blaðið

Ulloq

blaðið - 12.05.2006, Qupperneq 30

blaðið - 12.05.2006, Qupperneq 30
30 IFÓLK FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2006 blaðið 20 CM PERSÓNULEIKI Nú er að fara af stað fegurðarsamkeppn- In Ungfrú fsland 2006. Þessi keppnl og nokkrar svlpaðar hafa verlð umdelldar í gegnum tíðina og eru enn í dag. Fegurð- arkeppnir hafa styrkt grundvöll sinn ef eitthvað er og þykja nú vinsælt sjónvarps- efni. Eins og í öllum góðum keppnum er héraðskeppni í Ungfrú (sland og síðan er það aðalkeppnin þar sem sigurvegarar héraðskeppnanna koma saman. Reðuröfund? Femínistar hafa gagnrýnt fegurðarsam- keppnir á grundvelli þess að þær hlutgeri konur. Smáborgarinn er sammála þvf að keppnin sem slík byggir á afar hæpnu manngildi. Fegurðarsamkeppnir hafa hingað til verið tengdar við konur en Herra (sland fer einnig fram á hverju ári. Gagnrýnin á hlutgervingu manneskj- unnar hefur verið fyrirferðamest í sam- bandi við fegurðarsamkeppnir kvenna en hún hlýtur einnig að eiga við keppni karlmanna. Það er að segja ef fyllsta jafnréttis á að gæta. Gagnrýnendur feg- urðasamkeppna hafa oft fengið þann stimpil á sig að vera kynlausar, Ijótarfem- ínistatruntur og leiðindapúkar. Það eru að sjálfsögðu haldbær rök og ótrúlegt að þeim sé ekki beitt víðar í þjóðfélaginu. Smáborgarinn veltir þá fyrir sér hvernig megi túlka það að karlmaður stígi fram og gagnrýni kynbræður sfna. Er þá sömu orðræðu beitt? Eru það þá eingöngu feit- ir og Ijótir karlmenn sem gagnrýna fegð- urðarsamkeppni karla? Er það einungis reðuröfund? Heillandi persónuleiki Smáborgarinn man eftir viðtali við skipuleggjanda fegurðarsamkeppni fyr- ir tveimur árum. Skipuleggjandinn var augljóslega að bregðast við gagnrýni og sagði að stúlkurnar hefðu verið valdar inn f keppnina vegna persónuleika og hæfileika. Það er að sjálfsögðu mýta að fallegar stúlkur séu heimskar eða hæfi- leikalausar en Smáborgarann grunar samt að skarpur persónuleikinn hafi ekki verið grunnforsenda þess að komast inn í keppnina, né grunnforsenda þess að fólk hafi áhuga á henni. Smáborgarinn skilur reyndar ekki að heillandi persónuleiki hafi eitthvað með bikfni-fatnað að gera. En það leggja ekki allir sama skilning í hugtakið persónu- leiki, né hvar hann gefur að líta. HVAÐ FINNST ÞÉR? Gísli Marteinn Baldursson, Sjálfstœðisflokki. Hvar er skuldaklukkan? „Skuldaklukkan bræddi úr sér! Skuldir Reykvíkinga voru 4 milljarðar á núvirði þegar R-listinn tók við, en eru núna 65 milljarðar. Þetta er sex- tánföldun og skuldaklukkan okkar réði hreinlega ekki við þetta. Við er- um að reyna að koma henni í gang aftur og færustu tölvumenn landsins vinna dag og nótt við að búa til skuldaklukku sem getur talið nógu hratt því skuldirnar vaxa með ótrúlegum hraða. Þegar það tekst birtist klukk- an aftur á www.betriborg.is.“ Sjálfstæðismenn hafa um nokkurra missera skeið verið með svokallaða skuldaklukku á heimasíðu sinni sem sýnt hefur skuldir borgarinnar hlaðast upp með ógnarhraða. Nú bregður svo við rétt fyrir kosningar að klukkan hefur verið fjarlægð af síðunni. Stytta af tölvuleikjapersónunni lllidan úr fjölspilunarleiknum World of Warcraft. Styttan er til sýnis á Electronic Entertainment sýningunni sem stendur nú yfir í Los Angeles. Þessi furðulega skepna er úr tölvuleikn- um Spore sem kemur út á næsta ári. Leik- urinn verður, eins og myndin sýnir, með ævintýralegum blæ. Margir komu við í nýju Fatboy Slim versluninni sem opnuð var við Laugaveg 51 í blíðviðri á laugardaginn. Þessi unga kona lét þreytuna líða úr sér I einum stólanna, en það tók á að ganga um Laugaveginn ísólinni. Winner Progress Long Coats Sjampó fyrir síðhærða hunda Þessi sérstaka sjampó formúla fýrir síöhæröar(yfir 6cm) tegundir.hreinsar og styrkir, þökk só sérstökum virkum efnum sem veita undraveröan árangur; næra og enduriífga síöhæröan feld. Þessi vara