blaðið - 12.05.2006, Side 18

blaðið - 12.05.2006, Side 18
18 I TÍSKA FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2006 blaðið Islensk framleiðsla á hágœðaúrum Quentin Tarantino ogEli Roth keyptu sér úr afgerðinni Js Watch co Reykjavík sem er íslenskframleiðsla. Sigurður B. Gilbertsson fram- leiðir íslensk úr ásamt Júlíusi Heiðarssyni og Grímkeli Pétri Sigurþórssyni en línan heitir Js Watch co Reykjavík og eru þau til sölu hjá Gilberti Ó. Guðjóns- syni, úrsmiði á Laugaveginum. Sigurður segir hugmyndina að framleiðslunni hafa kviknað fyrir um tveimur árum en fyrirtækið í kringum framleiðsluna var stofnað í nóvember í fyrra. „Við hönnum úrin sjálfir. Salan hefur farið fram úr öllum vænt- ingum og við höfum varla undan að framleiða. Núna eru aðeins herraúr í línunni en í næsta mánuði eru væntanleg á markað kvenmannsúr í þessari íslensku framleiðslu.“ Sem dæmi um vinsældir úranna má nefna að kvikmyndaleikstjór- arnir Quinten Tarantino og Eli Roth keyptu sér úr af þessari gerð. Sig- urður segir nokkuð um að erlendir ferðamenn kaupi þessi íslensku úr þrátt fyrir að stykkið af því kosti um 75 þúsund krónur. „Þetta er ekki hátt verð miðað við gæði og eru úr af samsvarandi gæðum erlendis á mun hærra verði. Js Watch co eru mjög endingargóð og eiga að geta gengið í arf kynslóð eftir kynslóð.“ Sigurður segir að gangverk úranna sé svissneskt og að þau séu sjálftrekt. „í úrin er notað nikkelfrítt hágæða- stál sem er ofnæmisprófað og glerið er úr safír sem þýðir að það hefur mikla hörku og ekkert sem getur Gull- og silfursmiðjan Erna Skipholti 3 - s. 552 0775 - www.erna.is Bpennandi förðunarnám 5kráning er hafin á sumar- □□ hau5tnámskeið Förðunarskóla rifka. Afar lifandi og áhugavert nám sem býöur upp á mörg spennandi atvinnutækifæri. Förðunarskóli rifka var áður þekktur undir nafninu Förðunarskóli NO NAME, hefur nú starfað óslitið í 10 ár. Á þessum tíma hefur skólinn útskrifað yfir 1000 förðunar- fræöinga sem margir eru starfandi við fagið og allan þennan tíma hefur skólinn verið í fararbroddi í föröunarkennslu. Tísku- og ijósmyndaföröun, 14 vikur. Sumarnámskeiö 15. maí 2006. Morguntímar eingöngu. Haustnámskeiö 11. september 2006. Morgun- og kvöldtimar. Útlitsnámskeiö fyrir 13-16 ára. Veldu nám við þitt hæfi: • Tísku- og Ijósmyndaförðun 6 eða 14 vikur • Kvikmynda- og leikhúsförðun • Úðaförðun/brúnkumeöferöir • Kvöldnámskeið í dag- og kvöldförðun Hafðu samband 1 s(ma 565-2300. sendu póst á: skollðrlfka.ls eða skráðu þlg á www.rtfka.ls rifka rifka. Make-Up School. MAKE UP Hjallabrekku 1. 2DO Kópavogl SCHOOL Gilbert Ó. Guðjónsson, úrsmiður, skoðar handverkið á gangverkinu. rispað þau nema demantur. Kassinn byggjum á reynslu þeirra fyrirtækja utan um gangverkið er framleiddur sem við verslum við en framleiðandi í Þýskalandi og ólarnar í Austur- gangverksins hefur framleitt þau frá ríki og allt er þetta framleitt eftir árinu 1793.“ okkar hönnun og hugmyndum. Við 101 línan mun einnig verða fáanleg í kvenmannsúrum Áhersla á klassísk og tímalaus úr Sigurður segir að allt efni í úrin sé frá Evrópu og síðan eru þau sett saman á íslandi. „Úrin frá okkur eru fullkomlega samkeppnishæf við þekkt merki sem nota sömu gang- verk og við. Þá leggjum við áherslu á að viðskiptavinir geti talað við fólkið sem setur úrin saman sem er önnur upplifun en áður hefur boðist hér á landi.“ Þegar kemur að útliti úranna segir Sigurður að áhersla sé lögð á að fram- leiða tímalaus og klassísk úr. „Þessi úr eru ekki ósvipuð þeim sem voru framleidd fyrir 50 árum síðan og út- lit þeirra mun halda áfram að vera i gildi um ókomin ár. Litur ólanna er ýmist svartur eða brúnn en í fram- tíðinni verður hægt að fá litaðar ólar, sérstaklega á dömuúrin. Þá fram- leiðum við sérstök kafaraúr sem eru vatnsþétt niður á 200 metra dýpi og eru með vatnsþéttar leðurólar." Sigurður segir að úr séu helsti skartgripurinn sem karlmenn bera og því mikilvægt að eiga nokkur úr til að nota við hin ýmsu tækifæri. „Karlmenn eru smám saman að læra þetta en kvenmannsúrin eru oft mjög falleg og í raun armband og skartgripur í leiðinni.“ hugrun@bladid.net Haldið upp á 150 ára af- mœli Burberry I tilefni 150 ára afmælis Bur- berry er kominn á markað nýr dömuilmur sem heitir Burberry London. Burberry ilmirnir hafa verið með þeim söluhæstu á markaðnum undanfarin ár. Þess má geta að aðal hönnuðurinn hjá Burberry, Christopher Bailey, var valinn besti hönnuðurinn árið 2005/2006 á British Fashion Aw- ards í London. Burberry London fæst i 100,50 og 30 ml flöskum og einnig er hægt að fá sturtusápu og húðkrem í sömu línu. Nýja ilmvatnið Burberry London kemur f fallegum umbúðum og utan um flöskuna er hið vinsæla köflótta efni sem einkennir Burberry línuna. Burberry London sturtusápa og húðkrem.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.