blaðið - 12.05.2006, Qupperneq 8
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2006 blaðiö
Rannveig Rist, forstjóri Alcan, og Cynthia
Carrol, forseti álframleiðslusviös Alcan,
skrifa undir samninginn.
Orkusamningur
undirritaður
Fulltrúar Alcan og Orkuveitu Reykja-
víkur skrifuðu í gær undir samning
sem tryggir Alcan 200 MW raforku
vegna fyrirhugaðrar stækkunar ál-
vers fyrirtækisins í Straumsvík. Sam-
kvæmt samningnum, sem metinn er
á rúmlega 60 milljarða króna, verður
orkan tilbúin um mitt ár 2010.
Viðræður milli Alcan og Orkuveit-
unnar hafa staðið yfir frá því á síð-
asta ári. Með samningnum nú hefur
Alcan tryggt sér um 40% þeirrar orku
sem fyrirtækið þarf ef verksmiðjan í
Straumsvík verður stækkuð en við-
ræður standa yfir við Landsvirkjun
um þau 60% sem enn eru ótryggð.
Atvinnuleysi
mælist 1,3%
Rúmlega 42 þúsund atvinnuleysis-
dagar voru skráðir á landinu öllu í
aprílmánuði síðastliðnum.
Það jafngildir því að ríflega
2000 manns hafi verið án vinnu í
mánuðinum, sem þýðir um 1,3% at-
vinnuleysi. Þetta er nokkuð minna
atvinnuleysi en í marsmánuði.
Þetta kemur fram í nýjum tölum frá
Vinnumálastofnun.
IANANDERSON
®UU
Beðið eftir stráknum: Laura Bush, eiginkona George Bush og Barbara, móðir hans, bíða eftir að forsetinn snúi aftur til Hvíta hússins
eftir stutta heimsókn til Flórída í gær.
Viðurkennir óróleika
George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir þjóðina hafa miklar
áhyggjur af írak og olíuverði en biður hana um þolinmæði.
George Bush, forseti Bandaríkjanna,
viðurkennir að það sé óróleiki og
stríðsþreyta í bandarísku þjóðinni.
Forsetinn segir þetta ástand til komið
vegna gangs mála í írak og ört hækk-
andi olíuverðs. Forsetinn, sem hefur
aldrei mælst óvinsælli í skoðanakönn-
unum, viðurkenndi þetta fyrir blaða-
mönnum í Flórída-ríki á dögunum.
Forsetinn var á ferðalagi um ríkið til
þess að safna fé í kosningasjóð repú-
blikana fyrir þingkosningarnar í nóv-
ember auk þess sem hann reyndi að
afla umbótum ríkisstjórnarinnar á
heilbrigðiskerfinu fylgis.
Á fundinum með blaðamönnum
sagði Bush að það væri skiljanlegt
að órói væri i Bandaríkjamönnum
en hann ítrekaði trú sína á því að
ástandið í Irak myndi batna. Hann
sagði íraka hafa djúpstæða þörf
til þess að búa við lýðræði og þess
vegna væri hann sannfærður um
að áætlanir um að festa slíka stjórn-
skipan í sessi myndu ganga upp.
Hins vegar væri nauðsynlegt að
Bandaríkjamenn sýndu þolinmæði
gagnvart skuldbindingum stjórn-
valda í írak. Einnig ítrekaði forset-
inn að ríkisstjórnin myndi gera það
sem í hennar valdi stendur til þess
að halda olíuverði viðráðanlegu
fyrir bandaríska neytendur.
Segir bróðir sinn „ein-
stöka mannveru"
Yngri bróðir George Bush, Jeb, er ríkis-
stjóri í Flórída. Forsetinn var spurður
hvernig honum litist á að bróðirinn
fylgdi í fótspor hans og færði sig úr
stóli ríkisstjóra yfir í embætti forseta
Bandaríkjanna. George Bush sagðist
sannfærður um að Jeb, bróðir hans,
yrði frábær forseti þar sem að hann
væri „einstök mannverá'.
