blaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 13

blaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 13
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 DEIGLAN I 13 viðmið í hönnun, útliti og aksturseiginleikum fólksbíla Mikil gróska i mótorsporti Blúðið/Frikki Racer hjól eru notuð innan- bæjar. Þau eru stærri og geta verið mjög hraðskreið. Það þarf að taka svokölluð A-réttindi til þessa að mega keyra hjól minni 250CC og til þess þarf að hafa náð 17 ára aldri. Tveimur árum eftir próftöku á A- réttindum eða þegar viðkomandi er orðinn 21 árs getur hann tekið próf á stærri hjól en 250CC. $ SUZUKI ...er lífsstill! SUZUKI BÍLAR HF. SKEIFUNNI 17. SÍMI 568 51 00. www.suzikibilar.is Suzuki Swift er bíll sem hefur sett ný viðmið í hönnun, útliti og aksturseiginleikum fólksbíla og hefur fengið fádæma góðar viðtökur um allan heim. Suzuki Swift var valinn bíll ársins á íslandi 2006 af BIBB samtökum íslenskra bílablaðamanna. Suzuki Swift var einnig valinn „Car of the Year“ 2005 af virtasta bílablaði Bretlands „Car magazine". Hann var valinn bill ársins á írlandi, Nýja-Sjálandi, Astralíu, Kina, Malasíu og Japan. í Japan fékk Suzuki Swift líka „most fun special special achievement award“ og „Design award of the year“. í hugum margra er hinn dæmi- gerði Harley-Davidson eigandi eldri maður með sítt hár og ólæknandi mótorhjóladellu. Sá gamli skellir sér á hjólið á sunnudögum og tekur einn rúnt um hverfið. Ungu strák- arnir skjótast svo fram úr honum á enduro hjólum og aðal töffararnir stinga alla af á racer hjólum sem geta verið mjög hraðskreið og farið allt upp í 320 km á klukkustund, langt yfir leyfilegan hámarkshraða. „Eg vil nú ekki meina að það sé neitt sérstaklega sterk staðalmynd eða mikil stéttaskipting innan þessa hóps en auðvitað eiga þeir efnameiri dýrari og flottari hjól. Ungu strák- arnir eru einnig frekar á krossurum og enduro hjólum og þeir eldri á hippahjólum,11 segir Ellert Pálsson, mótoráhugamaður. Vinsælt sport Það er gríðarleg fjölgun í íþróttinni um þessar mundir, sérstaklega í ut- anvegarakstri eða mótorkrossi. Á Trans Atlandic Offroad Challenge mótinu sem haldið var um síðustu helgi voru fleiri keppendur en von var á fyrirfram og sýnir það vel áhug- ann og gróskuna sem er í íþróttinni um þessar mundir. Bifhjóla latína Fyrir mörgum hljómar þetta tal um krossara, enduro og hippahjól eins og latína. Það eru nokkrir flokkar innan akstursíþróttarinnar. Skelli- nöðrur eru létt bifhjól eða minna en 50 cc. Cc er kúbik og er það stærð sprengjurýmis mótorhjólsins. Hægt er að taka próf á slík hjól 15 ára gam- all. Skellinöðrur eru því hjól sem eru mikið notuð af unglingum enda eru þau létt og henta vel til innanbæjaraksturs. Flest hippahjól eru í þyngsta flokknum. Dæmigert hippahjól er hið alkunnua Harley-Davidson hjól en þau eru sígild. Svokallaðir krossarar eða motorc- ross hjól eru mjög vinsæl um þessar mundir. Ekkert próf þarf til þess að keyra þau innan merktra svæða og er keppt á þeim allt niður í 12 ára aldur. Þetta eru keppnishjól sem ekki er leyfilegt að keyra innanbæjar. Það eru margir ungir strákar sem leika sér og keppa á þessum hjólum og er þetta gríðarlega vinsæl íþrótt. Enduro hjólin eru lík krossur- unum en hafa þó möguleika ólíkt krossurunum að vera notuð í inn- anbæjarakstri. Þetta eru einnig gróf hjól sem notuð eru utanvega og í keppnum en hafa ljós og meiri aukabúnað sem nauðsynlegur er til innanbæjaraksturs. 2BILLA ARSINS 42006* .v verð frá 589 þus

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.