfa eigi fyrstu Gay Pride-
göngu borgarinnar. Talsvert er
um fordóma gagnvart samkyn-
hneigðum í Rússlandi og er talið
að atvikið geti orðið til þess að
yfirvöld treysti sér ekki til að
leyfa gönguna.
Segir öfgahópa hafa
sölsað 1. maí undir sig
Guðmundur Gunnarsson, formaður
Rafiðnaðarsambands íslands, segir
það ljóst að timi sé kominn til þess
að breyta fyrirkomulagi hátíðar-
halda á baráttudegi verkalýðsins
í.maí. Hann segir mætingu í kröfu-
gönguna í Reykjavík í gær hafa verið
hrikalega og að ýmsir öfgahópar séu
orðnir fjölmennari en verkamenn-
irnir sem dagurinn er helgaður.
„Við lögðum það til fyrir rúmu ári
síðan að breyta fyrirkomulaginu á
þessum degi, á þeim forsendum að
það væri augljóst mál að félagsmenn-
irnir væru að hugsa um eitthvað
annað en kröfugöngur" Guðmundur
bendir á að öll verkalýðsfélögin í
borginni leigi sali og bjóði félags-
mönnum í kaffi þar sem þeir mæta
með sínar fjölskyldur. „Við vorum
með um 400 manns í kaffisamsæti í
gær og ég held að VR hafi verið með
um 1.000 manns á Broadway.“
Guðmundur segist hafa bent á það
í fyrra að það væri augljóst að menn
vildu ekki eyða þessum degi í kröfu-
göngu, heldur vildu þeir hafa eitt-
FRAMURSKARANDI
U A C I/ I I VIÐSKIPTAFRÆÐl
n AorVULI tölvunarfræði
Umsóknarfrestur
rennur út 29. maí
VIÐSKIPTAFRÆÐI
TÖLVUNARFRÆÐI
TÆKNIFRÆÐI
VERKFRÆÐI
IÐNFRÆÐI
LÖGFRÆÐI
STÆRÐFRÆÐI
ÍÞRÓTTAFRÆÐI
KENNSLUFRÆÐI
LÝÐHEILSUFRÆÐI
FRUMGREINASVIÐ
Háskólinn í Reykjavík býður metnaðarfullt oq
spennandi nám með áherslu á hagnýt verkefni
og sterk tengsl við atvinnulífið.
Hringdu og fáðu sent upplýsingaefni eða bókaðu
tíma hjá námsráðgjafa í síma 599 6200.
Kíktu á www.ru.is
tn 1 42 j s
**s Í^j| Jpk t
hvað annað fyrir
stafni sem væri
fjölskylduvænna.
„Því bentum við
á að það væri
miklu nær að
nýta peningana
sem til falla hjá
félögunum og slá Guðmundur
saman 1 að leigja
Laugardalshöllina og Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn, og vera með góða
dagskrá í dalnum. Þetta var sam-
þykkt í fyrra en þá var það bara ekki
hægt vegna endurbóta á Laugardals-
höllinni.“ Guðmundur segir að því
hafi verið ákveðið að fresta þessu
um ár, en þegar á hafi reynt hafi
ákveðnir forsvarsmenn verkalýðsfé-
laganna risið upp á atfurlappirnar
og barist gegn breytingum.
Ekki verið að setja daginn niður
„Ég spáði því í fyrra að ef menn
breyttu þessu ekki þá myndi sú
hætta skapast að menn færu að snið-
ganga kröfugönguna algjörlega sem
væri mjög pínlegt fyrir verkalýðs-
hreyfinguna. Það sýndi sig í gær ljós-
lega og mætingin var hrikalega léleg.
Ætli það hafi ekki verið um 400-500
manns á torginu." Guðmundur
bendir á að víðast hvar annarsstaðar
á landinu hafi þessu verið breytt á
þann hátt að hátíðahöld fara fram
í íþróttahúsum í bæjunum. „Það er
ekkert verið að setja daginn niður
með því að hætta þessari kröfu-
göngu heldur er verið að samsama
sig við það sem félagsmennirnir
vilja.“ Máli sínu til stuðnings bendir
Guðmundur á að álíka margir hafi
mætt í kaffi hjá Rafiðnaðarsamband-
inu eins og mættu í kröfugönguna í
miðbænum. Hann segist munu tala
áfram fyrir því að fyrirkomulagi
dagsins verði breytt. „En við vildum
ekkert vera að kljúfa okkur út úr
þessu og þess vegna mættum við í
gönguna í gær.“
Öfgahópar með 1. maí í gíslingu?