Jeb Bush hefur ekki lýst því yfir
að hann hyggist bjóða sig fram til
forseta í framtíðinni. Þrátt fyrir það
telja margir líklegt að hann íhugi al-
varlega að feta í fótspor bróður síns.
Hann lýkur öðru kjörtímabili sínu
í janúar næstkomandi en má ekki
bjóða sig fram í embættið aftur.
Jeb Bush er, ólíkt bróður sínum,
vinsæll meðal kjósenda um þessar
mundir. I könnun sem var gerð í
síðasta mánuði töldu 55% íbúa rík-
isins að ríkisstjórinn stæði sig vel í
starfi á meðan aðrar kannanir sýna
að aðeins 31% Bandaríkjamanna eru
sáttir við hvernig forsetinn stendur
sig. Bandarískur forseti hefur aldrei
mælst með minna fylgi í fimmtíu
ár. Stjórnmálaskýrendur telja óvin-
sældir forsetans slíkar að þær verði
helsta ástæða þess að repúblikanar
tapi þingmeirihluta sínum í kosning-
unum i nóvember.
Benedikt páfi XVI tók á móti Hugo
Chavez í Vatikaninu í gær.
Páfi veitti
Chavez áheyrn
Hugo Chavez, forseti Venesúela,
fékk áheyrn hjá Benedikt páfa
XVI í Vatikaninu í gær. Sam-
kvæmt tilkynningu talsmanns
Vatikansins, eftir 35 mínútna
fund Chavez með páfa, lýsti sá síð-
arnefndi áhyggjum sínum vegna
ástands kaþólsku kirkjunnar í
Venesúela og brýndi fyrir forset-
anum rétt Vatikansins til þess að
velja biskupa landsins.
Benedikt páfi lýsti einnig yfir
áhyggjum vegna fyrirhugaðra
breytinga á menntakerfi Venesú-
ela en þær fela meðal annars í sér
að kristinfræðikennslu verður
hætt í skólum og nafni Kaþólska
Háskólans í Santa Rosa verði
breytt þannig að vísunin í trúar-
legar rætur skólans verður afmáð.
Fóstureyðingar bárust einnig í
tal og bað páfinn forsetann enn-
fremur um að heilbrigðiskerfi
landsins virði réttinn til lífs.
Gagnrýni kirkjunnar
Allar götur frá því að Hugo Cha-
vez komst til valda árið 1999
hefur hann átt í útistöðum við
yfirvöld kaþólsku kirkjunnar,
en kirkjunnar menn í Venesúela
hafa verið helstu gagnrýnendur
forsetans. Chavez hefur brugðist
við því með að reyna að stemma
stigu við völdum kirkjunnar i
landinu, en yfir 90% íbúa Venesú-
ela eru kaþólskir. Hann hefur
meðal annars sagt að kaþólska
kirkjan sé „krabbamein" á samfé-
laginu. Þrátt fyrir þetta þá vitnar
Chavez oft og iðulega í Biblíuna
i ræðum sínum og dæmisöguna
um úlfalda, ríka manninn og nál-
araugað er í sérstöku uppáhaldi
hjá forsetanum. Chavez heldur
einnig þeirri kenningu oft á lofti
að Jesú hafi verið sósíalisti og
byltingarmaður.
Áheyrnin er liður í þvi að
minnka spennuna í samskiptum
forsetans við kaþólsku kirkjuna.
Meðan á áheyrninni stóð færði
Chavez páfanum málverk af
suður-amerísku byltingarhetj-
unni Símon Bólivar. Chavez
sagði páfanum að Bólivar hefði
í raun verið kristinn maður en
ekki guðleysingi eins og almennt
er talið.
SJÓNARHÓLL
piltar
stúlkur
börn
eldri konur
eldri karlmenn
STÓRAR konur
STÓRIR karlmenn
Gleraugnaverslun
Reykavíkurvegur 22
220 Hafnarfírði
565-5970
STÆRRI VERSLUN
MEIRA ÚRVAL
konur
karlmenn
hfont.
MiNiMA
Ljósm. Guöbjörg Hassing