blaðið - 12.05.2006, Page 6
6IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2006 blaöiö
STARFSNAM
Tollskýrslugerð
Hagnýtt og ítarlegt námskeið í gerð tollskýrslna, um meðferð
allra innflutningsskjala og allar helstu reglur er varða innflutning.
Á námskeiðinu er notað nýtt og sérútbúið kennsluefni,
kennslubók og ítarefni. Einnig er kennt að nota forrit í
tollskýrslugerð í Navision frá Maritech.
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að geta;
Þekkt fylgiskjöl með
vörusendingum og hvaða
tilgangi þau þjóna
Gert tollskýrslur og reiknað
út aðflutningsgjöld
Notað tollskrána til að
tollflokka vörur
Haft grunnskilning á
fríverslunarsamningum og
gildi þeirra
Þekkt helstu reglur
varðandi innflutning,
innflutningstakamarkanir
og undanþágur
Lengd: 21 kennslustund. Kennt er þriöjudaga og fimmtudaga
og er hægt að velja um morgunnámskeið kl. 8:30 - 12:00 eða
kvöldnámskeið kl. 18:00 - 21:30. Hefst 16. maí og lýkur 30. maí.
Verð: kr. 28.000,- (Allt kennslu- og ítarefni innifalið)
Faxafen 10 • 108 Reykiavík • Sími: 544 22
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoliötsk.is
Reuters
Ávaxtadýr
Börn í Hong Kong stara agndofa á þessa furðuskepnu sem berja mátti augum í
Hong Kong. Avaxtadýrið er sköpunarverk ítalska listamannsins Paola Pachetti og
var sýning á verkum hans opnuð í borgríkinu i gær.
Óeölilegt að kortanotendur
einir greiði þóknunargjöld
Framkvæmdastjóri Visa ísland segir greiðslukortafyrirtæki hér á landi ekki misnota mark-
aðsstöðu sína. Kveður þóknunargjöldin með þeim lægstu sem þekkist í Evrópu.
Þóknunargjöld greiðslukortafyr-
irtækja hér á landi eru með þeim
lægstu í Evrópu að sögn Halldórs
Guðbjarnasonar, framkvæmda-
stjóra Visa ísland. Hann segir
óeðlilegt að kortanotendur einir
séu látnir greiða þóknunargjöldin
þar sem allir hagnist á þjónustu
greiðslukortafyrirtækjanna.
Lítil samkeppni
Eins og fram kom í Blaðinu í gær
benda niðurstöður bráðabirgðar-
skýrslu framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins (ESB) til þess að fá-
keppni ríki á greiðslukortamarkaði
í Evrópu. Að mati skýrsluhöfunda
ríkir lítið gegnsæi á markaðinum
og krefjast greiðslukortafyrírtækin
óeðlilegra hárra þóknunargjalda af
kaupmönnum. Þetta veldur því að
vöruverð til neytenda hækkar um
allt að 2,5%.
f máli Sigurðar Jónsson, fram-
kvæmdastjóra Samtaka verslunar og
þjónustu, kom fram að kaupmenn
hér á landi líða fýrir sterka stöðu
kortafyrirtækjanna. Kaupmenn
þurfa í flestum tilvikum að kyngja
þeim kostum sem kortafyrirtækin
bjóði þeim enda hafi þeir takmark-
aða möguleika á að leita annað. Þá
bendir Sigurður á að honum þyki
Þrjú greiðslukortafyrirtæki eru starfandi á (slandi. Visa fsland er þar langstærst með um
70% markaðshlutdeild.
óeðlilegt að þóknargjaldi sé velt út
í vöruverð eins og kortafyrirtækin
krefjast. Eðlilegra væri að kortanot-
andi greiddi þann kostnað sjálfur.