hefur mýkingar, gljá og glans eigin- leika. Inniheldur Jojoba olíu sem nærir og gefur fallegan glans, grænmetis trefjaprotein til aö styrkja teygjanleika meöan unnið er viö feldinn, keratin fyrir húö og E vitamín til aö endurilfga ofunninn og þreyttan feld. Viö mælum meö vandlegu eildarvirku hreinsivöru nái alla leiö aö rótum. [Winner Progress Short Coats Sjampó fyrir stutthærða hunda Þetta er vafalaust mildasta sjampólö I allri okkar llnu, sem undir- strikar þýðingu rannsókna Ingeya að geta boðið uppá sérhæfða hreinslvöru fyrir þessa einstaklegu flóknu feldgerð. Virku yfir- borðsefnin sem notuð enj I þetta sjampó eru grænmetisþykkni og er þvl algjörlega náttúrulegt. Virku efnin hafa ótrúleg næringar, vamar og róandi áhrif, þökk sé jurtalækníngamætti ruscus, bal- dursbrá og salts úr Dauða hafinu. Sérstök vemdar efni sem þróuð eru úr virkum frumefnunum örva náttúmlegar varnir ulega, hreinsar það húð og nærir feldlnn þökk sé E vltaminlnu. DÝRARÍKIÐ Grensásvegf s:5686668 • Skútuvogi 16 s:5680020 - Akureyri s:4612540 - www.dyrarikid.is eftir Jim Unger 7-21 © Jim Urtgcr/dist. by Unitcd Mcdia, 2001 HEYRST HEFUR... arsonar 1 öjan O Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var nýverið viðmælandi Jóns Ársæls Þórðarsonar í Sjálf- stæðum íslend- ingum á Stöð 2. Sveinar Dags B. Eggertssonar á Hallveigarstígn- um hringdu samstundis og kröfðust þess að sínum manni yrði sami sómi sýndur. Við því var orðið og er einboðið að Björn Ingi Hrafnsson, Ólafur F. Magnússon og Svandís Svavars- dóttir leggi fram sams konar kröfugerð... Peir félagar Hreinn og Sveinn, Loftsson og Andri Sveinsson, halda áfram magn- aðri ritdeilu sinni á síðum Morgunblaðsins, þar sem Hreinn getur ekki leynt bræði sinni en Sveinn ekki fyr- irlitningu sinni. I þessu samgengi hefur Baugs- mönnum verið tíðrætt um að þeir vilji fá réttláta dómsmeð- ferð frekar en að þurfa að þola „réttlæti götunnar". I því ljósi hafa sumir spurt hvort tilgang- ur skoðanakönnunar, sem unn- in var fyrir Baug, um afstöðu almennings til Baugsmálsins og framhalds þess, hafi ekki einmitt verið tilraun til þess að áfrýja málinu til dómstóls götunnar. Spyrja menn hvað hafi breyst. Amiðvikudag bættist Einar Þór Sverrisson, verjandi Jóhannesar Jónssonar í Bónus, í hóp greinahöfunda Mogga til þess að gera athugasemdir við fréttaskýringar Kastljóss um Baugsmálið, hvað sem líð- ur endurteknum yfirlýsingum Baugsmanna upp á síðkastið um að málið yrði ekki frekar rekið í fjöl- miðlum. í grein sinni hæðist Einar Þór að því að hvorki Jón Gerald Sullenberger, Styrmir Gunnarsson eða rannsakarar efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra hafi þekkt muninn á debet og kredit við skoðun sína á reikningi, sem Jón Ger- ald framvísaði þegar hann gerði lögreglu viðvart um hin ætluðu brot. Einari Þór láist hins vegar að geta þess að bók- urum og endurskoðendum Baugs brást sú bogalist líka, eins og fram kom við réttar- hald í héraðsdómi á dögun- um... Pólitíkin í Hveragerði hefur löngum verið utanaðkom- andi fullkomlega framandi og nú er enn komin upp óvænt staða þar. Kjörstjórn sveitarfé- lagsins úrskurðaði að Kolbrún Ósk Guðmundsdóttir mætti ekki taka sæti á lista vinstri- grænna, þar sem hún hafi ekki verið búsett í bæjarfélaginu nægilega lengi. Finnbogi Vikar Guðmundsson, oddviti listans, hyggst kæra úrskurðinn og seg- ir að VG hafi fengið rangar upp- lýsingar um hvernig haga bæri framboðinu og búferlaflutning- um og vill ekki útiloka að það hafi verið gert viljandi. Sagði hann í viðtali við NFS í gær að meirihluti Framsóknar og Sam- fylkingar svífist einskis í þvi að reyna að eyðileggja fyrir VG og nefnir alls -kyns skemmdar- verk í bænum til vitnis um það. Það er af sem áður var þegar rakkar íhaldsins hömuðust mest á kommúnistum... KÚKKÚ!

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.