blaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 1
IMENNING: Kvikmyndastjarna j sýndikúreka- takta í Laxnesi Sérblað um heimili og hönnun fylgir Blaðinu i dag Vönduð véiðarfæri 10 veiðivörur í næstu sportvöruverslun Friálst, óháð & ókeypis! Bandaríski leikarinn John C. Reilly var á (slandi á dögunum. ^höld ■*">w Laugavegi 52 • Reykjavík I SÍÐA 32 119. tölublað 2. argangur þriðjudagur 30. maí 2006 Dýrir dropar drýgöir Vilhjálmur borgarstjóri með stuðningi Björns Inga Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks myndaður á mettíma. Enn hefur ekki verið samið um verkaskiptingu flokkanna í helstu ráðum og nefndum borgarinnar. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar- flokkur hafa myndað meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, sem tekur til starfa í næsta mánuði í kjölfar nýafstaðinna kosninga. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæð- ismanna, verður borgarstjóri, en Björn Ingi Hrafnsson, oddviti og eini borgarfulltrúi framsóknarmanna, verður formaður Borgarráðs. Tilkynnt var um þessa tilhögun í síðdegis i gær, en þeir Viljhálmur og Björn Ingi boðuðu fjölmiðla til fundar við sig með skömmum fyrirvara á heimili Vilhjálms í Breiðholti. Vel viðraði og fór fund- urinn fram í garðinum hjá nýja borgarstjóranum. Fram kom i máli þeirra að samn- ingaviðræðurnar hefðu tekið afar skamman tíma, aðeins nokkrar klukkustundir. Fullur einhugur og traust hefði myndast þegar í upp- hafi viðræðnanna og því hefðu þeir handsalað samkomulagið skömmu síðar án þess að fara út í einstök smá- atriði. Til slíks gæfist nægur tími, enda líða allnokkrir dagar uns hin nýja borgarstjórn tekur við völdum með formlegum hætti. Enn er ósamið um verkaskiptingu í stjórn- kerfi borgarinnar, helstu nefndum og ráðum, auk fyrirtækja á hennar vegum. Byrjum strax ,Okkar málefnaskrá grundvallast á mjög metnaðarfullri framtíðarsýn, þar sem tekið er á brýnustu málum Reykvíkinga á sviði málefna eldri borgara, fjölskyldumála, skipulags- , samgöngu- og lóðamála," sagði Vilhjálmur um málefnasamning flokkanna. Björn Ingi sagði tíma kominn á athafnastjórnmál í stað samræðu- stjórnmála. Hann taldi að einfalt væri að setja fram inntak málefna- samningsflokkanna:„Hugsumstórt. Horfum Langt. Byrjum Strax!“ Þeir Vilhjálmur og Björn Ingi kváðu engan eiginlegan málefna- ágreining hafa komið upp í viðræð- unum. Þeir hefðu rætt flugvallar- málið, en ekki tekið neina ákvörðuji um framtíð hans. „En það er mik- ilvægt að taka ákvörðun um það hið fyrsta vegna þess að óvissan um framtíð innanlandsflugsins er afar slæm fyrir flugið og ferðaþjón- ustuna," sagði Vilhjálmur á blaða- mannafundinum. Björn Ingi tók í sama streng, en sagði brosandi að hann hefði engan veginn gefið hugmyndina um flugvöll á Löngu- skerjum upp á bátinn, þó sú um- ræða væri ótímabær nú. Verð mjög góður borgarstjóri Vilhjálmur var inntur eftir því hvernig borgarstjóri hann yrði og hvort vænta mætti breyttra stjórn- arhátta í Ráðhúsinu. „Ég verð mjög góður borgarstjóri, ég verð áfram þessi sami gamli Villi, hæverskur og góður karl,“ sagði Vilhjálmur við góðar undirtektir samherja sinna í borgarstjórnarflokkum Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks. (slendingar eyða sífellt stærri hluta af ráðstöfunartekjum sín- um í rekstur einkabílsins enda bensínverð í sögulegum hæð- um. Þannig fóru 7,2% af ráðstöf- unartekjum íslenskra heimila í rekstur heimilisbíls árið 2004 og viðbúið að sú tala verði mun hærri í ár. Margir hafa orðið til þess að hvetja borgarana til að draga úr notkun einkabílsins. Skemst er að minnast nýafstað- inna sveitarstjórnakosninga þar sem sumir stjórnmálamenn gerðu aukna reiðhjólanotkun og göngur að stefnumálum sínum. fljósi þessað eldsneytis- verð er nú í sögulegum hæð- um hefur Blaðið tekið saman nokkur góð ráð til að draga úr bensínnotkun. | SlÐA 16 Villhjálmur Þ. Villhjálmsson, verðandi borgarstjóri i Reykjavík, og Björn Ingi Hrafnsson, oddviti framsóknarmanna, ræða við fréttamenn fyrir framan heimili Villhjálms síðdegis í gær. Væmnin bönnuð Yfirleitt þegar stjórnendur út- varpsstöðva banna að ákveðin lög séu leikin er það vegna þess að þau kunna vera móðgandi eða særa blygðunarkennd hóps hlustenda. Útvarpsstöð í Essex í suðurhluta Englands hefur ákveðið að banna lög enska ballöðusöngvarans James Blunt sökum þess hversu væmin þau eru og hversu þreyttir hlust- endur eru á þeim. Chris Cotton, sem stýrir laga- vali útvarpsstöðvarinnar, segir að stjórnendur stöðvarinnar hafi ekkert á móti James Blunt. Þeir hafi hinsvegar ályktað að hlustendur væru búnir að fá nóg af lögunum „Youre Beautiful” og „Goodbye My Love” og viljað lina þjáningar þeirra. Cotton hvetur fleiri stöðvar til að fara að dæmi hans og banna spilun á lögum sem fara í taugarnar á fólki. FJARNAM S Skráning á heimasíðu skólans f\J\ * Jk ■ * * 2o- mai' 1 • Juni VERZLUNARSKOLlf ISLANDS

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.