blaðið - 02.05.2006, Blaðsíða 22
30 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2006 blaöiö
Mourinho býðst til að hvíla leikmenn
Jose Mourinho segist vilja koma Englandi til hjálpar fyrir heimsmeistaramótið í sumar.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur
boðisttilaðhvílaþrjáenskalandsliðs-
menn sína í síðustu tveimur leikjum
deildarinnar fyrir HM í Þýskalandi
í sumar. „Ég vil koma Englandi til
hjálpar. Ég er reiðubúinn að leyfa
þeim að ljúka tímabilinu núna svo
þeir fái einni viku lengri hvíld og
geti jafnvel farið í gott frí,“ sagði
Mourinho. Umræddir leikmenn eru
John Terry, Frank Lampard og Joe
Cole.
VILTU SKJOL A
VERÖNDINA?
MARKISUR
Dalbraut 3,105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
John Terry og Frank Lampard eru stórkostlegir leikmenn og mega hvíla sig fyrir heims-
méistaramótið, segir Jose Mourinho stjóri Chelsea.
„Samband mitt við Sven-Göran
Eriksson er mjög gott. Ég sagði við
hann eftir leikinn við Manchester
United að ef hann vildi að það yrði
síðasti leikurinn þeirra þá myndi
svo vera,“ sagði Mourinho. Shaun
Wright-Phillips mun að öllum lík-
indum verða í landsliðshópnum á
HM en sökum þess hve lítið hann
hefur fengið að spila í vetur þarf
hann á því að halda að vera með í síð-
ustu leikjunum.
Terry er sá besti
John Terry, fyrirliði Chelsea, var
borinn af leikvelli í leiknum gegn
United á laugardag en Mourinho
segir að meiðsli hans séu ekki alvar-
leg. „Hann var lítillega meiddur en
þetta voru ekki meiðsli sem munu
hafa áhrif til lengri tíma. Hann var
sárþjáður en þetta var alls ekki al-
varlegt,“ sagði Mourinho og bætti
við að hann teldi að almennt séð
væru ensku leikmennirnir í frábæru
formi.
Terry hefur leitt Chelsea til sigurs
í ensku úrvalsdeildinni tvö tímabil
í röð og segir Mourinho að tími sé
til kominn að farið sé að líta á hann
sem þann stórkostlega leikmann
sem hann sé. „Fyrir mér er hann
besti varnarmaður í heimi og ég held
að það sé nánast ómögulegt fyrir
hann að bæta sig. Það eina sem þarf
að batna er viðhorf dómara í Evrópu
til hans. Þeir þurfa að fara að líta á
hann sem einn af stærstu leikmönn-
unum í boltanum,“ sagði Mourinho
og lýsti einnig yfir aðdáun sinni
á Frank Lampard. „Frank er ekki
eins tilfinningaríkur og viðkvæmur.
Hann er frábær skuggi fyrir fyrirlið-
ann og hann og John eru óaðskiljan-
legir," sagði Mourinho.
bjorn@bladid.net
•»
Skeytin inn
Robbie Keane, sóknar-
maður Tottenham, ótt-
ast að
ökklameiðsli
sem hann
hlaut í leik liðs-
ins gegn Bolton
um síðustu
helgi muni
aftra honum
frá því að leika
lokaleik tíma-
bilsins gegn West Ham á sunnu-
daginn kemur. „Ég er ekki brot-
inn og það er gott, en ég er hins
vegar óviss hvort ég verði búinn
að jafna mig. Ég þarf að ræða við
lækna og sjúkraþjálfara,“ sagði
Keane. Sigri Spurs West Ham
tryggja þeir sér fjórða sætið sem
gefur rétt til þátttöku í Meist-
aradeild Evrópu. Þurfa þeir þá
að vonast til að erkifjendurnir
Arsenal vinni ekki úrslitaleik
Meistaradeildarinnar og steli
sætinu þannig af þeim.
Keane var á dögunum
valinn besti leikmaður
Tottenham af stuðnings-
mönnum liðsins og sagði hann
titilinn skipta sig miklu máli.
„Ég lék ekki mikið í upphafi
leiktíðar en mér hefur gengið
vel að undanförnu og það er æð-
islegt að hljóta viðurkenningu
frá okkar frábæru stuðnings-
mönnum fyrirþað," sagði Keane.
Undrabarnið Aaron Lennon var
valinn besti ungi leikmaður
félagsins.
Harry Redknapp, stjóri
Portsmouth, segir óráðið
hvaða liði hann muni
stýra á næsta
tímabili. Red-
knapp tók
við stjórn
Portsmouth í
desember síð-
astliðnum og
gerði hálfs árs
samning. „Ég
hef ekki rætt
við neinn um næsta tímabil.
Það er í höndum eigenda félags-
ins að ganga frá þessum málum,“
sagði Redknapp. Hann hefur
gert góða hluti með Portsmouth
að undanförnu og á laugardag
tryggði liðið sér áframhaldandi
veru í úrvalsdeildinni með 1-2
útisigri á Wigan. Milan Mand-
aric, stjórnarformaður Port-
smouth, segist ekki vera í vafa
um að Redknapp muni vera
áfram við stjórnvölinn. „Ég held
að það muni ganga vandkvæða-
laust að gera nýjan samning við
Harry. Það verður bara formsat-
riði,“ sagði Mandaric.
Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, segist stefna
á að vinna Englands-
meistaratitilinn á næsta tíma-
bili. Byssurnar hafa leikið sinn
síðasta heimaleik á Highbury
og segir Wenger að draumur
sinn sé að fagna Englandsmeist-
aratitlinum á sínu fyrsta ári á
nýja heimavellinum, Emirates
Stadium. „Við höfum verið að
leika talsvert verr en Chelsea
en við erum hægt en örugglega
að nálgast þá. Markmið okkar
á næsta tímabili verður að
gera betur en Chelsea og endur-
heimta titilinn," sagði Wenger,
en Arsenal varð síðast Englands-
meistari árið 2004.