Lág þóknunargjöld
Halldór Guðbjarnason, fram-
kvæmdastjóri Visa fsland, segir af
og frá að kortafyrirtækin hér á landi
misnoti markaðsstöðu sína. Hann
bendir á að þóknunargjöld íslenskra
kortafyrirtækja séu með þeim
lægstu í Evrópu. „Það er alltaf hætta
á hærri gjöldum þegar færri keppa
á markaði. Ég skal alveg taka undir
það. Hins vegar er það svo að þóknar-
gjöld hér á landi hafa farið lækkandi
í gegnum tfðina. Núna eru þau með
því lægsta sem þekkist f Evrópu.“
Þá segir Halldór ekkert óeðlilegt
við það að kostnaði vegna þóknun-
argjalda sé velt út í vöruverðið. Það
sé eðlilegra en að kortanotendur
einir séu rukkaðir um þau. „Kerfið
sem við bjóðum uppá hefur marga
kosti í för með sér fyrir kaupmenn.
Það býður upp á mikla hagræðingu
| hvað varða bókhafd og svo auðvitað
§ almenn viðskiptaaukning í kjölfar
1 aukinna greiðslumöguleika. Það
i er óeðlilegt að kortanotendur einir
greiði fyrir þá hagræðingu kaup-
manna. Svo má benda á að almennur
kostnaður við að halda utanum
venjuleg peningaviðskipti er gríðar-
legur. Hver á að borga þann kostnað
ef maður gerir allt með peningum?"
Löggan leitar
að nagla-
dekkjum
mbl.is | Þessa dagana leggja lögreglu-
menn á suð-vesturhorni landsins
sérstaka áherslu á eftirlit með því
hvort enn séu ökutæki á ferðinni á
negldum hjólbörðum. Eins og öllum
ætti að vera kunnugt er notkun
negldra hjólbarða bönnuð eftir 15.
apríl. Átakið hófst í fyrradag og svo
virðist sem talsvert sé um að bílar
séu enn á negldum dekkjum. Alls
voru 34 ökumenn kærðir vegna
þessa á fyrsta sólarhring átaksins.
Sekt vegna þessa brots er 5.000
kr. og því hafa ökumenn á nagla-
dekkjum verið sektaðir um sam-
tals 170.000 kr á þessum eina degi.
Lögregluliðin munu halda áfram
að beina sjónum sínum að þessum
brotum. Þeir sem enn keyra um á
nagladekkjum ættu því að skipta
yfir á sumardekk hið snarasta.
ísland sam-
keppnishæft
Island er f fjórða sæti hvað varðar
samkeppnishæfi þjóða sam-
kvæmt alþjóðlegri könnun sem
IMD viðskiptaháskólinn í Sviss
stóð að. I könnuninni er tekið til-
lit til allmargra þátta sem snerta
hagkerfið í heild t.a.m. skilvirkni
hins opinbera og innviði hag-
kerfis svo fátt eitt sé nefnt. Könn-
unin nær til ríflega 60 landa en
hún hefur verið gerð síðan 1989.
Samkvæmt könnuninni eru
Bandaríkin samkeppnishæfasta
þjóð í heimi. Hong Kong er f öðru
sæti og Singapúr í því þriðja.
Ásatrúar-
menn í sókn
Ásatrúarfélagið er nú sjötta
stærsta trúfélag landsins sam-
kvæmt tilkynningu sem trúfé-
lagið sendi frá sér í gær. Á und-
anförnum fimmtán árum hefur
félagsmannafjöldi í Ásatrúarfé-
laginu tífaldast og eru nú alls
1.003 skráðir í félagið.
Að sögn Óttars Ottóssonar, lög-
sögumanns Ásatrúarfélagsins,
er aukinn áhugi almennings á
íslenskri menningu ein helsta
skýringin á fjölgun félagsmanna
á undanförnum árum. „Það er
aukinn áhugi á uppruna okkar
og menningu meðal almenn-
ings sem skýrir þessa fjölgun að
mestu leyti,“ segir Óttar.
Heineken.is
. ENGAR MÁLAMIÐLANIR, NJÓTUM LÍFSÍNS TIL FULLS!