blaðið - 12.05.2006, Page 22
22 I ÍÞRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2006 blaðiö
„Við enduðum í 2.-3. sæti í fyrra og
þess vegna er kannski ekkert óeðli-
legt að okkur sé spáð öðru sætinu
núna. Við ætlum okkur náttúrlega
að vera í efri hlutanum,“ sagði Ólafur
Þórðarson, þjálfari ÍA, um spána.
Mikils er vænst af Skagamönnum
í ár, enda hefur liðið styrkt sig veru-
lega, en Ólafur segist litlar áhyggjur
hafa af þeim væntingum. „Við
finnum litið fyrir utanaðkomandi
pressu. Ég held að mesta pressan sem
við finnum fyrir sé sú sem við setjum
á okkur sjálfir. En það er bara gott
mál ef aðrir halda að við séum með
svona sterkt lið, þá hljóta þeir að ótt-
ast okkur,“ sagði Ólafur og hló.
Bræðurnir Bjarni og Þórður Guð-
jónssynir eru heimkomnir úr at-
vinnumennskunni og þá er Arnar
Gunnlaugsson genginn að nýju til
liðs við í A frá KR. Ólafur sagðist hæst-
ánægður með liðsstyrkinn. „Þeir eru
að koma ágætlega út. Reyndar hefur
Þórður átt við smávægileg meiðsli að
stríða, en Bjarni er að standa sig vel
og Arnar hefur verið að standa sig vel
í vorleikjunum. Svo fengum við Arna
Thor frá HK og hann hefur lika verið
að standa sig vel. Það er góð búbót að
fá þessa miklu reynslu inn í hópinn,“
sagði Ólafur.
Hann sagði Skagaliðið hafa fulla
burði til þess að ná langt í ár. „Við
stefnum að því að verða eitt af
þremur efstu liðunum, það er alveg
klárt. Það kæmi mér ekki á óvart að
FH, KR og Valur verði þau lið sem
munu veita okkur mesta samkeppni,"
sagðiÓlafur.
VINNUVELANÁMSKEIÐ
NÁMSKEIÐ VIKULEGA
Staðstetning Mjódd
www.ovs.is
flkn- ngirTTmiirgteknliiin phf
UPPLYSINGAR OG INNRITUN I Sl'MA 894 2737
Eyjamönnum er spáð fallsæti og
sagði Guðlaugur Baldursson, þjálf-
ari ÍBV, alls ekki sáttur við það því
liðið ætlaði sér allt annað en að falla
úr Landsbankadeildinni. „Þetta er
auðvitað bara spá. Við höfum áður
lent i því að þurfa að afsanna spár
og ætlum okkur að sjálfsögðu gera
það aftur núna. Við teljum okkur
vera með sterkari mannskap en
síðasta sumar og ætlum okkur að
gera betur en þá,“ sagði Guðlaugur,
en liðið hafnaði þá í áttunda sæti
eftir að hafa verið í fallbaráttu allt
tímabilið.
Vestmannaeyingar hafa misst fjöl-
marga leikmenn en á meðal þeirra
sem komið hafa í þeirra stað er
landsliðsfyrirliði Úganda, Andrew
Mwesingwa. „Hann er nýlega
kominn til landsins en hann lofar
nokkuð góðu,“ sagði Guðlaugur og
kvaðst á heildina litið mjög sáttur
við erlendu leikmennina sem munu
hreiðra um sig í Eyjum í sumar. „Er-
lendu leikmennirnir eru að koma vel
út og ég bind mun meiri vonir við er-
lendu leikmennina í ár en í fyrra.“
Aðspurður hverjir yrðu meistarar
sagði Guðlaugur: „Eg held að FH
taki titilinn, eftir baráttu við lA og
Val.“
Willum Þór Þórsson, Val:
„Liðið hefur þróast mikið"
Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals,
taldi spána vera í takt við það sem
menn búast við fyrir sumarið. Hann
. sagði ótímabært að setja stefnuna á ís-
landsmeistaratitilinn. „Auðvitað vilja
allir vinna mótið. Við höfum fulla trú
á því og vonum að við getum blandað
okkur í toppbaráttuna, en það hefur
aldrei verið farsælt að einblína á það
svona snemma. Við getum ekki verið
að hugsa lengra en bara næsta leik,“
sagðiWillum.
Valsmenn hafa misst sterka leik-
menn en sömuleiðis fengið sterka
leikmenn til sín. Willum sagði erfitt
að meta hversu sterkt liðið væri i ár
samanborið við tímabilið í fyrra. „Við
höfum notað veturinn vel, liðið hefur
þróast mikið og við erum á réttri leið.
Við eigum að geta spilað svipaðan fót-
bolta og í fyrra og ætlum okkur sann-
arlega að vera í efri hlutanum," sagði
Willum.
Hann sagðist eiga von á því að
deildin í ár yrði langtum jafnari en í
fyrra. „Öll liðin hafa bætt sig og styrkt.
