blaðið - 12.05.2006, Side 10
10 IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2006 blaðið
w
Neita að loka fanga-
búðum í Guantanamo
Goldsmith lávarður, helsti lögspekingur bresku ríkisstjórnarinnar,
segir fangabúðirnar setja svartan blett á bandarískar hefðir.
Goldsmith lávarður, aðalögmaður bresku ríkisstjórnarinnar, segir Guantanamo-búðirn
ar táknmynd óréttlætis.
Bandarísk hermálayfirvöld telja mikinn virðisauka falinn í málakunnáttu meðal
hermanna.
Málakunnátta
verðlaunuð
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa
vísað á bug hugmyndum breskra
ráðamanna að loka Guantanamo-
fangabúðunum á Kúbu þar sem
grunaðir illvirkjar í hryðjuverka-
stríði George W. Bush forseta eru í
haldi. Bandarískir embættismenn
lýstu því yfir í gær að þar væru í
haldi stórhættulegir menn sem
myndu á ný gerast ógnvaldar yrði
þeim sleppt úr haldi.
Goldsmith lávarður, helsti laga-
spekingur bresku ríkisstjórnarinnar,
sagði á miðvikudag að ógerlegt væri
með öllu að sætta sig við tilvist
búðanna og kvað þær setja svartan
blett á bandarískar hefðir og gildi
á borð við frelsi og réttlæti. Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
hefur einnig gagnrýnt Bandaríkja-
menn fyrir rekstur fangabúðanna
við Guantanamo-flóa á Kúbu og
þykja þau ummæli til marks um vax-
andi spennu í samskiptum ríkjanna.
Bandaríkjastjórn hefur ennfremur
sætt þungri gagnrýni á alþjóðavett-
vangi sökum þeirra. Vitað er að
þar hafa menn verið vistaðir árum
saman án þess að mál þeirra hafi
verið tekin fyrir eða þeir notið lög-
fræðilegrar aðstoðar. Því er haldið
fram að fangar sæti pyntingum í
búðunum en þeim ásökunum vísa
Bandaríkjamenn á bug.
Táknmynd óréttlætisins
Ummæli Goldsmits lávarðar þykja
á hinn bóginn þau þyngstu sem
breskur ráðamaður hefur látið falla
til þessa. Lávarðurinn lýsti búð-
unum sem táknmynd óréttlætisins.
Minnti hann á að Bandaríkin hefðu
verið sem Ijósviti þeirrar stjórnmála-
hefðar sem upphefði frelsi og rétt-
læti í heiminum. Þessi hefð krefðist
þess að búðirnar yrðu fjarlægðar.
Fangar í Guantanamo eru skil-
greindir sem „óvinveittir vígamenn“
(e. „enemy combatants") og um þá
gilda þær sérstöku reglur að réttar-
staða þeirra er engin. Haft er fyrir
satt að lávarðurinn hafi efasemdir
um þessa skilgreiningu.
Sean McCormack, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins, brást við gagnrýninni, og lýsti
)ví yfir að Bandaríkjastjórn myndi
íelst af öllu vilja loka Guantanamo-
)úðunum einhvern tímann í fram-
tíðinni. Vísaði hann til orða sem
Bush forseti lét falla í sjónvarpsvið-
tali um liðna helgi þar sem hann lét
efnislega sömu ósk í ljós. „Enginn
vill taka að sér að vera fangabúða-
stjóri heimsins," sagði talsmaðurinn.
McCormack bætti við að staðreynd
málsins væri sú að í Guantanamo
væri stórhættulegum mönnum
haldið föngnum. Bandaríkjamenn
vildu ekki sleppa þessum mönnum
úr haldi til þess að mæta þeim síðar
á vígvellinum eða gefa þeim tæki-
færi til að fremja hryðjuverk gegn
óbreyttum borgurum.
Talsmaður bandaríska varn-
armálaráðuneytisins sagði fyrir
liggja að í Guantanamo-búðunum
væri að finna sprengjusérfræðinga,
þrautreynda og vel þjálfaða hryðju-
verkamenn sem og menn sem
tilbúnir væru að fórna eigin lífi í
sjálfsmorðsárásum.
Um 490 fangar eru nú í haldi í Gu-
antanamo. Búðirnar voru teknar í
notkun í janúarmánuði árið 2002.
Bandarískir hermenn sem kunna
annað tungumál en ensku eiga
nú von á kaupauka. f sumum til-
fellum geta laun þeirra hækkað
verulega.
Bandaríkjaher sárvantar her-
menn sem kunna mál heima-
manna á átakasvæðum á borð
við frak og Afganistan. í krafti
nýrra reglna geta hermenn sem
tala erlent tungumáf fengið kaup-
auka sem getur numið allt að
12.000 Bandaríkjadölum (um
840,000 krónum) á ári. Mest er
spurnin eftir hermönnum sem
kunna arabísku, pashtu, dari og
mandarínsku.
Hermenn sem eru á átaka-
svæðum geta þannig fengið allt
að 1.000 dollara aukalega í laun
á mánuði. Þeir sem tilheyra Þjóð-
varðliðinu og varasveitum her-
aflans fá á hinn bóginn helming
þeirrar upphæðar.
Samkvæmt núgildandi reglum
getur bandarískur hermaður, sem
mæltur er á aðra tungu en ensku,
mest fengið 300 dollara, um 21.000
krónur, í kaupauka á mánuði.
Ellen Krenke, talskona banda-
ríska varnarmálaráðuneytisins,
sagði í samtali við Reuters-frétta-
stofuna að kaupaukinn myndi fara
eftir þeim tungumálum sem her-
mennirnir töluðu og hversu gott
vald viðkomandi hefði á málinu.
f máli Krenke kom fram að
247.000 bandarískir hermenn eru
nú mæltir á aðra tungu en ensku.
Af þessum fjölda hefðu um 20.000
manns fengið tungumálakunn-
áttu sína viðurkennda og þar með
fengið kaupauka. Upplýsti tals-
konan einnig að um 7.000 banda-
riskir hermenn töluðu arabísku.
Viltu stofna fyrirtæki
...og læra að reka það með góðum hagnaði
Nýtt og spennandi verkefni
- Enginn stofnkostnaður
- Val um rekstrarleiðir
- Eigin viðskiptaþjálfi
- Vönduð kennslugögn
- Glæsileg kennsluaðstaða
- 20 ára viðskiplakeríi
- Nánari upplýsingar
á kynningarfundum
Malarnám
leyft úr Ing-
ólfsfjalli
Bæjarstjórn Ölfuss ákvað í gær-
morgun að leyfa á áframhaldandi
malarnám úr Ingólfsfjalli. Um er
ræða tvær milljónir rúmmetra af
efni sem tryggir vinnslu næstu 10
árin.
Ákvörðun bæjarstjórnarinnar
kemur þvert á álit Skipulagsstofn-
unar sem hafði lagst gegn frekara
malarnámi úr fjallinu. Taldi stofn-
unin að slíkt hefði meðal annars
í för með sér verulega sjónræna
mengun.
Að áliti bæjarstjórnar vega efna-
hagsleg áhrif þess að loka námunni
þyngra en sjónræn áhrif. Þá er
bent á að samkvæmt aðalskipulagi
sveitarfélagsins, sem umhverfisráð-
herra hafi staðfest fyrir ári síðan,
sé gert ráð fyrir áframhaldandi
malarnámi.