blaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 4
4 I FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2006 blaöiö
Forstjórar vísa gagnrýni
Bændasamtakanna á bug
Framkvæmdastjóri Bændasamtaka íslands segir skýringu kaupmanna á hækkun matar-
verðs ekki á rökum reista. Hann segir hækkanir alfarið komnar til hjá smásölum.
Kirkjuklukkur
klingja
Hún þurfti að halda fyrir eyrun þessi Beri-
fnarmær þegar kirkjuklukkur Hallgríms-
kirkju byrjuðu að slá inn heila tímann i
gær. Þó útsýnið frá Hallgrímskirkjuturni
yfir Reykjavíkurborg og nágrenni geti
veríð stórbrotið er ekki vænlegt að vera
þarna þegar klukkurnar láta f sér heyra.
vörur undir kostnaði allt síðastliðið
ár og eru nú reyna komast út úr því.
Þetta eru ekki eðlilegir viðskipta-
hættir að mínu mati.“
Sigurgeir segir þær hækkanir sem
hafa orðið á kjötvörum vera eðlilegar
enda sé markaðurinn núna loksins
í jafnvægi eftir mörg erfið ár. „Það
var bullandi offramboð á kjöti fyrir
þremur árum. f kjölfarið hrundi
markaðurinn með tilheyrandi gjald-
þrotum. Núna ríkir jafnvægi sem
hefur hjálpað framleiðendum að
hækka verð sem var komið langt
undir framleiðslukostnað."
Dýrasta mjólk í heimi
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
vísar gagnrýni Bændasamtakanna
á bug. Hann segir verð frá mjólk-
urstöðvum hérlendis vera eitt það
hæsta í heimi og að þrátt fyrir hækk-
anir smásöluaðila séu verslanir al-
mennt að selja mjólk undir kostnað-
arverði. Kaupmenn eru því að hans
mati ekki að reyna draga athyglina
frá einu eða neinu. „Það liggur al-
veg ljóst fyrir að við erum að kaupa
dýrustu mjólk í heimi og selja hana
með tapi. Ég veit ekki hvort það á
að skamma okkur mikið fyrir það.
Kjötvörur hafa hins vegar hækkað
um allt að 7% frá áramótum fyrst
og fremst vegna skorts á þessum
vörum.“
Þá bendir Finnur á að matvara
hafi hækkað hlutfallslega minna
en aðrar vörur á undanförnum sex
árum. „Vísitala neysluverðs hefur
hækkað um 34% frá ársbyrjun 2000.
Á sama tíma hefur matvara aðeins
hækkað um 16%. Ríkið er í smásölu-
rekstri og selur áfengi og tóbak. Þar
hefur verðlag hækkað um 35% á
síðastliðnum sex árum. Þannig að
það er ríkið sem dregur neysluvísi-
töluna upp á við þegar kemur að
smásölunni."
Sigurður Arnar Sigurðsson, for-
stjóri Kaupáss, undrast gagnrýni
Bændasamtakanna. „Það er mjög
furðulegt af forsvarsmanni Bænda-
samtakanna að koma fram með
svona vitleysu. Ef skoðuð er verð-
þróun á mjólkurvörum frá þvi í
janúar á síðasta ári þá er mjólkur-
flokkurinn í heild um 4% lægri
núna. Þannig að mjólk er ódýrari
núna heldur en hún var í janúar
2005. Þaðrer samkeppni á markað-
inum sem hefur leitt til þess að við
höfum þurft að selja þessar vörur
undir kostnaðarverði."
hoskuldur@bladid.net
Eftir Höskuld Kára Schram
Einhliða verðhækkanir smásöluað-
ila á mjólkurvörum skýra að miklu
leyti hækkun búvöru í matar- og
drykkjarlið vísitölu neysluverðs, að
mati framkvæmdastjóra Bændasam-
taka íslands. Hann segir kaupmenn
reyna að draga athyglina frá þessum
hækkunum með því að beina um-
ræðunni að kjötvörum. Forstjórar
Kaupás og Haga vísa gagnrýni
Bændasamtakanna á bug. Verð á mat-
og drykkjavörum hefur hækkað um
3,7% frá því í maí samkvæmt útreikn-
ingum Hagstofunnar.
Mjólkurvörur hækkuðu mest
Vísitala neysluverðs hækkaði um
1,16% í júní miðað við fyrri mánuð
samkvæmt útreikningum Hagstof-
unnar. Mestan þátt i hækkun vísi-
tölunnar að þessu sinni áttu miklar
verðhækkanir á mat- og drykkjar-
vörum en þær hækkuðu um 3,7%
milli mánaða.
