blaðið - 23.05.2006, Page 16
16 I WEYTENDUR
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2006 blaðið
Sparnaðarráð vikunnar
Kaupa meira magn ogfrysta
í nútímasamfélagi vilja flestir
kaupa ferska vöru því oft er varan
sem keypt er ætluð í matinn sama
dag. Það má hins vegar gera mun
hagstæðari kaup með því að kaupa
frosna vöru og hér er ekki verið að
tala um Kína-rúllur eða hvítlauks-
brauð heldur kjöt og fisk sem búið er
að frysta og selst oft í meira magni
en ferskar afurðir. Til þess að þetta
sé möguleiki er nauðsynlegt að eiga
rúmgott frystihólf. Þetta krefst þess
líka að máltiðir séu skipulagðar
nokkra daga fram í tímann en þetta
sparar aurinn, bæði í hagstæðari inn-
kaupum og að því leyti að sjaldnar
þarf að fara í verslun.
Ástand raflagna á tjald-
stæði víða ábótavant
Á síðasta ári fékk Neytendastofa
rökstuddar ábendingar um að
ástand raflagna á tjaldstæðum og
öðrum stöðum þar sem mögu-
leiki er að tengja hjólhýsi og hús-
bíla við rafmagn kynni að vera
ábótavant að því er fram kemur á
heimasíðu Neytendastofu.
{ könnuninni voru 24 tjaldstæði
viðsvegar um landið skoðuð en
skoðanirnar fóru fram af óháðum
faggiltum skoðunarstofum. Niður-
stöður könnunarinnar leiddu í ljós
að þær athugasemdir sem koma
fyrir í flestum skoðunum voru
gerðar við merkingu tölvubúnaðar
eða í 75% tilfella, við tengla í 67% til-
fella og við lekastraumrofvörn í 54%
tilfella. Þá vekur athygli hversu víða
röng gerð tengla var notuð við teng-
ingar á hjólhýsum og húsbílum.
Eigendur eða umsjónamenn
þeirra tjaldstæða sem skoðuð voru
fengu í öllum tilfellum afrit af skoð-
unarskýrslu þar sem fram komu
athugasemdir, alvarleiki þeirra og
frestur til úrbóta.
I skýrslu Neytendastofu kemur
fram að eigendur og umsjónamenn
tjaldstæða beri ábyrgð á ástandi raf-
lagna og þess rafbúnaðar sem þar er
notaður. Neytendastofa hvetur því
til þess að þeir umgangist allan raf-
búnað af varfærni og nota eingöngu
búnað sem hæfir aðstæðum.
Netbankinn
hækkar vexti
Frá og með gærdeginum hækkaði
Netbankinn vexti óverðtryggðra
innlána og útlána um 0.75% og verð-
tryggða vexti um allt að 0,30%. Þessi
hækkun kemur í kjölfar hækkunar
stýrivaxta Seðlabanka Islands.
Verðtryggð íbúðalán Netbank-
ans með föstum vöxtum hækka frá
4,60% upp í 4,90%. Jafnframt hækka
vextir á íbúðaláni II með breyti-
legum vöxtum um 0,20% og verða
frá 5,60% til 7,10%. íbúðalán Net-
bankans eru án skilyrða um önnur
viðskipti og þeir viðskipavinir sem
eru nú þegar með íbúðalán hjá Net-
bankanum halda sínum kjörum
óbreyttum.
Vextir á óverðtryggðum markaðs-
reikningi hafa hækkað um allt að
0,75% og ber nú efsta þrepið 11,65%
vexti. Vextir á innlánsreikningum
debetkorta og annarra veltureikn-
inga hækka um 0,35-0,50%. Verð-
tryggðir innlánsreikningar hækka
um allt að 0,30%.
Flestir ánœgðir með
heilbrigðiseftirlitið
Starfsleyfisskyld fyrirtæki eru m.a. læknastofur sem fá þjónustu heilbrigðisfulltrúa.
Nýleg könnun sem gerð var af IMG
Gallup sýnir að mikil ánægja mæld-
ist meðal Umhverfissviðs Reykjavík-
urborgar vegna heilbrigðiseftirlits
og vöktunar. Þetta kemur fram á
umhverfissvid.is. Sömuleiðis mæld-
ist mikil ánægja með viðmót heil-
brigðsfulltrúa sem fara í eftirlit hjá
starfsleyfisskyldum fyrirtækjum.
Sjötíu og sjö prósent svarenda voru
ánægðir með þjónustu heilbrigðis-
eftirlitsins og 82% svarenda töldu
viðmót heilbrigðisfulltrúa gott.
Svarhlutfall könnunarinnar var
50% eða 132 manns sem skiputust á
eftirfarandi fyrirtækjaflokka: Skóla
og leikskóla, snyrti- og hársnyrti-
stofur, veitingahús og matsölustaði,
tannlæknastofur og annað. Átján
prósent svarenda töldu þjónustu
heilbrigðiseftirlitsins hvorki góða
né slæma en 4,9% töldu hana slæma.
