blaðið - 23.05.2006, Blaðsíða 26
ÞRIÐJUDGUR 23. MAÍ 2006 blaöið
ÁLFABAKKA
THE DA VINCI CODE KL6-9-10:45
THE DA VINCI CODE VIP KL6-9
SHAGGYDOG KL 3:45-5:50-8-10:10
Ml:3 KL 5:30-6-8:30-10:30
SCARYM0VIE4 KL4-6
FAILURE TO LAUNCH KL8
FIREWALL KL 10:10
LASSIE KL4
BAMBI2 KL3:45
KRINGLUNNI^_
SAMivMm
Ml:3 KL 5:30-8-10:40
AMERICAN DREAMZ FORSÝND KL 8
SHAGGYDOG KL 5:50-8-10:10
SCARYMOVIE4 KL 5-8-10
KEFLAVlK
SáMMÉsmi
THEDAVINCICODE KL7-10
SHAGGY DOG KL8
Ml:3 KL10
AKUREYRI
SHAGGYDOG KL8
Ml:3 KL 8-10:20
SCARY MOVIE 4 KL 10
THE DAVINCI CODE KL 5-7-10
SHAGGYDOG KL 4-8-10
Ml:3 KL 5-8-10
SCARY MOVIE 4 KL6-8
V FOR VENDETTA KL 10
D krl I Uóil
NYTTIBIO
- :r. •• ^ r Výl?
■■
* T t 1 f, I
THE
DaVINCICODE
SIUfíRfí^ BÍO
DA VINCICODE
kl. 4,5,7,8,10ogl1Bil4ÁRA
DAVINCICODE ÍLÚXUS
kl. 5, 8og 11 B114ÁRA
RAUÐHETTA ENSKT TAL
kl. 6,8 og 10
RAUÐHETTAISLENSKT TAL
kJ. 4
ICEAGE2
kl. 6 ENSKT TAL
ÍSÖLD2
kl. 4 ÍSLENSKT TAL
CRYWOLF
kl. 8og 10B.1.16ÁRA
REGflBOOmn
DAVINCICODE
kl. 6 Og 9 B.L 14 ÁRA
CRYWOLF
kJ. 8BJ. 16ÁRA
RAUÐHETTA ENSKT TAL
kl.6
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
kl.6
BANDIDAS
kl.8og 10B110ÁRA
PRIME
kl. 5.45,8og 10.15B.L16ÁRA
THE HILLS HAVE EYES
kl. 10B.L 16ÁRA
DAVINCICODE
kl. 5,8 og 10.50 B.L 14ÁRA
BANDIDAS
kl. 8og 10B.1.10ÁRA
SALTKRÁKA 4 ÍSLENSKT TAL
W.6VERÐ400KR.
INSIDE MAN
kl. 8 og 10.20 B116ÁRA
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
kl.6
DA VINCI CODE
kl. 5,8og10BJ.1**RA
CRYW0LF
kl. 8 B116 Aaa
SALTKHAKA4VERÐ400I01.
kl. 6ISLENSKT TAL
□□ Dolby /DD/ JEK
34 I AFPREYING
Rokkað til fortíðar
Tónlist
Jón Þór Pétursson
JetblackJoe
Fullcirde
Cod Music
2006
Nú fyrir skemmstu kom út ný plata
með rokkurunum í Jet black Joe
sem nefnist Full Circle. Aðeins
þeir félagar Gunnar Bjarni Ragn-
arsson og Páll Rósinkranz eru eftir
af upprunalega bandinu og eru
öll lög og textar eftir þá. Þar fyrir
utan fær hljómsveitin til liðs við sig
ýmsa tónlistarmenn eins og Snorra
Snorrason sem spilar á orgel og
Guðlaug Júníusson trommuleikara
Vinyl. Tólf lög eru á disknum sem
er í styttra lagi.
Tímavélin
Ég er búinn að hlusta nokkrum
sinnum á diskinn og ég verð að við-
urkenna að hann heillaði mig alls
ekki við fyrstu spilun. Það er þó
oft þannig með tónlist að hún vill
síast smátt og smátt inn í undirmeð-
vitundina, hreiðra um sig og leka
rólega eftir æðunum. Ég andaði því
léttar og ákvað að hlusta aftur og
endaði sennilega með því að hlýða
á hann svona sex sinnum (hann er
frekar stuttur). Það er engu líkara
en þeir félagar hafi fundið upp sína
eigin tímavél og farið tólf ár tilbaka.
Þarna er flest að finna sem maður
tengir við Jet black Joe, drungalegt
Hammond-orgelið marrar í bak-
grunni margra laga, söngur Páls
Rósinkranz stendur alltaf fyrir sínu
og kunnuglegar útsetningar Gunn-
ars Bjarna róa mann niður í óút-
reiknanlegum heimi. Þessi diskur
hefði alveg eins getað komið út
árið 1995 sem eðlilegt (samt fremur
staðnað) framhald af Fuzz sem
kom út árið 1994. Jet black Joe voru
reyndar „gamaldags" þegar þeir
komu fram á sjónarsviðið en ferskir
engu að síður. Það er lítill frumleiki
í þessari plötu þó að hún sé vönduð
í marga staði.