Það er mikill hugur í öllum liðum,
eins og venjulega, og ég á von á þvi
að þetta verði mjög jafnt mót,“ sagði
Willum.
Veislan er að heQast!
Spá þjálfara ogfyrirliða Landsbankadeildarinnar var birt á kynningarfundi KSÍ og Landsbankans ígœr.
Björn Bragi Arnarsson fékk viðbrögð þjálfara liðanna sem spáð er efstu og neðstu sœtum.
Spáþjálfara
og fyririiða
Magnús Gylfason, Víkingi:
,Rólegur yfir spánni
Nýliðum Víkings var spáð neðsta
sæti en Magnús Gylfason, þjálfari
liðsins, sagðist litlar áhyggjur hafa
af því. „Mín viðbrögð við spánni eru
bara þau að við ætlum okkur ekkert
að falla. Ég var með ÍBV í tvö ár og
þá var okkur í bæði skiptin spáð fall-
baráttu eða falli en lentum í fimmta
og öðru sæti, þannig að ég er alveg
rólegur yfir þessari spá,“ sagði
Magnús. Hann sagði það koma sér á
óvart að Víkingum væri spáð neðsta
sætinu þar sem liðið hafi verið að
spila vel á undirbúningstímabilinu.
Magnús sagðist sáttur
með þann mannskap sem hann
hefur yfir að ráða og að liðið hafi
alla burði til þess að halda sér uppi
á meðal þeirra bestu. „Við erum
komnir með fínt lið og ætlum okkur
bara að standa okkur og hafa gaman
af þessu,“ sagði Magnús.
Ólafur Þórðarson, ÍA:
Reynslu-
boltarnir
góð búbót
Blaðio/trikki
Heimir Guðjónsson, FH:
„Ætlum að verja titilinn"
Landsbankadeild karla
1. FH 268
2.-3. (A 247
2.-3. KR 247
4. Valur 225
5. Keflavík 170
6. Fylkir 150
7.-8. Breiðablik 91
7.-8. Grindavík 91
9. (BV 82
10. Víkingur 79
Landsbankadeild kvenna
1. Breiðablik 187
2. Valur 153
3. KR 152
4. Stjarnan 128
5. Keflavík 73
6. FH 72
7. Fylkir 56
8. Þór/KA 43
Heimir Guðjónsson, aðstoðarþjálfari
FH, sagði það ekki koma sér á óvart
að sínum mönnum væri spáð titl-
inum. „Við erum íslandsmeistarar
síðustu tveggja ára og því kannski
ekkert óeðlilegt að okkur sé spáð titl-
inum. En við gerum okkur auðvitað
grein fyrir því að það þarf að spila
mótið og verðum bara klárir í fyrsta
leik á sunnudaginn," sagði Heimir, en
þá sækir Hafnarfjarðarliðið KR heim
í Frostaskjólið.
FH varð fyrir blóðtöku eftir síðasta
tímabil. Danski sóknarmaðurinn
Allan Borgvardt hélt í víking til Nor-
egs og Auðunn Helgason mun ekk-
ert leika vegna erfiðra hnémeiðsla.
Heimir er engu að síður bjartsýnn.
„Það er ljóst að það gæti tekið okkur
dálítinn tíma að slípa liðið saman, en
við höfum fengið góða leikmenn í stað-
inn og ég er bjartsýnn á að þetta gangi
vel. Við ætlum okkur að sjálfsögðu að
verja íslandsmeistaratitilinn," sagði
Heimir.
FH-ingar hafa fengið til sín annan
Dana fyrir timabilið, Allan Dyring,
og er honum ætlað að fylla skarð
landa síns og nafna. Dyring þykir
ekki hafa staðið fyllilega undir vænt-
ingum á undirbúningstímabilinu en
Heimir segir hann eiga meira en nóg
inni. „Það tók Allan Borgvardt tíma
að komast í gang þegar hann kom til
okkar. Allan Dyring hefur kannski
ekki alveg náð að sína sitt rétta and-
lit á undirbúningstímabilinu, en við
þjálfararnir höfum trú á þvi að hann
geti vel leyst hann af hólmi," sagði
Heimir.
Aðspurður um helstu keppinauta
FH í sumar hafði Heimir vaðið fyrir
neðan sig og sagði: „Ég held að það
verði í A, KR, Fylkir og Valur.“
Guðlaugur Baldursson, ÍBV:
„Erum betri en í fyrra"
Upplýsingor og skróning á netinu:
www.ulfljotsvatn.is
- Sparkleikir - Frumbyggjastörf - Ædol - Útilíf - Kassabílaakstur - Sui/d -
Fyrir stráka og stelpur 8-1 2 ára - skipt í hópa eftir aldri
Krassandi útilífsœvintýri - fjör og hópeflisandi!
INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljot$vatn.is