Annað sem Guðmundur segir að
hlotið hafi töluverða gagnrýni er sú
þróun að utanaðkomandi öfgahópar
mæti í gönguna. „Ég aétla ekki að
fara telja þessa hópa upp en þeir
eru orðnir meira áberandi heldur
en verkalýðurinn í 1. maí göngunni.
Auðvitað hafa þessir aðilar rétt á
að mæta þarna og vekja athygli á
sínum málum en þegar þeir eru
orðnir meira áberandi en verkalýðs-
félögin þá finnst manni nú tími til
að staldra við.“ Guðmundur segist
ekki vera að tala fyrir því að leggja
baráttudag verkalýðsins niður.
Þvert á móti vilji hann hefja hann til
meiri virðingar. „Ég held að það geti
verið miklu sterkara fyrir hreyfing-
una ef 5-6.000 manns myndu mæta
í Laugardalinn og þannig væri hægt
að koma boðskapnum á framfæri til
miklu stærri hóps en mætir á Lækj-
artorgið. Mér finnst að hreyfingin
eigi að samsama sig við vilja unga
fólksins og fjölskyldufólksins og við
vitum hvað þetta fólk vill, það mætir
ekki í kröfugöngur."
WM
ÉMm Jw í-
HÁSKÓLINN í REYKJAVÍK.
R'E Y KJAVlK^U N IVERSIT Y
Goð veiðx 1
Elliðavatni
Segja má að stangveiðitímabilið
hafi hafist fyrir alvöru í gær, 1.
maí, en þá var opnað fyrir veiði
í fjölmörgum þekktum veiði-
vötnum hringinn í kring um
landið. Eitt vinsælasta og dynt-
óttasta vatn landsins, Elliðavatn,
er eitt þeirra.
Á vef Stangveiðifélags Reykja-
víkur, www.svfr.is í gær segir
að vel hafi veiðst þennan fyrsta
veiðidag.
„I Elliðavatni var margt um
manninn eins og svo gjarnan
á opnunardaginn. Þó nokkrir
voru með afla, sem mest megnis
var urriði og heyrðum við mest
af tólf urriðum hjá sama veiði-
manninum. Sá hafði vaðið langt
út á vatn frá engjunum við bæ-
inn Elliðavatn," segir á vef Stang-
veiðifélags Reykjavíkur i gær.
Maður sem lífði af árásina er fluttur á
sjúkrahús í borginni Jammu.
Fjöldamorð
í Kashmír
íslamskir vígamenn myrtu 22
hindúa og særðu fimm í árás
á þorp í Kashmír-héraði á Ind-
landi í gær.
Að sögn talsmanns lögreglu
stilltu árásarmennirnir fórn-
arlömbum sínum upp fyrir
framan heimili þeirra og skutu
þau. Enginn hafði í gær lýst yfir
ábyrð á ódæðinu.
Árásin var gerð á afskekkt
þorp 1 Doda-héraði um 170 kíló-
metra frá borginni Jammu í
Kashmír. Vopnahlé hefur verið
í gildi með Pakistönum og Ind-
verjum frá árinu 2003 og er
þetta mannskæðasta árás sem
gerðu hefur verið frá því að því
var komið á. Meira en 60.000
manns hafa týnt lífi frá því að
aðskilnaðarsinnar hófu vopn-
aða baráttu fyrir því að samein-
ast Pakistan árið 1989.
Á miðvikudag munu fulltrúar
hófsamra aðskilnaðarsinna í
Kashmír og Manmohan Singh,
forsætisráðherra Indlands,
funda í Delhí. Er búist við því að
á þeim fundi muni leiðtogarnir
í Kashmír kynna æltun um
hvernig leiða megi deiluna um
héraðið til lykta. Indverjar hafa
sakað Pakistana um að hafa
ekki leyst upp þjálfunarbúðir
vígamanna á pakistönsku landi
þrátt fyrir að tvö ár séu nú liðin
frá því að ríkin hófu friðarferli
vegna Kashmír.
5K0ÐAÐU
HEIMINN
BORGARTÚNI 29 1105 REYKJAVÍK | ICELAND | WWW.EXIT.IS | TEL. +354 562 2362 | FAX. +354 562 9662