Þegar rokkarar róast
Það hefur lítið farið fyrir rokk-
aranum Páli Rósinkranz á und-
anförnum árum. Hann hefur
mestmegnis verið í gospel og/eða
ballöðutónlist. Páll er með frábæra
rödd og hann ber uppi nokkur lög
plötunnar þó hann láti vera að
þenja raddböndin sem hann vissu-
lega getur. Páll semur síðustu þrjú
lögin sem öll eru rólegar ballöður.
Af ballöðunum finnst mér hljóm-
sveitinni takast best upp í laginu
„Misunderstood" þó að það hljómi
eins og cover lag frá 1970. En það
sem ég sakna kannski hvað mest
af þessari nýju plötu er kraftur. Sú
spilagleði og orka sem einkenndi
sveitina á fyrri hluta 10. áratugarins
er því miður ekki til staðar lengur.
Að mínu mati er platan í heild sinni
of flöt til að kveikja nægilegan
neista þó enginn skortur sé á snyrti-
legum útsetningum.
Hörðustu aðdáendur sveitarinnar
ættu að geta unað nokkuð sáttir en
fyrir aðra er bara alltof langur tími
liðinn
Samstöðu- og styrktartón-
leikar fyrir konur í Palestínu
Félagið í sland-Palestína og UNIFEM
á íslandi standa fyrir samstöðu- og
styrktartónleikum fyrir konur í her-
tekinni Palestínu fimmtudaginn 25.
maí á Grand rokk. Tónleikarnir eru
upphafið að söfnunarátaki þar sem
allur ágóði rennur til palestínskra
kvennasamtaka sem starfa á sviði
mannúðar- og mannréttindarmála
á herteknu svæðunum. Húsið opnar
klukkan 21.00. Tónleikarnir hefjast
21.30. Aðgangseyrir er 500 krónur.
Á tónleikunum koma fram: Reykja-
vík!, Future Future, Wulfgang, Sea-
bear og Mr. Silla spilar plötur.
Sérhannaðir bolir og peysur frá
Dead og Nakta apanum verða til sölu
auk mynda eftir Hugleik Dagsson.
Einnig bolir, nælur og geisladiskar
frá Félaginu Ísland-Palestína. Allur
ágóði af miðasölu og sölu á varningi
rennur til palestínskra kvennasam-
taka sem starfa á sviði mannúðar-
og mannréttindarmála í hertekinni
Palestínu - meðal annars Bisan
rannsóknar- og þróunarsetursins í
Ramallah á Vesturbakkanum.
Þröstur Leó Gunnarsson fer með aðalhlutverkið í myndinni Köld slóð ásamt Elvu Ósk Ólafsdóttur.
Skrifað undir Kalda slóð
Björn Sigurðsson framkvæmda-
stjóri Senu og Kristinn Þórðarson
framleiðandi skrifuðu undir með-
framleiðslusamning vegna íslensku
kvikmyndarinnar Köld slóð í Can-
nes siðastliðinn laugardag í Skand-
inavíubásnum. Sena eignast þannig
dreifingarrétt og sýningarrétt á
myndinni í kvikmyndahúsum, á víd-
eói/DVD, VOD og sjónvarpi og mun
auk þess fá hlutdeild í tekjum af sölu
myndarinnar á heimsvísu.
Þetta er í fyrsta skipti sem sjálf-
stætt íslenskt dreifingarfyrirtæki
gerist meðframleiðandi á íslenskri
kvikmynd. Með þessu er Sena að
feta sig áfram á nýrri braut - fara
í nýjar áttir sem sambærileg fyrir-
tæki á Norðurlöndum hafa gert með
góðum árangri.
Samtímasaga
Köld slóð er spennumynd um
harðsvíraðan íslenskan blaðamann
sem lendir í mikilli hættu þegar
hann rannsakar dularfullt dauðs-
fall á virkjunarsvæði á hálendi ís-
lands. Leikstjóri myndarinnar er
Björn Brynjólfur Björnsson og hand-
ritið skrifaði Kristinn Þórðarson.
Myndin verður frumsýnd um jólin
2006 og með aðalhlutverk fara þau
Þröstur Leó Gunnarsson og Elva
Ósk Ólafsdóttir. Myndin er fram-
leidd af Sagafilm ehf. og 22 ehf.
Allur ágóði rennur til palestínskra
kvennasamtaka
Hvað er að gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
11.00 - Málþing
Tungumál og atvinnulífið
- ferðaþjónusta
Lögberg stofa 101
12.15-Fyrirlestur
William Ian Miller: Auga fyrir
auga
Oddi stofa 101
13.00 - Ráðstefna
Fræðileg þekking - hagnýtt
gildi
Endurmenntun HI, Dunhaga
18.00 -Sýning
Nemendasýning JSB 2006,
Töfrar
Borgarleikhúsið
Miðasala á midi.is
20.00-Tónlist
Ian Anderson
Plays Orchestral Jethro Tull
Miðasala á midi.is
20.00 - Sýning
Nemendasýning JSB 2006,
Töfrar
Borgarleikhúsið
Miðasala á midi.is
20.00 -Tónlist
Rússíbanar
íslenska óperan