Langstærstur hluti svarenda, eða
82% töldu viðmót heilbrigðisfulltrúa
gott, 10,9% hvorki gott né slæmt og
8% töldu það slæmt.
Niðurstöðurnar eru ánægjulegar
Þau fyrirtæki sem eru starfsleyfis-
skyld, og fá þjónustu heilbrigðisfull-
trúa eru fyrirtæki sem til að mynda
framleiða og dreifa matvælum,
hvers konar fyrirtæki sem veita per-
sónulega þjónustu s.s. skrifstofur,
læknastofur, skólar, líkamsræktar-
stöðvar auk allra fyrirtækja sem eru
með mengandi starfsemi eða hafa
mengun í för með sér. Árný Sigurð-
ardóttir forstöðumaður heilbrigðis-
eftirlitsins og vöktunar á Umhverf-
issviði Reykjavíkurborgar er mjög
ánægð með niðurstöður könnunar-
innar. „Þetta er góð niðurstaða sér-
staklega í ljósi neikvæðrar umræðu
undanfarið um “eftirlitsiðnaðinn”
eins og hann er stundum kallaður."
Árný segir að þess beri að geta að
þjónusta heilbrigðiseftirlitsins sé sér-
stæð því hún sé lögboðin en ekki eitt-
hvað sem rekstraraðilar fyrirtækja
velja sjálfir og henni geta fylgt kröfur
um umbætur. „Langflestir eftirlits-
þegar okkar eru ánægðir með heil-
brigðiseftirlitið og finnst sjálfsagt
að fá heilbrigðisfulltrúa í heimsókn
sem fer yfir stöðuna og segir til um
úrbætur um alla þá þætti sem heil-
brigðiseftirlit tekur til.“
AO Sprengisandur Kópavogsbraut Óseyrarbraut
«rUNTKH.n 122,9 kr. 122,9 kr.. 122,9 kr..
CyeGO Vatnagarðar Fellsmúli Salavegur
122,9 kr.. 122,9 kr. 122,9 kr..
eru ódýrastir?
Samanburður á verði 95 oktana benstns
ORKAN
Eiðistorg
122,8 kr.
Klettagörðum
122,8 kr.
Skemmuvegur
122,8 kr.
CB
Arnarsmári
122,9 kr.
Gylfaflöt
123,9 kr.
Starengi
122,9 kr.
Snorrabraut
122,9 kr.
Bústaðarvegur
124,1 kr.
Bensínverð
lælckar um
eina krónu
f síðustu viku lækkaði verð á 9;
oktana bensíni um eina krónu
og er skýring lækkunarinnar
lækkandi heimsmarkaðsverð auk
styrkari stöðu krónunnar gagn-
vart bandaríkjadollar.
Lægsta verðið þessa vikuna er
hjá afgreiðslustöðvum Orkunnar
sem selur lítrann af 95 oktana
bensíni á 122,8 krónur. Fast á hæla
Orkunnar koma svo Atlantsolía,
Ego og ÓB sem selja lítrann á 122,9
krónur. Hæsta verðið þessa vikuna
er á afgreiðslustöðvum Essó, ásamt
sumum afgreiðslustöðvum Olís og
Shell.
hugrun@bladid.net
Nýr BMW framsýndur
I gærkvöldi var heimsfrumsýning á
BMW Z4 í sýningarsal B&L að Grjót-
hálsi 1. Þetta er fyrsti viðburður
sinnar tegundar á íslandi og í fyrsta
sinn sem BMW heldur hér sýningu
af þessari stærðargráðu. Gert er ráð
fyrir 300 boðsgestum á sýninguna
bæði innlendum og erlendum. Sam-
hliða Z4 Coupé heimsfrumsýning-
unni veður Z4 Roadster blæjubíllinn
jafnframt sýndur í fyrsta sinn hér á
landi en hann kom á markað með
nýtt útlit og nýjan búnað síðastliðið
vor. BMW Coupé og BMW Roadster
verða til sýnis laugardaginn 27 maí
frá kl 12-16 í sýningarsal B&L.
Að sögn kynningarstjóra B&L er
enn ekki búið að fastsetja verð á
BMW Coupé en ekki er ólíklegt að
það verði á svipuðu verði og BMW
Roadster sem er á verðbilinu 3-7
milljónir. BMW Z4 línan kom fyrst
á markað árið 1996 og þótti hleypa
BMW Z4 Coupé verður til sýnis í sýningarsal B&L næstkomandi laugardag.
nýju lífi í evrópsku sportbílahefðina.
Það er svo eflaust engin tilviljun að
Z4 Coupé, fysta Coupé-útgáfa lín-
unnar kemur til skjalanna á tíu ára
afmæli hennar, en með þessum úr-
valssportbíl er BMW enn á ný að
leggja hönd að mótun hraðskreiðra
úrvalsbifreiða.