Forsvarsmenn Kaupás og Haga
hafa bent á að gengisbreytingar
sem og verðhækkun á kjöti skýri að
mestu leyti þessar hækkanir.
í yfirlýsingu sem Bændasamtök Is-
lands (Bl) sendu frá sér á þriðjudag
er þessum fullyrðingum mótmælt.
Benda samtökin á að smásöluverð á
Mjólkurvörur hækkuðu almennt um 16%
frá því í maí en eru þó enn seldar víða
undir kostnaðarverði
mjólkurvörum hafi hækkað um allt
að 16% milli mánaða án þess til hafi
komið hækkun frá mjólkurstöðvum
til smásala.
Sigurgeir Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri BÍ, segir kaupmenn
vera að reyna að draga athyglina
frá hækkunum á mjólkurvörum og
skella skuldinni alfarið á bændur.
„Hækkun á mjólkurafurðum er
mesta hækkunin á einstökum land-
búnaðarvörum milli mánaða og hún
verður alfarið til hjá smásöluaðilum.
Þeir nefna það ekki, heldur draga at-
hyglina að kjötinu sem hækkar um
2% á meðan mjólkin hækkar um allt
að 16%. Þessi hækkun á mjólkinni
kemur til vegna þess að lágvöruversl-
anirnar hafa selt ýmsar mjólkur-
Opið: Virka daga 12-16,
nema fimmtudaga 12-18
Eldshöfða 16, Bakhús
S: 616-9606
7”sjónvarp
tilvalið í bílinn, húsbílinn, fellihýsið eða tjaldvagnini
•3,2sm þykkur flatskjár
• innbyggðir hátalarar + eyrnatól
• 12V rafmagnstengi fyrir bíla
• spennubreytir fyrir 220V
• hægt að nota sem skjá - AV tengi
Ármúla 19 • 108 Reykjavík • Sími 568 1 620 • www.gloey.is
Sambærileg-
ur styrkur
mengunar
Styrkur svifryks og köfnun-
arefnisdíoxíðs var mjög sam-
bærilegur á gatnamótum
Langholtsvegar og Skeiðarvogs
og við Grensás í desembermán-
uði 2005. Þetta kemur fram í
skýrslu Önnu Rósu Böðvars-
dóttur hjá Mengunarvörnum
Reykjavíkur og Lúðvíks Gúst-
afssonar, deildarstjóra hjá Um-
hverfissviði Reykjavíkur. Anna
Rósa Böðvarsdóttir segir þetta
að mörgu leyti koma á óvart.
„Umferðarþungi er mun minni
í íbúðabyggð við Langholtsveg
en á gatnamótum Grensás-
vegar og Miklubrautar. Árið
2005 keyrðu um 13 þúsund
bílar Skeiðarvog á sólarhring,
en um 45 þúsund Miklubraut
við Grensásveg,“ segir Anna
Rósa í samtali við Blaðið.
Að sögn Önnu Rósu er um-
ferðin helsta uppspretta loft-
mengunar í Reykjavík. „Fyrir-
fram mætti reikna með styrkur
loftmengandi efna væri minni
við Langholtsveg en við helstu
umferðargötu borgarinnar." I
skýrslunni kemur fram að hugs-
anlegt sé að nálægð við Sæbraut
sem mikla umferðaræð skýri
að einhverju leyti háan styrk
mengunarefna við Langholts-
veg, en einnig kemur til greina
að þungaumferð um Skeiðar-
vog og Langholtsveg sé meiri
en í venjulegri íbúðabyggð.
Umhverfissvið Reykjavíkur
ætlar sér að mæla aftur á
þessum gatnamótum á öðrum
árstíma. „Við ætlum okkur
einnig að mæla loftmengun á
fleiri stöðum á þessu svæði til
að fá betri mynd af stöðunni,"
segir Anna Rósa.
ókeypis til
mimmm
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
blaóió
Bráðabirgðastjórn
Sómalíu samþykk-
ir friðargæslu
Bráðbirgðaþing Sómalíu sam-
þykkti í gær að hleypa friðar-
gæsluliðum frá Úganda og
Súdan til landsins. Talið er að
ákvörðun löggjafans auki lík-
urnar á meiriháttar átökum á
milli bráðabirgðastjórnarinnar
og íslamskra uppreisnarmanna
í landinu, en þeir hafa ítrekað
hafnað öllum hugmyndum um
að erlendir hermenn stilli til
friðar þar.
Uppreisnarmennirnir, sem
vilja koma á íslömsku ríki í
Sómalíu, hertu enn tök sín i gær
þegar þeir náðu borginni Jowhar
á sitt vald í gær. I síðustu viku
féll höfuðborgin, Mógadisjú, í
þeirra hendur.